Matvælastofnun varar við eftir að barn fékk skrúfu í pylsu

SS-pylsur inn­kall­aðar eftir „aðskota­hlut“ í pylsu.

Skrúfan úr pylsunni
Skrúfan úr pyls­unni Inn­köllun er á pylsum frá SS úr fram­leiðslu­lotu 05-273, með síð­asta notk­un­ar­dag 26. októ­ber. Mynd: Facebook

„Hefur ein­hver lent í því að fá skrúfu í pyls­una sína? Dóttir mín beit næstum í hana en tók hana bara úr og kláraði rest­ina af pyls­unni,“ sagði ung móðir í Facebook-hópnum Mat­ar­tips á laug­ar­dag.

Móðirin fékk við­brögð frá gæða­stjóra SS eftir frá­sögn hennar. 

Nú hefur Mat­væla­stofnun varað við „aðskota­hlut“ í SS-pylsum. „Fyr­ir­tækið hefur í sam­ráði við Mat­væla­stofnun inn­kallað alla fram­leiðslu­lot­una í var­úð­ar­skyni,“ segir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­innar í dag.

Pyls­urnar voru seldar í Bónus, Krónunni, Hagkaup, Nettó, Kjör­búð­inni, Kram­búð­inni, 10-11, Extra, Prís, Fjarð­ar­kaup, Mela­búð­inni og öðrum versl­unum. Síðasti notk­unar dagur er 25. októ­ber 2025 og er lotu­númer 05-273.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er nú skárra að fá skrúfu en notaðan plástur í pulsunni, eins og gerðist hérna um árið!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár