Bandaríkjaforseti byggir upp skuggalega og ofbeldisfulla alríkislögreglu

Ný lög­reglu­sveit, ICE, sem beint er gegn inn­flytj­endum, nýtur nafn­leysis og eft­ir­lits­leysis. Óttast er að henni geti verið beitt gegn óbreyttum borg­urum í Banda­ríkj­unum.

ICE í New York
ICE í New York Alrík­is­full­trúar vakta ganga inn­flytj­enda­dóm­stóls­ins í Jacob K. Javitz-alrík­is­bygg­ing­unni þann 22. októ­ber 2025 í New York-borg. Full­trúar inn­flytj­enda- og tolla­eft­ir­lits­ins (ICE) og ann­arra alrík­is­stofn­ana halda áfram að hand­taka fólk í inn­flytj­enda­dóm­stólum þegar það mætir til rétt­ar­halda, þrátt fyrir lokun rík­is­stofn­ana sem staðið hefur yfir í tutt­ugu og tvo daga. Alrík­is­full­trúar fram­kvæmdu á þriðju­dag sam­eig­in­lega aðgerð ICE í Kína­hverf­inu sem emb­ætt­is­menn segja að hafi beinst að „glæp­sam­legri starf­semi sem teng­ist sölu á fölsuðum vörum“. Mynd: AFP

Rík­is­stjórn Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta hefur síð­ustu miss­eri rifið niður eft­ir­lit og mann­rétt­inda­vernd innan Heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins (DHS) og eflt Inn­flytj­enda- og tolla­eft­ir­litið (ICE) með auknu fjár­magni og víð­tækum heim­ildum. Þetta kemur fram í ítar­legri rann­sókn óhagn­að­ar­drifna banda­rísku frétta­stof­unnar ProPublica.

Samkvæmt heim­ildum og gögnum sem ProPublica byggir á er hvatt til nafn­leysis og grímunotk­unar innan ICE. Lög­fræði­legar til­raunir til að stöðva hand­tökur og aðferðir ICE hafi að mestu mis­tek­ist.

Í umfjöllun ProPublica segja íbúar í Santa Ana í Kali­forníu frá því hvernig grímu­klæddir menn í ómerktum bílum hefðu ráð­ist á fólk og ekið burt. „Honum er að blæða,“ sagði einn hringj­andi í neyð­ar­línu. Annar spurði: „Hvaða lög­regla keyrir um án núm­eraplatna?“ og þriðji spurði: „Eigum við bara að hlaupa í burtu?“

Borg­ar­stjór­inn Valerie Amezcua segir borg­ar­yf­ir­völd hafa litla mögu­leika til að setja hömlur á alrík­is­full­trúa, þar sem sú skrif­stofa innan Heima­varn­ar­ráðu­neyt­is­ins sem tók við kvört­unum hafi verið lögð niður. …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár