Hvað þarftu að vita um TikTok?

Níu af hverju tíu stúlkum í fram­halds­skóla á Íslandi nota TikTok.

Hvað þarftu að vita um TikTok?
TikTok Í fyrra not­uðu 36% íslenskra barna frá 9 til 12 ára TikTok. Mynd: AFP

TikTok státar af yfir millj­arði not­enda um allan heim, þar af meira en 170 millj­ónum í Banda­ríkj­unum, sem er næstum helm­ingur íbúa lands­ins. Á Íslandi not­uðu í hitt­ið­fyrra 83 pró­sent ung­linga í 8. til 10. bekk TikTok.

Samkvæmt nýrri rann­sókn Prósents vilja 70 pró­sent Íslend­inga að sam­fé­lags­miðlar verði bann­aðir börnum yngri en 16 ára, en aðeins 12 pró­sent sögð­ust and­víg banni. Nýlega tók slíkt bann gildi í Ástralíu.

Hér er nán­ari umfjöllun um appið, sem til­kynnti á fimmtu­dag að það hefði gert samn­ing við fjár­festa sem myndi gera því kleift að halda áfram starf­semi í Banda­ríkj­unum og forð­ast bann­hótun vegna kín­verskrar eign­ar­halds.

Upprunnið í Kína

Upp­gangur TikTok úr litlu mynd­deil­ing­ar­for­riti í alþjóð­legt stór­veldi er ein stærsta breyt­ingin í staf­rænni afþr­ey­ingu frá upp­hafi sam­fé­lags­miðla.

Allt frá vinum sem dansa saman til heima­kokka sem deila upp­skriftum, getur TikTok breytt venju­legum not­endum í stjörnur og gjör­bylt hefð­bund­inni leið til frægðar.

Það var sett á markað árið 2016 af kín­verska tækni­fyr­ir­tæk­inu ByteDance fyrir heima­markað, þar sem það heitir Douyin. Alþjóð­lega útgáfan, TikTok, kom út árið 2017.

Appið náði gríð­ar­legum skrið­þunga eftir að hafa sam­ein­ast Musical.ly, appi til að herma eftir söng, ári síðar.

„Fyrir þig“ síðan

Svokölluð leyni­upp­skrift að hraðri útbreiðslu TikTok hefur verið nýstár­legur algóriþmi þess fyrir með­mæli.

Í stað þess að sýna efni frá aðgöngum sem not­endur fylgja nú þegar, bygg­ist enda­lausy skrun á „Fyrir þig“ síðu TikTok á áhorfsvenjum, þátt­töku­mynstri og háþró­aðri grein­ingu efnis.

Myndband frá algjör­lega óþekktum aðila getur náð til millj­óna manna ef algrímið telur það nógu áhuga­vert. Keppi­nautar apps­ins hafa verið fljótir að til­einka sér það sama.

Áhersla TikTok á stutt mynd­skeið hjálpar einnig til við að halda not­endum við efnið.

Upp­haf­lega var það tak­markað við 15 sek­úndna mynd­bönd, en það var síðar lengt í allt að 10 mín­útur og nú geta sumir not­endur birt mynd­bönd sem eru allt að 60 mín­útur að lengd.

Pólitískt grunsamlegt

Gíf­ur­legar vin­sældir TikTok þýða að upp­gangur þess hefur verið umdeildur – aðal­lega vegna kín­versks eign­ar­halds og inn­byggðs ófyr­ir­sjá­an­leika.

Mið­ill­inn hefur sætt gagn­rýni frá stjórn­völdum um allan heim, sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum, vegna gagna­verndar og hugs­an­legra tengsla við kín­versk stjórn­völd, þar á meðal ásak­anir um njósnir og áróður.

Indland bann­aði TikTok ásamt öðrum kín­verskum öppum árið 2020 og vís­aði til þjóðar­ör­yggis.

Sektað af ESB

Eft­ir­lits­stofnun Evr­ópu­sam­bands­ins sektaði TikTok um 530 millj­ónir evra (78 millj­arða króna) í maí fyrir að tryggja ekki að not­enda­gögn þess væru varin fyrir aðgangi kín­verskra yfir­valda.

Sam­fé­lags­miðl­aris­inn hefur áfrýjað sekt­inni og heldur því fram að hann hafi aldrei fengið neinar beiðnir frá kín­verskum yfir­völdum um gögn evr­ópskra not­enda.

Áhyggjur af öryggi unglinga

Í fyrsta skipti í heim­inum í þessum mán­uði bann­aði Ástralía yngri en 16 ára að nota stóra sam­fé­lags­miðla eins og TikTok, Instagram og YouTube, og lögðu ábyrgð­ina á tækni­fyr­ir­tækin að fjar­lægja unga not­endur af þjón­ustu sinni. Sem fyrr segir eru 70 pró­sent Íslend­inga fylgj­andi slíku banni, 18 pró­sent hlut­laus og aðeins 12 pró­sent and­víg, sam­kvæmt nýrri könnun.

Önnur lönd hafa lýst yfir áhyggjum af hugs­an­legum áhrifum TikTok á unga not­endur, þar á meðal ásak­anir um að það beini þeim inn í berg­máls­her­bergi og tak­ist ekki að halda aftur af ólög­legu, ofbeld­is­fullu eða klúru efni.

Albanía bann­aði TikTok í eitt ár í mars eftir að 14 ára skóla­drengur var drep­inn í kjöl­far átaka sem hófust á sam­fé­lags­miðlum.

Selja eða verða bannað

Banda­ríkja­þing sam­þykkti lög árið 2024 sem krefj­ast þess að ByteDance selji yfir­ráð sín yfir TikTok í Banda­ríkj­unum eða verði bannað.

Á fimmtu­dag, sam­kvæmt innri minn­is­blaði sem AFP hefur séð, sagði for­stjóri TikTok, Shou Chew, starfs­mönnum að sam­fé­lags­miðla­fyr­ir­tækið og kín­verski eig­andi þess, ByteDance, hefðu sam­þykkt nýtt sam­rekstr­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum.

Á meðal stórra fjár­festa eru Oracle – en stjórn­ar­for­maður þess, Larry Ellison, er gam­all banda­maður Donalds Trump for­seta – Silver Lake og MGX frá Abu Dhabi.

„Banda­ríska sam­rekstr­ar­fyr­ir­tækið mun bera ábyrgð á gagna­vernd, öryggi algríma, efn­is­stjórnun og hug­bún­að­ar­trygg­ingu í Banda­ríkj­unum,“ sagði Chew í minn­is­blað­inu.

Fáir deila opinerlega

Framtíð TikTok á Íslandi virð­ist þó til skamms tíma vera björt. Yfir tveir þriðju stráka í fram­halds­skóla nota TikTok og rúm­lega 91 pró­sent kvenna í fram­halds­skóla.

Aðeins helm­ingur ung­linga í fram­halds­skóla deilir hins vegar efni á opnum aðgöngum sam­fé­lag­miðla. Þar af 7 pró­sent einu sinni í viku eða oftar. Þau sem birta sitt eigið efni á gera það oftar í lok­uðum hópum. Af þeim fram­halds­skóla­nemum sem gera það eru 19 pró­sent stelpur og 8 pró­sent strákar.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Nota símann sem öryggistæki lika til að fylgjast með peni ngamalunumhjá mer borga reikninga og fleira sem þarf meðfram auk fleira meðfram
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu