Að jafnaði yfir þrjár tilkynningar um heimilisofbeldi á dag

Til­kynn­ingum um heim­il­is­of­beldi fjölg­aði um tæp 15% á fyrsta árs­fjórð­ungi 2025. Til­kynn­ingum þar sem grunur er um alvar­legt eða end­ur­tekið ofbeldi gegn lífi og heilsu fjöl­skyldu­með­lims fjölg­aði einnig á milli ára. Alls bár­ust 40 slík mál fyrstu þrjá mán­uði árs­ins.

Að jafnaði yfir þrjár tilkynningar um heimilisofbeldi á dag

Alls bár­ust 316 til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi til lög­regl­unnar á tíma­bil­inu jan­úar til mars á þessu ári, sam­an­borið við 274 á sama tíma í fyrra. Þetta er tæp­lega 15% aukn­ing, en að með­al­tali bár­ust 3,5 til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi dag á tíma­bil­inu. 

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra um heim­il­is­of­beldi og ágrein­ing milli skyldra aðila sem til­kynnt var til lög­reglu á fyrsta árs­fjórð­ungi 2025. 

Þar segir að mark­viss­ari skrán­ing geti skýrt þessa fjölgun, en einnig er tekið fram að sé litið til síð­ustu tíu ára sé aukn­ingin 10%. 

Þegar litið er til bæði til­kynn­inga um heim­il­is­of­beldi og um ágrein­ing milli skyldra og tengdra aðila bár­ust 642 til­kynn­ingar, eða rúm­lega sjö á dag að með­al­tali.

Heim­il­is­of­beldi greint eftir ger­endumÚr skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra

Málum þar sem árás­ar­að­ili og -þol­andi tengj­ast nánum fjöl­skyldu­böndum, t.d. for­eldrar, börn eða systk­ini, fjölgar ef borið er saman við síð­asta ár. Aukin áhersla hefur verið hjá lög­reglu á að skrá með mark­viss­ari hætti en áður sem gæti skýrt fjölg­un­ina. Fleiri börn og ung­menni eru skráð í mál­unum, bæði sem árás­ar­að­ilar og -þolendur, segir í skýrsl­unni.

Hlutfall árás­ar­að­ila undir 18 ára tvö­fald­að­ist á milli ára, úr 15% í 30%.  Börn og ung­menni undir 18 ára voru einnig 34% þeirra sem urðu fyrir ofbeldi af hendi fjöl­skyldu­með­lims, en voru 18% á sama tíma­bili fyrir ári.

Ágrein­ingur milli skyldra/tengdra greint eftir teg­undÚr skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra

Alls voru 29 börn sem réð­ust að fjöl­skyldu­með­lim, oft­ast að for­eldri, í jan­úar til mars 2025 og um var að ræða minni­háttar lík­ams­árás í stærstum hluta mál­anna. Í fjórð­ungi þess­ara mála höfðu fjöl­skyldu­með­limir tek­ist á og þá eru báðar teg­undir skráð í málin, það er barn ráð­ist gegn for­eldri og for­eldri gegn barni.

Til­kynn­ingum þar sem grunur er um alvar­legt eða end­ur­tekið ofbeldi gegn lífi og heilsu fjöl­skyldu­með­lims fjölg­aði einnig á milli ára. Alls bár­ust 40 slík mál fyrstu þrjá mán­uði árs­ins, sam­an­borið við 21 á sama tíma­bili 2024.

Frá jan­úar til mars 2025 bár­ust 32 beiðnir um nálg­un­ar­bann og/eða brott­vísun vegna heim­il­is­of­beldis. Það er svip­aður fjöldi og árið áður, þegar 34 beiðnir bár­ust.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár