Kuldalegur heimsendir

Kuldalegur heimsendir
Emil Hjörvar Petersen rit­höf­undur. Mynd: Sigurjón Ragnar
Bók

Eilífð­ar­vetur

Höfundur Emil Hjörvar Petersen
Undur
152 blaðsíður
Niðurstaða:

Eilífðarvetur sækir í klisjukenndan heim fantasíunnar en skilar sínu ágætlega að lokum.

Gefðu umsögn

Emil Hjörvar Petersen hefur und­an­farin ár gefið út for­múlu­kenndar fantasíu­bók­menntir sem eiga sér sterkar fyr­ir­myndir í ensku­mæl­andi bók­mennta­iðn­aði. Þrí­leikur Emils, Víghólar, Sólhvörf og Norna­sveimur sverja sig í und­ir­flokk furðu­sagn­anna, glæpafantasíur. Und­ir­rit­aður hefur sann­ar­lega dottið inn í slíkan skáld­skap. Þegar vel til tekst er varla skemmti­legri og yfir­drifn­ari afþr­ey­ingu að finna. Að auki er hægt að kaupa sér þannig bækur fyrir örfáar krónur á Amazon, en les­andi þarf að sama skapi að sætta sig við ensk­una og vera með nokkuð opinn huga við lest­ur­inn. 

Gufusleðar og snjóbreiður

Emil Hjörvar hefur sagt skilið við glæpafantasí­una í bili og nýjasta bók hans, Eilífð­ar­vetur, fjallar um hrís­kalda ver­öld eftir kjarn­orku­stríð. Heim­ur­inn hefur farist í hvítum blossa og við tekur kjarn­orku­vetur. Um þremur öldum síðar eru les­endur kynntir fyrir óvæg­inni nátt­úru og harðri lífs­bar­áttu eft­ir­lif­andi.

Þessi ver­öld er öfug­snúin Mad Max-martröð þar sem eyði­mörk er skipt út fyrir snjó­breiður og kraft­köggum fyrir gufus­leða. Hér fáum …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár