Gæsluvarðhald yfir leikskólastarfsmanninum framlengt

Gæslu­varð­hald yfir karl­manni sem er grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn barni á leik­skól­anum Múlaborg hefur verið fram­lengt til 24. sept­em­ber.

Fallist var á kröfu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um áfram­hald­andi gæslu­varð­hald yfir karl­manni sem er í haldi vegna gruns um kyn­ferð­is­brot gegn barni á leik­skól­anum Múlaborg í Reykja­vík. Að óbreyttu hefði varð­haldið runnið út í dag en dóm­ari úrskurð­aði að mað­ur­inn skyldi sæta gæslu­varð­haldi í fjórar vikur til við­bótar, til 24. sept­em­ber. 

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu miðar rann­sókn máls­ins vel og enn­fremur er verið að skoða aðrar ábend­ingar sem emb­ætt­inu hafa borist. Lög­reglan seg­ist ekki geta veitt frek­ari upp­lýs­ingar að svo stöddu.

Maðurinn, sem er rúm­lega tví­tugur, var hand­tek­inn þriðju­dag­inn 12. sept­em­ber eftir að þá fyrr um dag­inn hafi lög­reglu borist ábend­ing um kyn­ferð­is­brot gegn barni á leik­skól­anum, og dag­inn eftir var hann úrskurð­aður í gæslu­varð­hald. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár