Heimurinn tekinn úr sambandi

Sólgos, vel skrifuð ung­linga­bók.

Heimurinn tekinn úr sambandi
Arndís Þór­ar­ins­dóttir
Bók

Sólgos

Höfundur Arndís Þórarinsdóttir
Niðurstaða:

Sólgos er heilt yfir vel skrifuð unglingabók sem vekur lesendur til umhugsunar um fortíð, nútíð og framtíð. Framvindan er hröð og spennandi en spyr einnig krefjandi spurninga – spurninga sem við ættum öll að spyrja okkur, jafnt ungir sem aldnir.

Gefðu umsögn

Það er tals­vert um heimsenda­sögur í jóla­bóka­flóð­inu í ár og eru ung­linga­bæk­urnar þar engin und­an­tekn­ing, líkt og Sólgos eftir Arndísi Þór­ar­ins­dóttur sannar. Bókin hefst þegar allt raf­magn fer skyndi­lega en ung­lings­stúlkunni Unni bregður ekki í fyrstu. Ekki fyrr en í ljós kemur að netteng­ing, síma­sam­band og jafn­vel útvarps­út­send­ingar liggja einnig niðri. Fólk safn­ast fljót­lega saman á götum úti og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að mikil virkni sól­ar­innar upp á síðkastið hafi náð hámarki með stóru sól­gosi með þessum gríð­ar­legu afleið­ingum fyrir jarð­ar­búa. Unnur nær því engu sam­bandi við móður sína sem er á ráð­stefnu erlendis og bíður hún því eftir að allt kom­ist í lag heima hjá föður sínum og stjúp­móður.

Vígbúin hjón

En allt kemur fyrir ekki og á innan við viku ríkir full­komin óreiða í sam­fé­lag­inu. Eins og beint úr Hollywood-mynd, umbreyt­ast faðir Unnar og stjúp­móðir á augna­bliki úr venju­legum hjónum í víg­búin hörku­menni, þegar þau …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár