Fjölgjun Covid-smita minnir á fyrri bylgju

Ný bylgja Covid-19 smita gæti verið í upp­sigl­ingu að mati sótt­varn­ar­læknis en lítið er um alvar­leg veik­indi. Líklega verði aðeins þeim yfir átt­ræðu eða með ákveð­inn heilsu­far­s­vanda ráð­lagt að fara í bólu­setn­ingu.

Fjölgjun Covid-smita minnir á fyrri bylgju
Bólu­setn­ing gegn Covid Lítið hefur verið um alvar­leg veik­indi þrátt fyrir fjölgun smita, jafn­vel meðal aldr­aðra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sótt­varna­læknir mun lík­lega þrengja við­mið um þá mark­hópa sem ráð­legt er að fara í bólu­setn­ingu gegn Covid-19 með nýjum leið­bein­ingum í sumar. Fleiri smit hafa greinst und­an­farnar vikur en mán­uð­ina á undan.

„Seinni part maí varð vart við væga aukn­ingu á Covid-19 grein­ingum hér­lendis,“ segir í til­kynn­ingu sótt­varn­ar­læknis í dag. „Í viku 20 (12.–18. maí) greindust 14 ein­stak­lingar. Í viku 21 greindust 24 ein­stak­lingar. Frá ára­mótum og þar til nú höfðu ekki fleiri en 10 ein­stak­lingar greinst á einni viku.“

Grein­ing­arnar voru gerðar með PCR prófi á veiru­fræði­deildum Land­spít­ala og Sjúkra­húss­ins á Akureyri og eru fyrst og fremst frá bráða­mót­tökum spít­al­anna og inniliggj­andi sjúk­lingum en minna frá heilsu­gæslu.

„Mynstrið nú minnir á vorið 2024 sem var upp­haf smit­bylgju í júlí og ágúst síð­ast­liðnum. Þá urðu flest smit í viku 28 (8.–14. júlí) þegar 70 ein­stak­lingar greindust. Of snemmt er þó að segja til um hvort sam­bæri­leg bylgja er í upp­sigl­ingu en það er hugs­an­legt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

„Lítið bar á alvar­legum veik­indum, jafn­vel meðal aldr­aðra ein­stak­linga“

Nýjustu gögn frá Sótt­varna­stofnun Evrópu benda ekki til aukn­ingar á Covid-19 í ríkjum EES. „Þar sem flest sýni sem send eru í Covid-19 rann­sókn eru tekin á sjúkra­húsum (bráða­mót­töku, legu­deildum) þá helst fjöldi grein­inga í hendur við fjölda inniliggj­andi á spít­ala með Covid-19,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Gögn frá Land­spít­ala sýna að inniliggj­andi ein­stak­lingum með Covid-19 grein­ingu fjölg­aði seinnipart maí í sam­ræmi við ofan­greint. Flestir þess­ara ein­stak­linga til­heyrðu hóp­sýk­ingu á spít­al­anum meðal sjúk­linga og starfs­fólks. Sú hóp­sýk­ing er nú gengin yfir, lítið bar á alvar­legum veik­indum, jafn­vel meðal aldr­aðra ein­stak­linga.“

Þá bár­ust sótt­varna­lækni einnig ábend­ingar um hugs­an­leg veik­indi víðar í sam­fé­lag­inu þar sem ein­stak­lingar töldu sig vera með Covid-19. „Mik­il­vægt er að læknar skrái sjúk­dóms­grein­ingar á Covid-19 í sjúkra­skrá, sér­stak­lega ef grein­ing er ekki stað­fest með PCR rann­sókn til að sótt­varna­læknir geti vaktað fjölda til­fella og þannig fylgst með þróun smita.“

Þrengja markhópa bólusetninga

Sótt­varn­ar­læknir segir bólu­efni til á land­inu og að læknar geti ráð­lagt skjól­stæð­ingum, sem þeir telja í sér­stakri áhættu, að óska eftir bólu­setn­ingu á heilsu­gæslu ef smit­bylgja virð­ist í gangi jafn­vel þótt hún sé bundin við afmarkað svæði og nái ekki að slá út í eft­ir­liti sótt­varna­læknis.

Mark­hópar bólu­setn­inga þrengj­ast þó að lík­indum þegar nýjar leið­bein­ingar sótt­varna­læknis verða birtar síðar í sumar. Ald­ur­svið­mið almennrar ráð­legg­ingar hækki þá úr sex­tugu í átt­rætt og skil­grein­ing áhættu byggðri á und­ir­liggj­andi heilsu­far­s­vanda­málum verði þrengd veru­lega.

„Hætta á inn­lögn vegna Covid-19 nú, 5 árum eftir að Covid-19 komst fyrst á kreik hér á landi, virð­ist að mati smit­sjúk­dóma­lækna Land­spít­ala helst eiga við ein­stak­linga með bein­merg­s­bæl­ingu (vegna sjúk­dóms eða bein­merg­seyð­andi krabba­meins­með­ferðar) eða aðra mjög mikla ónæm­is­bæl­ingu, svo sem í kjöl­far líf­færa­ígræðslu eða við með­ferð með B-frumu eyð­andi lyf­inu rit­ux­imab sem stöðvar alla mótefna­fram­leiðslu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár