Aukning á kynsjúkdómum áhyggjuefni

Há tíðni klamydíu og vax­andi fjöldi til­fella af lek­anda og sára­sótt á Íslandi eru áskorun fyrir fámenna þjóð að mati sótt­varna­læknis. Þjón­ustan í mála­flokknum þykir þó almennt góð hér­lendis.

Aukning á kynsjúkdómum áhyggjuefni
Sýnataka Ísland er eitt fárra landa sem býður fólki að taka eigin sýni fyrir kyn­sjúk­dóma­próf. Mynd: Landspítali/Þorkell

Þjónusta vegna kyn­sjúk­dóma­prófa á Íslandi er almennt afar sterk, að því fram kemur í nýrri skýrslu sem birt hefur verið á vef Land­læknis. Ein­stak­lingum stendur til boða að fram­kvæma sýna­tök­una sjálfir, sem er sjald­gæft í alþjóð­legu sam­hengi.

„Með nokkrum breyt­ingum til að auka aðgengi og með auk­inni fræðslu og vit­und­ar­vakn­ingu gæti Ísland áfram verið fyr­ir­mynd í því hvernig tryggja megi þjón­ustu,“ segir í skýrsl­unni.

Sótt­varn­ar­læknir bauð banda­rískum sér­fræð­ingi á Ful­bright-styrk, Dr. Alison Footman, að koma til lands­ins til að veita utan­að­kom­andi ráð­gjöf um háa tíðni klamydíu og vax­andi fjölda til­fella af lek­anda og sára­sótt hér­lendis. Nið­ur­stöður skýrslu hennar frá því í sept­em­ber voru birtar á vef Land­læknis nú 10. des­em­ber.

Samkvæmt skýrsl­unni er tak­mörkuð vit­und um kyn­sjúk­dóma á Íslandi sem leiðir oft til for­dóma tengdum kyn­hegðun og minni vilja hjá sumum til að fara í próf fyrir kyn­sjúk­dómum. Eru yfir­völd hvött til að veita aukna fræðslu um …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár