Matvælastofnun varar við eftir að barn fékk skrúfu í pylsu

SS-pylsur innkallaðar eftir „aðskota­hlut“ í pylsu.

Skrúfan úr pylsunni
Skrúfan úr pyls­unni Inn­köllun er á pylsum frá SS úr fram­leiðslu­lotu 05-273, með síð­asta notk­un­ar­dag 26. októ­ber. Mynd: Facebook

„Hefur einhver lent í því að fá skrúfu í pylsuna sína? Dóttir mín beit næstum í hana en tók hana bara úr og kláraði restina af pylsunni,“ sagði ung móðir í Facebook-hópnum Matartips á laugardag.

Móðirin fékk viðbrögð frá gæða­stjóra SS eftir frásögn hennar. 

Nú hefur Matvæla­stofnun varað við „aðskota­hlut“ í SS-pylsum. „Fyrir­tækið hefur í samráði við Matvæla­stofnun innkallað alla framleiðslu­lotuna í varúðar­skyni,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar í dag.

Pylsurnar voru seldar í Bónus, Krónunni, Hagkaup, Nettó, Kjör­búðinni, Kram­búðinni, 10-11, Extra, Prís, Fjarðar­kaup, Mela­búðinni og öðrum verslunum. Síðasti notkunar dagur er 25. október 2025 og er lotunúmer 05-273.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er nú skárra að fá skrúfu en notaðan plástur í pulsunni, eins og gerðist hérna um árið!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár