Spegla sig í öðruvísi líkömum

Reykja­vík Dance Festival hefst í vik­unni og er í ár til­einkað þeim kjarna­konum sem byggðu upp dans­menn­ingu á Íslandi. Fram­kvæmda­stjóri hátíð­ar­innar segir að opin­berum jafn­rétt­is­stefnum fylgi sjaldn­ast aðgerðir til að styðja við dans, list­grein sem byggi á vinnu kvenna og hinsegin fólks.

Spegla sig í öðruvísi líkömum
Úr sýn­ingu Shonen Franskir hreyfi­haml­aðir og ófatl­aðir dans­arar vinna saman í sýn­ing­unni Forme(s) de vie á Reykja­vík Dance Festival. Mynd: Olivia Droeshaut

Reykja­vík Dance Festival hefst á mið­viku­dag og verður í þetta skiptið haldið undir yfir­skrift­inni „Ástríðu­verkn­aður – labour of love“.

Pétur Ármanns­son, fram­kvæmda­stjóri og annar list­rænna stjórn­enda hátíð­ar­innar, segir að með yfir­skrift­inni sé arf­leið þeirra kvenna sem sköp­uðu dans­sen­una frá grunni síð­ustu árhund­ruð fagnað, en að vinna þeirra hafi oft verið ósýni­leg og van­metin.

„Þetta byggir á hug­mynd­inni um að ást sé eitt­hvað sem þú gerir, eitt­hvað sem þú iðkar, en sé ekki bara til­finn­ing sem þú finnur fyrir,“ segir hann. „Þetta er það sem er ein­kenn­andi fyrir íslenskar dans­listir, að starfa af ástríðu. Saga dans­lista á Íslandi er saga frum­kvöðla­kvenna sem ruddu braut­ina, héldu erlendis, stund­uðu dans­nám, komu heim, stofn­uðu skóla og héldu sýn­ingar.“

Pétur bendir á að í upp­hafi 19. aldar hafi ekki verið neinn dans á Íslandi til að tala um vegna skemmt­ana­banns kirkj­unnar. „Dans var bara strok­aður út og fólk mátti ekki gleðj­ast,“ segir hann. „Það …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár