Samræma verklagsreglur lögreglu um hatursglæpi gegn hinsegin fólki

Þessi sam­ræm­ing er ein af 34 aðgerðum sem lagðar eru til í drögum að nýrri aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í mál­efnum hinsegin fólks. Markmið aðgerð­ar­innar verði að tryggja sýni­lega, sam­ræmda og rétt­inda­mið­aða með­ferð hat­urs­glæpa gagn­vart hinsegin fólki.

Samræma verklagsreglur lögreglu um hatursglæpi gegn hinsegin fólki

Þróun á sam­ræmdum verk­lags­reglum innan lög­regl­unnar um vinnu­lag og skrán­ingu hat­urs­glæpa gagn­vart hinsegin fólki er meðal aðgerða sem nefndar eru í drögum að nýrri aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í mál­efnum hinsegin fólks á árunum 2026-2029. Þetta verk­efni verði unnið í sam­starfi við Samtökin '78, jafn­réttis­nefnd og þjón­ustu­svið Embættis rík­is­lög­reglu­stjóra. Sérstök áhersla verði lögð á grein­ingu gagna, notkun hug­taka og rétt við­mót í máls­með­ferð. Markmið aðgerð­ar­innar verði að tryggja sýni­lega, sam­ræmda og rétt­inda­mið­aða með­ferð hat­urs­glæpa gagn­vart hinsegin fólki.

Framhald af fyrri áætlun

Aðgerða­á­ætl­unin er önnur aðgerða­á­ætl­unin stjórn­valda í mál­efnum hinsegin fólks og tekur hún gildi um næstu ára­mót. Í aðgerða­á­ætl­un­in­inni eru 34 aðgerðir, meðal ann­ars áform um rétt­ar­bætur, stuðn­ing, rann­sóknir, fræðslu og vit­und­ar­vakn­ingu í þágu hinsegin fólks á öllum aldri. 

Þessi áætlun tekur við af fyrstu aðgerða­á­ætlun í mál­efnum hinsegin fólks fyrir árin 2022 til 2025. Þær breyt­ingar sem hún stuðl­aði að eru til að mynda að hat­urs­orð­ræða á grund­velli kynein­kenna var gerð refsi­verð og lagður var grunnur að afnámi banns við blóð­gjöfum karla sem stunda kyn­líf með öðrum körlum með breyt­ingu á reglu­gerð um blóð­skimanir. Því ferli er fram­haldið með aðgerð um afnám banns­ins í þess­ari aðgerða­á­ætlun. 

34 aðgerðir nú samanborið við 21 áður

Ný aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í mál­efnum hinsegin fólks felur í sér lýs­ingu á stefnu stjórn­valda á mál­efna­sviði hinsegin mála, beinar aðgerðir til að varpa ljósi á stöðu mála­flokks­ins og/eða stuðla að fram­förum á sviði hinsegin mál­efna. Aðgerðir innan aðgerða­á­ætl­un­ar­innar eru tals­vert fleiri en innan fyrri aðgerða­á­ætl­unar í mál­efnum hinsegin fólks eða 34 sam­an­borið við 21 í fyrstu aðgerða­á­ætl­un­inni. Öll ráðu­neyti nema eitt bera ábyrgð á einni eða fleiri aðgerðum í áætl­un­inni og fjöl­margar und­ir­stofn­anir taka þátt í fram­kvæmd þeirra.

Mikilvægt að Íslendingar beiti sér gegn  bakslaginu

Áætlunin hefur verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Þar segir að með aðgerðum í mál­efnum hinsegin fólks til áranna 2026–2029 leggi stjórn­völd sig fram um að stuðla að bættum rétt­indum, aðstæðum, við­ur­kenn­ingu og þátt­töku hinsegin fólks í sam­fé­lag­inu. Mik­il­vægt sé að þjóðir eins og Íslend­ingar beiti sér gegn bakslagi á sviði hinsegin mann­rétt­inda og sæki fram bæði á heima­velli og út á við.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár