Meira þarf til en að fjölga heilbrigðisstarfsfólki

Hlutfall aldr­aðra vex hratt, sjúk­dóms­byrði eykst og mögu­leikar á lækn­ingu sömu­leiðis. Ein stærsta áskorun heil­brigð­is­þjón­ust­unnar er að tryggja mönnun. Yfirvöld hafa sett sér skil­greind mark­mið þegar kemur að mönn­un­ar­stefnu í heil­brigð­is­þjón­ustu til árs­ins 2030.

Meira þarf til en að fjölga heilbrigðisstarfsfólki
Ekki er raun­hæft að mæta áskor­unum í heil­brigð­is­kerf­inu ein­göngu með því að fjölga heil­brigð­is­starfs­fólki. Fleira þarf að koma til. Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkellsson

Hlutfall aldr­aðra vex hratt, sjúk­dóms­byrði eykst og mögu­leikar á lækn­ingu sömu­leiðis. Ekki er raun­hæft að mæta þess­ari áskorun ein­göngu með því að fjölga heil­brigð­is­starfs­fólki. Þetta kemur fram í nýrri mönn­un­ar­stefnu í heil­brigð­is­þjón­ustu til árs­ins 2030.

Mönn­un­ar­stefnan byggir á heil­brigð­is­stefnu til árs­ins 2030 en fjallar með nán­ari hætti um mönnun í heil­brigð­is­þjón­ustu. Í heil­brigð­is­stefn­unni kemur meðal ann­ars fram að und­an­farin ár hafi verið vand­kvæðum bundið að manna stöðu­gildi og því sé aðkallandi að leita leiða til að fjölga heil­brigð­is­starfs­fólki. Í kafla heil­brigð­is­stefn­unnar sem ber heitið Fólkið í for­grunni kemur fram að til að tryggja megi sem best gæði þjón­ust­unnar, öryggi sjúk­linga og skyn­sam­lega notkun fjár­muna, þurfi fjöldi starfs­fólks að vera í sam­ræmi við umfang og eðli þjón­ust­unnar og aðstæður hverju sinni. 

Greining og ráðstafanir

Markmið mönn­un­ar­stefn­unnar eru meðal ann­ars þau að árið 2030 hafi mann­afla­þörf heil­brigð­is­kerf­is­ins verið greind og við­eig­andi ráð­staf­anir gerðar af hálfu rík­is­valds­ins til að tryggja mönnun í heil­brigð­is­þjón­ust­unni. Þá er í fjár­mála­á­ætlun hins opin­bera fyrir árin 2024 2028 tekið fram að ein stærsta áskorun í heil­brigð­is­þjón­ustu sé mönnun og er þar lögð áhersla á að brugð­ist sé við því.

Þá kemur fram að heil­brigð­is­starfs­fólki hefur fjölgað og enn stefnir í tals­verða fjölgun meðal hjúkr­un­ar­fræð­inga, lækna og fleiri heil­brigð­is­stétta vegna fjölg­unar á náms­plássum hér á landi. Óvíst er hvert hlut­fall starf­andi fólks gagn­vart fjölda aldr­aðra hér á landi verður á næstu ára­tugum þar sem margir flytja til Íslands frá öðrum löndum til að starfa hér á landi.

Þróun, nýsköpun og tækni

Til að ná nauð­syn­legri mönnun í heil­brigð­is­þjón­ust­unni til fram­tíðar þurfi bæði að tryggja nægt fram­boð heil­brigð­is­starfs­fólks og horfa til allra þeirra þátta sem hafa áhrif á mönn­un­ar­þörf. Það eru þættir eins og end­ur­skoðun á skipu­lagi við veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu, skyn­sam­leg verka­skipt­ing milli heil­brigð­is­stétta og sam­vinna ýmissa fag­hópa, auk­inn sveigj­an­leiki, þróun raf­rænnar skrán­ingar, nýsköpun og tækni­fram­farir. 

Markmið mönn­un­ar­stefnu í heil­brigð­is­þjón­ustu er einnig að tryggja sjálf­bærni á Íslandi í mönnun heil­brigð­is­þjón­ustu til fram­tíðar, sem og að byggja upp öfl­ugan og vel mennt­aðan hóp heil­brigð­is­starfs­fólks með starfs­leyfi emb­ættis land­læknis og veita heil­brigð­is­þjón­ustu sem upp­fyllir mark­mið laga, um gæði og öryggi sjúk­linga.

Lögð er sér­stök áhersla á að nám heil­brigð­is­starfs­fólks á Íslandi þró­ist sífellt í sam­ræmi við fram­farir í vís­indum og áhersla sé lögð á gæði klínískrar kennslu á heil­brigð­is­stofn­unum. Áfram þurfi að byggja upp öfl­uga þekk­ingu og reynslu í klínískri þjálfun meðal kenn­ara, leið­bein­enda og hand­leið­ara á heil­brigð­is­stofn­unum og í hermi­s­etrum. Varðandi fram­boð á fag- og sér­fræði­menntun heil­brigð­is­stétta hér á landi skal lögð áhersla á að það nám sem hér verður boðið upp á upp­fylli fag­legar alþjóð­legar kröfur. Loks skuli lögð áhersla á form­legt sam­starf við nágranna­þjóðir um aðgengi að fag- og sér­fræði­menntun sem ekki er raun­hæft að bjóða upp á hér­lendis sökum fámennis.

Mönn­un­ar­stefn­una í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár