Lúkas þóttist vera unglingsstúlkan Birta á Snapchat

Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingv­ars­son hafa breytt afstöðu sinni í Gufu­nes­mál­inu og ját­uðu á sig frels­is­svipt­ingu og rán við aðal­með­ferð máls­ins í morgun. Alls eru fimm ákærð vegna mann­dráps, eða fyrir að vera aðilar að því, en karl­maður á sjö­tugs­aldri lést eftir hrotta­lega lík­ams­árás í Gufunesi í vor.

Lúkas þóttist vera unglingsstúlkan Birta á Snapchat
Lúkas Geir leiddur inn í Hér­aðs­dóm Suð­ur­lands í morgun. Mynd: Víkingur

Þrír sak­born­ingar í Gufu­nes­mál­inu mættu í Hér­aðs­dóm Suð­ur­lands í morgun þar sem aðal­með­ferð í mál­inu fer fram; þeir Stefán Blackburn, Lúkas Geir Ingv­ars­son og Matthías Björn Erlings­son. Þeir þrír eru ákærðir fyrir mann­dráp en tvö önnur –karl og kona sem koma síðar fyrir dóm­inn – eru ákærð fyrir aðild að mann­dráp­inu. Þrjú þeirra ákærðu eru undir tví­tugu.

Stefán og Lúkas hafa breytt afstöðu sinni til ákærunnar og ját­uðu fyrir dómi í morgun á sig frels­is­svipt­ingu og rán, auk þess sem Stefán gekkst við til­raun til fjár­kúg­unar. 

Mikill fjöldi fjöl­miðla­fólks; blaða­manna, ljós­mynd­ara og töku­manna, var mættur í þing­húsið á Selfossi í morgun og þurftu ein­hverjir frá að hverfa vegna pláss­leysis í dóm­salnum. 

Málið snýst um frels­is­svipt­ingu, fjár­kúgun og mann­dráp en 65 ára gam­all karl­maður, Hjör­leifur Haukur Guð­munds­son, fannst þungt hald­inn í Gufunesi eftir alvar­lega lík­ams­árás og lést eftir að hann var fluttur á sjúkra­hús.

Stefán Blackburn á leið inn í Hér­aðs­dóm Suð­ur­lands í morgun þar sem hann gaf skýrslu.

Stefán var fyrstur til að gefa skýrslu í morgun. Hann sagði málið hafa farið algjör­lega úr bönd­unum og hann hefði aldrei reiknað með því að mað­ur­inn myndi deyja. Sjálfur hafi aðeins tekið þátt í umræddum brotum til að fá pen­inga.

Lýsti Stefán því að Lúkas Geir hefði skipu­lagt aðgerð­ina. Hann hefði haft sam­band við sig til að aðstoða við að hafa fé af karl­manni sem Lúkas hafði verið í sam­bandi við í gegnum Snapchat. Þar hefði Lúkas þóst vera stúlka undir lög­aldri sem hefði áhuga á að hitta Hjörleif. Sá hefði haldið að hann væri að fara að hitta stúlk­una þetta kvöld til að gera kyn­ferð­is­lega hluti. 

Snemma við rann­sókn máls­ins var greint frá því að mað­ur­inn glímdi við heila­bilun. 

19 ára stúlka er ákærð í mál­inu fyrir aðild að frels­is­svipt­ingu og ráni, en hún hafi lokkað mann­inn út í bíl þar sem sam­verka­menn hennar biðu. Þau hafi farið á bílnum til Þor­láks­hafnar þar sem mað­ur­inn var búsettur og sótt hann þangað.

Sagði Lúkas vera höfuðpaurinn

„Lúkas pitchaði þetta við mig. Ég kem bara inn í þetta sem dri­ver,“ hefur RÚV eftir Stefáni við aðal­með­ferð­ina.

Stefán sagði að aðgerðin hefði verið skipu­lögð af Lúkasi, hans aðkoma hafi aðeins verið eftir að karl­mað­ur­inn var kom­inn inn í bíl­inn hjá þeim. 

Þegar verj­andi Stefáns spurði á hvaða for­sendum hefði verið haft sam­band við mann­inn sagði hann: „Það er ein­föld ástæða fyrir því. Þarna verður til ákveðin skömm hjá ger­anda. Þeir eru til í að borga fyrir þögn­ina, þeir vilja ekk­ert að fólk viti að þeir vilja sofa hjá stelpum undir lög­aldri,“ hafði RÚV eftir Stefáni.

DV hefur eftir Lúkasi, sem næstur gaf skýrslu, að hann hafi þóst vera ung­lings­stúlka að nafni Birta þegar hann var í sam­bandi við karl­mann­inn á sam­skipta­miðl­inum Snapchat. Lúkas sagð­ist hafa boðið Stefáni að vera með í aðgerð­inni, auk þess sem hann hafi beðið stúlk­una að hringja í karl­mann­inn til að mæla sér mót við hann.

Klæddu úr öllu nema nærbuxum

Þeir Lúkas og Stefán hafi verið grímu­klæddir þegar mað­ur­inn kom í bíl­inn. Þeir voru á Teslu sem síðan varð raf­magns­laus og þeir hafi þá haft sam­band við Matthías sem hafi haft fullan áhuga á að aðstoða þá við brotið.

Lúkas sagði þá alla þrjá tekið þátt í að mis­þyrma mann­inum, í því skyni að fá hann til að láta pen­inga af hendi. Maðurinn sagð­ist hins vegar ekki hafa aðgang að net­bank­anum sínum heldur væri það í höndum eig­in­konu hans. Þeir hafi síðan fundið bréf­miða með tölu­stöfum í veski manns­ins og getað nýtt þá til að kom­ast inn í net­banka manns­ins. Þannig hafi þeir í hans nafni tekið þriggja millj­óna króna lán í gegnum app Arion banka, og milli­fært þá upp­hæð inn á reikn­ing pilts sem er ákærður í mál­inu fyrir pen­inga­þvætti.

Á end­anum hafi þeir síðan ákveðið að skilja mann­inn eftir í Gufunesi  þar sem þeir töldu að hann myndi finn­ast, en tóku hann úr öllum fötum nema nær­buxum til að lífs­sýni þeirra myndu ekki finn­ast á fatn­aði manns­ins.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár