„Mikilvægt að verja alþjóðalög“

Íslend­ingar og Græn­lend­ingar und­ir­rita sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu á tímum vax­andi spennu. Enn er búist við því að Trump hafi áhuga á að inn­lima Grænland í Banda­ríkin.

Nágrannaþjóðir
Nágranna­þjóðir Jens Frederik Nielsen, for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands, og Kristrún Frosta­dóttir, und­ir­rita yfir­lýs­ing­una í Nuuk í dag. Mynd: Stjórnarráðið

For­sæt­is­ráð­herrar Íslands og Græn­lands und­ir­rit­uðu sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu í dag, þar sem und­ir­liggj­andi er vax­andi spenna og mik­il­vægi auð­linda á norð­ur­slóðum.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að alþjóða­stjórn­mála­legt mik­il­vægi svæð­is­ins hafi auk­ist, knúið áfram af lofts­lags­breyt­ingum, sigl­ingum og auð­linda­nýt­ingu.

„Í þessu sam­hengi er mik­il­vægt að verja alþjóða­lög og laga sam­starf okkar að þessum veru­leika og vernda efna­hags­legt öryggi. Þetta verður einnig að vega á móti aðstæðum sem ein­kenn­ast af spennu, sífellt meira krefj­andi við­skiptaum­hverfi og auk­inni sam­keppni um aðgang að auð­lindum. Í hratt breyti­legu geopóli­tísku umhverfi er nán­ara sam­starf milli þjóða sem búa á svæð­inu og þeirra þjóða sem deila grund­vall­ar­reglum okkar nauð­syn­legt.“

Yfir­lýs­ingin kveður á um að „hraða vinnu sam­eig­in­legs vinnu­hóps sem hefur það umboð að meta hag­kvæmni sann­gjarns við­skipta­samn­ings milli landa okkar, með það fyrir augum að þróa við­eig­andi ramma fyrir slíkan samn­ing.“

Skjalið byggir á grunni sams konar yfir­lýs­ingar sem Katrín Jak­obs­dóttir und­ir­rit­aði sem for­sæt­is­ráð­herra árið …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár