Borgin áætlar 260 milljóna kostnað vegna borgarstjórnarkosninganna

Gert er ráð fyrir að Reykja­vík­ur­borg ráði hátt í 200 starfs­menn til að starfa við kosn­ing­arnar og að borg­ar­ráð skipi um 500 full­trúa til setu í hverfis- og und­ir­kjör­stjórnum.

Borgin áætlar 260 milljóna kostnað vegna borgarstjórnarkosninganna
Borg­ar­ráð sam­þykkti að vísa til afgreiðslu borg­ar­stjórnar að þókn­anir fyrir störf í kjör­stjórnum í Reykja­vík við kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar verði óbreyttar frá alþing­is­kosn­ingum 2024.

Sveita­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram laug­ar­dag­inn 16. maí og er víða haf­inn und­ir­bún­ingur vegna þeirra. Á síð­asta fundi borg­ar­ráðs Reykja­víkur var sam­þykkt erindi frá skrif­stofu borg­ar­stjórnar þar sem óskað var eftir því að ráðið feli sviðum borg­ar­innar að hefja vinnu við þau verk­efni sem tengj­ast kosn­ing­unum í borg­inni.

Í Reykja­vík verða kosnir 23 borg­ar­full­trúar til fjög­urra ára sem allir munu taka sæti í borg­ar­stjórn. Eftir hverjar borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar kýs borg­ar­stjórn þrjá full­trúa í yfir­kjör­stjórn Reykja­víkur sem hefur yfir­um­sjón með fram­kvæmd kosn­inga í Reykja­vík.

Þann 7. júní 2022 kaus borg­ar­stjórn þau Evu Bryndísi Helga­dóttur, Tómas Hrafn Sveins­son og Ara Karlsson í yfir­kjör­stjórn Reykja­víkur og hefur skrif­stofa borg­ar­stjórnar starfað með yfir­kjör­stjórn við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga ásamt fjöl­mörgum starfs­mönnum sveit­ar­fé­lags­ins og með aðkomu flestra sviða Reykja­vík­ur­borgar. 

Sambærilegur kostnaður og 2024

Áætlaður kostn­aður borg­ar­innar við fram­kvæmd borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga 2026 er að mestu sam­bæri­legur kostn­aði við fram­kvæmd alþing­is­kosn­inga á árinu 2024 að teknu til­liti til stærra hlut­verks sveit­ar­fé­lags­ins við fram­kvæmd borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga sam­kvæmt kosn­inga­lögum.

Samkvæmt erindi skrif­stofu borg­ar­stjórnar má gera ráð fyrir því að heild­ar­kostn­aður borg­ar­innar verði um 260 millj­ónir króna, og er fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviði falið að gera ráð fyrir þeim kostn­aði við gerð fjár­hags­á­ætl­unar Reykja­víkur 2026. Sviðinu er einnig falið að áætla fyrir þeim kostn­aði sem fellur á sveit­ar­fé­lagið við geymslu kjör­gagna milli kosn­inga. Þá er óskað eftir að svið­inu verði falið að sjá til þess að upp­gjöri kosn­ing­anna milli sviða Reykja­vík­ur­borgar verði lokið eigi síðar en fjórum mán­uðum eftir kjör­dag. 

Umhverfis- og skipu­lags­svið fer með lyk­il­hlut­verk við fram­kvæmd kosn­inga í Reykja­vík en skrif­stofa fram­kvæmda og við­halds setur upp alla 24 kjör­stað­ina, þar með taldar utan­húss­merk­ingar og skilti. Sviðið setur upp og tekur niður taln­ing­ar­stað og flytur atkvæði með full­trúum yfir­kjör­stjórnar í geymslur að taln­ingu lok­inni. Áætlað er að 18 kjör­staðir af 24 verði stað­settir í skóla­hús­næði. Einnig er gert ráð fyrir að kjör­staðir verði í Borg­ar­bóka­safn­inu í Kringl­unni og á Kjar­vals­stöðum. 

Þóknanir fyrir störf í kjörstjórnum

Gert er ráð fyrir að skrif­stofa borg­ar­stjórnar, fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar, ráði hátt í 200 starfs­menn til að starfa við kosn­ing­arnar og að borg­ar­ráð skipi um 500 full­trúa til setu í hverfis- og und­ir­kjör­stjórnum. 

Borg­ar­ráð sam­þykkti að vísa til afgreiðslu borg­ar­stjórnar að þókn­anir fyrir störf í kjör­stjórnum í Reykja­vík við kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar verði óbreyttar frá alþing­is­kosn­ingum 2024 og verði því 136 þús­und krónur fyrir setu í hverfis­kjör­stjórn og 82 þús­und krónur fyrir setu í und­ir­kjör­stjórn. 

Allir kjör­staðir í Reykja­vík, yfir­kjör­stjórn, síma­ver í Ráðhúsi og taln­ing­ar­staður þurfa tíma­bund­inn tölvu­búnað á kjör­dag. Þá hefur verið rek­inn vefur með leið­bein­ingum til kjós­enda og upp­lýs­ingum um kjör­sókn. 

Öllum sviðum sem koma að fram­kvæmd kosn­ing­anna ætlað að tryggja að útgefnir reikn­ingar og hver sá kostn­aður sem til fellur upp­fylli eðli­legar kröfur um skýr­leika og góða með­ferð á ópin­beru fé.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár