Bann við eilífðarefnum vofir yfir Evrópu

Umhverf­is­stjóri ESB kynnir nið­ur­stöður um eilífð­ar­efni í hennar eigin blóði.

Bann við eilífðarefnum vofir yfir Evrópu
Eilífð­ar­efni í elda­mennsku Algeng leið fyrir eilífð­ar­efni inn í lík­amann er notkun á teflon-húð­uðum pönnum sem kvarn­ast úr. Þá er best að nota ekki málm­á­höld. Mynd: Shutterstock

Umhverf­is­mála­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins sagði í dag að hún hefði greinst með „eitruð“ eilífð­ar­efni í lík­ama sínum eftir að hafa farið í skimun til að vekja athygli á heilsu­fars­á­hætt­unni sem fylgir mann­gerðum meng­un­ar­völdum.

„Borgarar verða í auknum mæli fyrir PFAS-efnum í blóði sínu. Ég er engin und­an­tekn­ing,“ sagði umhverf­is­mála­stjór­inn Jessika Roswall við frétta­menn og birti nið­ur­stöður úr skimun sinni fyrir per- og pólýflú­oralkýl efnum.

„Það sýnir að ég er ekki laus við PFAS og að sum PFAS-efn­anna í blóði mínu eru eitruð fyrir frjó­sem­is­heilsu,“ sagði hún við frétta­menn í fram­haldi af blaða­manna­fundi um aðgerðir Evrópu til að vernda nátt­úr­una og berj­ast gegn lofts­lags­breyt­ingum.

„Þetta styrkti ásetn­ing minn um að halda áfram með vinnu okkar,“ sagði Roswall.

Teymi umhverf­is­mála­stjór­ans sagði að hún hefði greinst með sex af þeim 13 PFAS-efnum sem ski­mað var fyrir, þar á meðal þrjú sem eru talin eitruð fyrir frjó­semi, og í nokkrum til­fellum í hærri styrk en ráð­lagt er.

Roswall fór í skimun í júlí ásamt ráð­herrum víðs vegar að úr Evr­ópu­sam­band­inu til að vekja athygli á mengun af völdum PFAS, sem er hópur til­bú­inna efna sem hrinda frá sér hita, vatni og olíu og eru notuð í við­loð­un­ar­fríar pönnur, bletta­þolin teppi og margar aðrar vörur. Þar á meðal má nefna pít­su­kassa, sæl­gæt­isum­búðir, umbúðir utan um örbylgju­popp, nagla­lakk, dýnu­hlífar, far­síma­skjái, skyndi­bita­pakkn­ingar, regnjakkar og fjöl­margt annað sem hannað er til að hrinda frá sér fitu eða vatni.

PFAS-efni eru oft kölluð „eilífð­ar­efni“ þar sem þau eru afar lengi að brotna niður og eru í auknum mæli tak­mörkuð um allan heim vegna skað­legra áhrifa á heilsu.

Langvar­andi útsetn­ing, jafn­vel fyrir litlu magni, hefur verið tengd við lifr­ar­skemmdir, hátt kól­esteról, skert ónæm­is­við­brögð, lága fæð­ing­ar­þyngd og nokkrar teg­undir krabba­meins.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins áformar að leggja til á næsta ári að banna PFAS í dag­legum neyslu­vörum – allt frá pít­sukössum til fatn­aðar – með und­an­tekn­ingum fyrir ákveðin svið, þar á meðal lækn­inga­tæki.

Fram­kvæmda­stjórnin vinnur einnig að lang­þráðri upp­færslu á reglum ESB um fram­leiðslu og notkun hættu­legra efna – en ferlið hefur taf­ist.

Fyrsta end­ur­skoðun á text­anum, sem kall­ast „REACH“, fékk nei­kvæða umsögn frá innri mats­nefnd – sem bað fram­kvæmda­stjórn­ina um að styrkja til­lögu sína, að sögn Roswall.

Umhverf­is­sam­tök hafa varað við frek­ari töfum á upp­færslu lag­anna, sem hefur verið í vinnslu síðan 2022.

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    The root cause is over population! 8 billion people is too much for the planet! Humanity must shrink by 50-60% in order to survive mid- and long-term!
    -1
    • Yes, but that is only half the truth. The root cause rather too much use of earth's resources. The fact is that the wealthiest 10% of people are responsible for more than half of global carbon emissions, while the poorest 50% contribute only about 10%. This shows that overconsumption by the rich, not population size, is the main driver of pollution!
      0
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Lífhvolfið allt er meira og minna mengað af fjölda eitur- og aðskotaefna. Sú staðreynd er ein af þeim mörgu krísum sem steðja að heiminum. "Polycrisis" (fjölkrísa) er safnheitið sem þessum krísum hefur verið gefið. Útlitið er ekki gott, svo mjög vægt sé til orða tekið, fyrir lífríkið eins og þar er í dag.

    Lífinu sjálfu er vitaskuld engin hætta búin. Það heldur áfram sama hvað maðurinn gerir, en lífríkinu er gríðarleg hætta búin í þeim heimi sem mannkynið hefur búið því með vitfyrringslegu háttalagi sínu. Lífhvolfið er, að mínu mati, á hverfanda hveli í núverandi mynd. Við erum sökudólgarnir.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár