Guðlaugur ekki fram í borginni

Þing­mað­ur­inn Guð­laugur Þór Þórð­ar­son ætlar ekki að gefa kost á sér í odd­vita­vali Sjálf­stæð­is­flokks í borg­inni. Hann hefur verið orð­aður við fram­boð um langt skeið en segir í yfir­lýs­ingu að það gæti kallað fram flokka­drætti sem hafi reynst flokknum erf­iðir á und­an­förnum árum.

Guðlaugur ekki fram í borginni

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hyggst ekki gefa kost á sér til að leiða lista flokks­ins í Reykja­vík í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, þrátt fyrir að hann seg­ist hafa fundið fyrir miklum stuðn­ingi og áskor­unum und­an­farnar vikur.

Í yfir­lýs­ingu segir Guð­laugur Þór að hann hafi alvar­lega íhugað fram­boð sitt en kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þátt­taka hans í próf­kjöri gæti kallað fram flokka­drætti sem hafi reynst flokknum erf­iðir á und­an­förnum árum. Slíkt telji hann ekki þjóna hags­munum Sjálf­stæð­is­flokks­ins á þessum tíma­punkti.

Guð­laugur Þór nýtir tæki­færið og gagn­rýnir harð­lega stjórn vinstri­meiri­hlut­ans í Reykja­vík og segir borg­ina standa frammi fyrir alvar­legum vanda, meðal ann­ars í fjár­málum, sam­göngum og reglu­verki. Hann telur þó að raun­hæf sókn­ar­færi séu fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í kom­andi kosn­ingum, að því gefnu að flokks­menn gangi sam­hentir til verka.

Hann seg­ist ætla að leggja sitt af mörkum til að styðja við for­ystu flokks­ins í höf­uð­borg­inni og vinna að því mark­miði að ná aftur meiri­hluta í borg­ar­stjórn.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár