Trump höfðar 15 milljarða dala meiðyrðamál gegn New York Times

Donald Trump hefur höfðað 15 millj­arða dala meið­yrða­mál gegn New York Times og sakað mið­il­inn um ára­tuga­langa ófræg­ing­ar­her­ferð. Hann krefst skaða­bóta og sekt­ar­fjár og hefur einnig stefnt öðrum fjöl­miðlum á þessu ári.

Trump höfðar 15 milljarða dala meiðyrðamál gegn New York Times

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, höfð­aði á mánu­dag 15 millj­arða dala meið­yrða­mál gegn New York Times og sak­aði mið­il­inn um ára­tuga­langa ófræg­ing­ar­her­ferð knúna af „vondum ásetn­ingi“.

Frá því að Trump sneri aftur í Hvíta húsið hefur borið meira á fjand­skap hans í garð fjöl­miðla. Hann hefur ítrekað gert lítið úr blaða­mönnum sem gagn­rýna stjórn hans, tak­markað aðgengi þeirra og höfðað mál gegn þeim.

Times greindi frá því í síð­ustu viku að Trump hefði hótað mál­sókn vegna greina um klúrt afmæliskort sem hann á að hafa ritað kyn­ferð­is­brota­mann­inum Jeffrey Epstein. For­set­inn hefur neitað því að hafa skrifað kortið.

„The New York Times hefur um of fengið að ljúga, smána og rægja mig, og því er nú lokið, NÚNA!“ skrif­aði hann á Truth Social.

Í stefn­unni eru einnig nefndir fjórir blaða­menn Times og útgef­and­inn Penguin Random House, sam­kvæmt 85 blað­síðna skjali sem lagt var fram hjá alrík­is­dóm­stólnum í mið­hluta Flórída.

Í mál­inu er vísað til þriggja greina sem birt­ust frá sept­em­ber til októ­ber á síð­asta ári, auk bókar sem blaða­menn­irnir Russ Buettner og Susanne Craig gáfu út á sama tíma.

„Bókin og grein­arnar eru hluti af ára­tuga­langri her­ferð New York Times um vís­vit­andi og ill­gjarnan róg­burð gegn Trump for­seta,“ segir í stefn­unni sem er dag­sett mánu­dag.

„The Times hefur orðið að helsta, og óaf­sak­andi, áróð­ursmiðli lyga gegn Trump for­seta í hefð­bundnum fjöl­miðlum.“

New York Times hafði ekki svarað fyr­ir­spurn AFP um málið í morgun.

Í stefn­unni segir að Times hafi vís­vit­andi vikið frá hefð­bundnum vinnu­brögðum og fag­legum við­miðum blaða­mennsku í umfjöllun um hann, meðal ann­ars með því að skrifa greinar „á eins and­stæðan og nei­kvæðan hátt og hægt er“ og veita honum ekki nægj­an­legan tíma til and­svara.

„Í ein­földu máli, stefndu hata for­seta Trump á til­efn­is­laus­ann og sjúkan hátt,“ segir í skjal­inu.

Þess er kraf­ist að Trump skuli fá að minnsta kosti 15 millj­arða dala í skaða­bætur og við­bót­ar­sektir „sem ákveðnar verða við rétt­ar­höld.“

Í júlí stefndi Trump fjöl­miðla­mó­gúlnum Rupert Murdoch og Wall Street Journal fyrir að minnsta kosti 10 millj­arða dala eftir að blaðið greindi frá til­vist bókar og bréfs sem hann átti að hafa sent Epstein.

Sama mánuð komst Trump að sam­komu­lagi við Paramount um greiðslu 16 millj­óna dala vegna mál­sóknar um kosn­inga­um­fjöllun í 60 Minutes, flagg­skipi frétta­skýr­inga CBS News. Hann hafði haldið því fram að þátt­ur­inn hefði blekkj­andi klippt við­tal við kosn­inga­keppi­naut hans árið 2024, Kamölu Harris, henni í hag.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Fasisminn virðist vera að taka yfir í Bandaríkjunum. McCarthy-isminn er kominn aftur, verri en nokkru sinni fyrr.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár