Ártúns­höfði Í umfjöllun Stund­ar­innar vorið 2022 var­aði Hildur Gunn­ars­dóttir arki­tekt sér­stak­lega við þéttri byggð í nýju hverfi á Ártúns­höfða, sem nú er í bygg­ingu. Mynd: Golli

Ljósvist loks skilgreind í byggingarreglugerð

Hindra á ljós­mengun og tryggja dags­birtu og útsýni með breyt­ingum á bygg­ing­ar­reglu­gerð eftir gagn­rýna umræðu um skugga­varp í nýjum hverfum.

Ljósvist í íbúð­ar­hús­næði hefur nú í fyrsta sinn verið skil­greind í bygg­ing­ar­reglu­gerð, auk þess sem fjallað er ítar­lega um kröfur sem henni tengj­ast og sett fram mark­mið.  Þetta kemur í kjöl­far gagn­rýn­innar umræðu um skugga­varp og aðgengi að dags­birtu á síð­ustu árum.

Sól­ar­gangurSkipu­lags­hug­myndir eiga sér oft fyr­ir­myndir í borgum sem búa við mun hærri sól­stöðu en íslensk byggð.

Ljósvist er sam­an­safn ýmissa þátta sem snúa að lýs­ingu, svo sem dags­ljósi og raf­lýs­ingu, sem saman lýsa sjón­skil­yrðum og þeirri upp­lifun sem rýmið veitir. Þetta er í fyrsta sinn sem heild­stæð umfjöllun um ljós­vist er inn­leidd í bygg­ing­ar­reglu­gerð, segir í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu.

Breytt reglu­gerð á aðeins við um þær fram­kvæmdir sem byggja á deiliskipu­lagi sem er sam­þykkt eftir 1. maí næst­kom­andi og frá 1. ágúst 2027 gildir hún um allar fram­kvæmdir sem sótt er um bygg­ing­ar­leyfi fyrir. Hverfi sem byggð voru áður eða eru í bygg­ingu nú byggja á óljós­ari og rýmri reglum um skugga­varp. Sem dæmi um ramma fyrir þétt­leika og skugga­varp sem verið hefur í gildi eru ein­föld „með­mæli“ í aðal­skipu­lagi með fjar­lægð milli bygg­inga, sem ekki voru bind­andi á neinn hátt.

Þannig mátti sjá að í skipu­lagi fyrir nýtt hverfi á Ártúns­höfða í Reykja­vík, sem nú er í bygg­ingu, voru flest leik­svæði barna og götur í skugga­varpi þegar venju­legum vinnu­degi lauk á jafn­dægrum, auk þess sem hin skipu­lagða byggð skyggir á Bryggju­hverfið fyrir neðan. Það þrátt fyrir að „mælt væri með því“ að fimm tímar af sól­ar­ljósi ættu að ber­ast á helm­ing sér­stakra dvalar- eða leik­svæða utandyra 1. maí, en 72% daga árs­ins eru dimmari en það.

Breyt­ing­arnar á reglu­gerð­inni voru und­ir­rit­aðar á föstu­dag og var þetta síð­asta reglu­gerðin sem Inga Sæland und­ir­rit­aði sem félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra.

Með breyt­ing­unum er neglt niður að gæta skuli að því að bygg­ingar og önnur mann­virki hafi „eðli­leg tengsl við úti­vist­ar­svæði á lóð“ og stað­setn­ing vist­ar­vera taki mið af dags­birtu og útsýni þannig að góðrar ljós­vistar gæti í vist­ar­verum. 

Þá verði mann­virki hönnuð og byggð þannig að tekið sé til­lit til þarfa allra ald­urs­hópa vegna ljós­vistar og að hún sé í fullu sam­ræmi við þá starf­semi sem fer fram við eða innan mann­virkis.

Ártúns­höfði, Reykja­víkNýtt hverfi á Ártúns­höfða á að vera þétt til að skapa for­sendur fyrir borg­ar­línu sem liggur við hverfið. Myndin er tekin 12. maí í fyrra, við góðar birtu­að­stæður.
Vell­irnir, Hafn­ar­firðiSkugga­varp er áber­andi jafn­vel á sumrin.
Vell­irnir, Hafn­ar­firðiÍ Skarðs­hlíð á Völlunum sést hvernig þétt­leiki nýbygg­inga veldur skugga­varpi á næstu byggð.
Sunnu­smári, Kópa­vogurÁ mynd­inni sjást skil skugga og sól­ar­ljóss í þéttri, nýrri byggð ofan Smára­lindar.
Skugga­varp, Ártúns­höfðiHér má sjá raun­dæmi frá Ártúns­höfða 1 af skugga­varpi við bestu aðstæður.

Skil­greindar kröfur eru gerðar varð­andi raf­lýs­ingu, dag­lýs­ingu í vist­ar­verum, útsýni í vist­ar­verum og að komið sé í veg fyrir ljós­mengun.

Mark­miðum og kröfum í reglu­gerð­inni er fylgt eftir með umfangs­miklum tækni­leið­bein­ingum sem Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) hefur unnið að í sam­vinnu við hag­að­ila síð­ustu mán­uði. Reglu­gerðin inni­heldur þannig rammann en tækni­leið­bein­ing­arnar hina tækni­legu útfærslu – sem eru nýmæli.

Stundin, for­veri Heim­ild­ar­innar, fjall­aði um áhrif þétt­ingar byggðar á ljós­vist í nýjum hverfum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í maí 2022, í ljósi þess að ekk­ert við­mið væri til staðar um aðgang að sól­ar­ljósi eða dags­birtu og að ný byggð byði upp á veru­lega skerta ljós­vist.

Þar kom meðal ann­ars fram að í Aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar væri fjallað um skugga­varp, þar sem segði meðal ann­ars: „Bil á milli húsa þarf að vera tvö­föld vegg­hæð svo nægj­an­leg birta náist á úti­svæði yfir sum­ar­mán­uði. Einnig er á jafn­dægri skugga­varp á bygg­ingu norðan megin ásætt­an­legt.“ Skipulag nýrra þétt­ing­ar­reita tók hins vegar ekki mið af þessu, þar sem ekki var um bind­andi ákvæði að ræða. Til­grein­ingin kom þar að auki fram í við­auka en ekki í meg­in­hluta skipu­lags­ins.

Inn­garðurÍ deiliskipu­lagi fyrir Ártúns­höfða var víða gert ráð fyrir leik­svæðum þar sem nán­ast alltaf er skuggi, enda var ákvæði um við­un­andi sól­ar­ljós á leik­svæðum víkj­andi ef segja mátti að úti­vist­ar­svæði væru í grennd­inni.

Ásta Loga­dóttir, verk­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í ljós­vist, benti á að þetta ylli breyt­ingu á hvers­dags­lífi og lífs­gæðum Íslend­inga. 

„Í torf­kof­unum var verið að vinna úti mik­inn hluta árs­ins og þá fékk fólk mun meiri dags­birtu heldur en við erum að fá í dag, því við erum yfir 90% tím­ans inn­an­dyra. Þau fengu dags­birt­una í mun meiri mæli,“ sagði hún. „Með þétt­ingu byggðar þá byrjar þessi tak­mörkun að eiga sér stað, að dags­ljósið kom­ist ekki inn í bygg­ing­arnar. Og þá fer hættan að aukast. Ef við förum að búa til ein­hverjar skugga­borgir, þá er það ekki björt fram­tíð sem bíður okkar.“

Í til­kynn­ingu Stjórn­ar­ráðs­ins segir að vorið 2022 hafi komið fram gagn­rýni á að skýr­ari reglur um ljós­vist skorti í bygg­ing­ar­reglu­gerð hér á landi. Sama sumar hélt HMS opinn fund um mik­il­vægi ljós­vistar og í kjöl­farið tók til starfa sam­ráðs­hópur sem í áttu sæti full­trúar frá Arki­tekta­fé­lagi Íslands, Grænni byggð, Ljós­tækni­fé­lagi Íslands, Samark (Samtökum arki­tekta­stofa), Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, Samtökum iðn­að­ar­ins, Samtökum raf­verk­taka og Verk­fræð­inga­fé­lagi Íslands.  

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Is urban planning and development - not without analogies to gentrification - dictated by investors and profit margins!? There seems to be a lot going wrong in terms of light pollution, air pollution, noise pollution, soil pollution, water pollution, etc.! It would seem that it applies to many if not most settlements around the globe: but why in Iceland which has this great latent potential to act differently!?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár