Ólst upp við listamannslíf og laus við kassahugsun

Þórdís Hólm Filips­dóttir er dóttir rithöfundar og myndlistar­manns og í uppeldinu skiptu orð miklu máli. Skrif eru hluti af lífinu, sem er eins og myndrænt ljóð, þar sem skiptast á skin og skúrir. Áhrif seinni heims­styrjaldarinnar mótuðu fjölskyldu­söguna, hún leitaði ung út í heim og flutti seinna með ungbarn og unglings­dóttur til Afríku. Strax í æsku lærði hún að lifa utan rammans og stundar nú heild­rænar lækningar.

Þórdís Hólm Filips­dóttir er barn lista­manna. Móðir hennar er Vigdís Gríms­dóttir rithöfundur og faðir hennar er Filip Woolford, myndlistar­maður og skipa­smiður. Hún á albróður sem er fimm árum eldri. Og hálf­bróður í gegnum föður.

Þórdís var þriggja ára þegar fjöl­skyldan flutti til Danmerkur þar sem móðir hennar þreif Den Danske Bank á daginn og skrifaði á nóttunni og faðir hennar var þar í myndlistar­námi. Þau bjuggu í tvö ár í kóngsins København.

Svo fluttu þau heim og bjuggu í íbúð við Njálsgötu, þar sem þetta viðtal er tekið. Þórdís býr núna á æsku­heimili sínu með börnunum sínum tveimur. Hún var fimm ára og stóð við dyrnar fram á gang þegar móðir hennar tilkynnti henni að pabbi hennar myndi flytja til móður sinnar. 

„Ég hafði ekki tekið eftir neinu en þannig var það. Ég man að mér fannst þetta vera svolítið leiðinlegt, en þegar maður er barn …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár