Ný framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins hefur sent tölvupóst á félaga þar sem þeir eru hvattir til að skrá sig í félagið Vorstjörnuna og taka þátt á boðuðum aðalfundi þess í dag. Jafnframt er því haldið fram að aðalfundurinn sé ólöglegur.
Deilur hafa staðið á milli nýrrar stjórnar flokksins sem kosin var á aðalfundi 24. maí og fráfarandi stjórnar með Gunnar Smára Egilsson, stofnanda flokksins og ritstjóra Samstöðvarinnar, í farabroddi. Ný stjórn hefur kært þrjá aðila úr fyrrverandi forystu flokksins og lýsir ástæðunum fyrir því í tölvupóstinum.
Deilurnar snúast að miklu leyti um Vorstjörnuna, sjálfstætt félag með eigin kennitölu sem hefur fengið helming þeirra framlaga sem ríkissjóður hefur greitt Sósíalistaflokknum undanfarin ár og öll framlög Reykjavíkurborgar til flokksins. Félagið er leigutaki á húsnæði flokksins við Bolholt 6, en fjölmiðillinn Samstöðin, sem Gunnar Smári stýrir, deilir einnig húsnæðinu sem Vorstjarnan er skrifuð fyrir. Móðurfélag Samstöðvarinnar, Alþýðufélagið, hefur fengið hinn helming framlaga ríkissjóðs til flokksins.
Félagið Vorstjarnan hefur aldrei haldið aðalfund og félagatalið er á huldu eftir að vefur þess var yfirtekinn í júní. Gjaldkeri félagsins var í framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins sem felld var á aðalfundi í maí en hefur aldrei verið formlega kosin í stjórn Vorstjörnunnar. Aðalfundur félagsins á að fara fram kl. 17:30 í dag og hefur nýtt félagatal verið stofnað sem allir geta skráð sig á.
Nýja framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins sendi tölvupóst til félagsmanna á föstudagskvöld og sagði stjórn Vorstjörnunnar hafa lagt fram kröfur á flokkinn upp á annan tug milljóna og krafist þess að flokkurinn mundi yfirgefa húsnæðið fyrir miðjan júlí.
„Nú hefur verið fjallað um kærur sem lagðar hafa verið fram í fjölmiðlum,“ segir í tölvupóstinum sem sendur var út í morgun. „Framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins kaus að greina ekki opinberlega frá því né nafngreina þrjá aðila úr fyrrverandi forystu sem hafa verið kærðir, vegna rökstudds gruns og í einu tilviki játningu, fyrir mismunandi brot á lögum. Það var gert að meðvituðu ráði til að hlífa því fólki við fjölmiðlaathygli þrátt fyrir aðstæður.“
Segja fyrrverandi gjaldkera hafa millifært 3 milljónir

Í tölvupóstinum segir að kært hafi verið eftir að samningarviðræður lögfræðinga flokksins og Vorstjörnunnar hafi farið í þrot. „Framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins ýtti hart á eftir því að ná málamiðlun til sátta, sem fól meðal annars í sér að engar kærur yrði lagðar fram. Því var hafnað og óforskammaðar kröfur voru sendar til baka. Vísa á flokknum úr húsnæðinu, rukka á flokkinn um markaðsverð leigu afturreiknað til ára og krafist er millifærslu helmings ríkisstyrks flokksins til Vorstjörnunnar þrátt fyrir að sú stefna hafi verið gerð afturreka með sigri nýrrar forystu á aðalfundi flokksins í lok maí, sem barðist meðal annars fyrir því að ríkisstyrk flokksins yrði varið í innra uppbyggingarstarf. Aðilarnir sem voru kærðir kusu svo sjálf að opinbera sig og fóru með málið í fjölmiðla þar sem farið var með rangt mál um sakargiftir,“ segir í póstinum.
Þá kemur fram hverjir hafi verið kærðir og af hvaða ástæðum. „Fyrrverandi gjaldkeri og stjórnarmaður kosningastjórnar, Guðmundur Auðunsson, hefur játað og lýst yfir stolti að hafa millifært 3 milljónir króna af reikningi kosningastjórnar. Þessa upphæð millifærði Guðmundur sem 1 milljón króna á dag, þrjá daga í röð (hámarksúttekt á dag), samtals 3 milljónir króna beint inn á reikning Vorstjörnunnar nú í byrjun júní. Þetta gerði hann þrátt fyrir að hafa ekki hlotið endurkjör í stjórnarsæti á aðalfundi Sósíalistaflokksins 24. maí síðastliðinn. Hann hafði því ekkert umboð né heimild til að framkvæma þá millifærslu og gerði það því ólöglega.“
„Guðmundur Auðunsson, hefur játað og lýst yfir stolti að hafa millifært 3 milljónir króna af reikningi kosningastjórnar“
Fyrrverandi varaformaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins og gjaldkeri Vorstjörnunnar, sem þó situr ekki í stjórn félagsins, Sara Stef Hildardóttir, hefur einnig verið kærð. „Hún er ein skuggastjórnenda Vorstjörnunnar og tók þar við sem gjaldkeri þrátt fyrir að sitja ekki í stjórn félagsins. Á þeim tíma hefur hún greitt sjálfri sér laun í verktakagreiðslum sem húsvörður. Fyrir þeirri ákvörðun liggja engin gögn; engar fundargerðir, engir samningar og var sú ákvörðun hvergi rædd á vettvangi stjórnar, hvorki framkvæmdastjórnar flokksins né löglegrar stjórnar Vorstjörnunnar enda hefur sú stjórn aldrei haldið stjórnarfund. Sara var því kærð fyrir fjárdrátt enda er rökstuddur grunur á því þegar að manneskja skammtar sjálfri sér laun án þess að hafa neitt umboð til þess né að löglega tekin ákvörðun liggi þar fyrir.“
Segja fundinn ólöglegan en hvetja til mætingar
Loks kemur fram að formaður Vorstjörnunnar frá stofnun, Védís Guðjónsdóttir, hafi verið kærð fyrir rökstuddan grun um ólögmæta meðhöndlun á stjórn félagsins. „[H]ún hefur leyft aðilum sem hafa ekki verið kjörnir í stjórn félagsins, skuggastjórnendum, að fara með ákvörðunarvald yfir fjármunum félagsins, falsað fundargerðir, skrifað undir ólögmæta leigusamninga án aðkomu annarra stjórnarmeðlima og hunsað algerlega beiðnir um að halda stjórnarfundi með löglega skráðum stjórnarmeðlimum. Þá hefur hún boðað þennan ólöglega aðalfund Vorstjörnunnar sem haldinn verður á mánudaginn 30. júní án þess að hafa boðað stjórnarfund í öll þau ár sem félagið hefur verið til og án þess að bera það undir aðra stjórnarmeðlimi.“
Loks hvetur nýja framkvæmdastjórnin flokksmenn til að mæta í Boltholt 6 kl. 17:30 í dag til að sækja aðalfund Vorstjörnunnar. Klukkutíma fyrr verður upplýsingafundur framkvæmdastjórnarinnar á sama stað.
„Nýkjörnar stjórnir Sósíalistaflokksins vilja alls ekki tortíma þessu félagi eins og ranglega hefur verið haldið fram af þessum sömu aðilum,“ segir loks í póstinum. „Þvert á móti er þess krafist að fundurinn verði kosinn ólöglegur og honum frestað þar til löglega skráðir stjórnarmeðlimir Vorstjörnunnar, Védís Guðjónsdóttir og Sigrún Unnsteinsdóttir, haldi löglegan stjórnarfund sín á milli og í kjölfar þess boði til löglegs aðalfundar eins og á að gera samkvæmt lögum.“
Segir Samstöðina þurfa að loka í kvöld
Gunnar Smári hvetur fólk til mætingar í fundinn í færslu á Facebook í dag. „Nú vill svo til að fólkið sem tók Sósíalistaflokkinn yfir á síðasta aðalfundi vill líka taka Vorstjörnuna yfir, komast yfir eigur hennar og færa þar inn í flokkinn svo ný forysta geti ráðstafað þeim í eigin þágu. Þetta er gegn samþykktum Vorstjörnunnar, sem er ætlað að starfa með grasrótarhreyfingum,“ skrifar hann.
„...skipulögð aðgerð fámennrar klíku til að komast yfir fé og eignir þessarar hreyfingar“
Hann sakar nýja framkvæmdastjórn flokksins um að hafa náð völdum með smölun í flokkinn og rógsherferð „[s]em er skipulögð aðgerð fámennrar klíku til að komast yfir fé og eignir þessarar hreyfingar til að byggja undir persónulegan og pólitískan metnað fámennrar klíku.“
Gunnar Smári segir Samstöðina munu þurfa að loka í kvöld ef hún missir húsnæði sitt, nái nýja framkvæmdastjórnin völdum í Vorstjörninni. „Og fara gegn Sönnu, sem tengist Vorstjörnunni sterkum böndum,“ skrifar hann. „Ekki bara vegna þess að hún hefur persónulega lagt til Vorstjörnunnar líklega um 9 mkr. á liðnum árum, heldur vegna þess að Vorstjörnunni er ætlað að ýta undir starf eins og það sem Sanna spratt upp úr og varð hennar leið inn í stjórnmálin.“
Athugasemdir