Arna Magnea verðlaunuð fyrir besta leik í aðahlutverki

Íslenska kvik­myndin Ljós­vík­ingar var sig­ur­sæl á alþjóð­legri hinsegin kvik­mynda­há­tíð á Indlandi þar sem hún var valin besta leikna myndin, besta leik í aðal­hlut­verki, og hlaut einnig sér­stök dóm­ara­verð­laun fyrir hand­rit.

Arna Magnea verðlaunuð fyrir besta leik í aðahlutverki

Arna Magnea Danks var verð­launuð fyrir besta leik í aðal­hlut­verki, burt­séð frá kyni, á alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­inni Kashish Pri­de Film Festival á Indland fyrir hlut­verk sitt í Ljós­vík­ingum, sem einnig var valin besta myndin.

The Variety greinir frá þessu og segir að Arna Magnea sé trans kona, þriggja barna móðir, kenn­ari, leik­ari, áhættu­leik­stjóri og skáld. Í sam­tali við The Variety segir hún: „Það er ekki á hverjum degi sem trans kona eins og ég fær verð­laun. Ég vil þakka leik­stjór­anum, öðrum leik­urum og hverju ein­asta þeirra sem tóku þátt í að skapa þetta lista­verk sem er ein­stakt, ekki aðeins fyrir Ísland heldur fyrir heim­inn allan.“

Kvik­myndin Ljós­vík­ingar var frum­sýnd á síð­asta ári en leik­stjóri og hand­rits­höf­undur er Snævar Sölvason. Hún fjallar um æsku­vin­ina Hjalta og Björn sem reka fisk­veit­inga­stað í heimabæ sínum yfir sum­arið. Þegar óvænt tæki­færi gefst til­kynnir Björn vini sínum að hún sé trans kona og muni fram­vegis heita Birna. Breyt­ing­arnar reyna á vin­átt­una og þurfa þau bæði að horfast í augu við lífið á nýjan hátt. 

Ljós­vík­ingar er fyrsta íslenska myndin í fullri lengd þar sem trans kona fer með aðal­hlut­verk. 

Þetta er fjórða mynd Snævars Sölva en hann hefur áður gert mynd­irnar Slæg­inga­meist­ar­arnir, Albatross og Eden.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár