Tíu ára drengur lést í Hvítá - Bænastund í kvöld

Banaslys varð í Hvítá í Hruna­manna­hreppi í gær þegar drátt­ar­vél hafn­aði í ánni. Ökumaður drátt­ar­vél­ar­innar var tíu ára drengur og var hann útskurð­aður lát­inn á vett­vangi

Tíu ára drengur lést í Hvítá - Bænastund í kvöld

Banaslys varð við Hvítá í Hruna­manna­hreppi í gær þegar drátt­ar­vél rann fram af háum bakka og hafn­aði ofan í ánni. Ökumaður drátt­ar­vél­ar­innar fannst skömmu eftir slysið og var úrskurð­aður lát­inn á vett­vangi. 

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á Suð­ur­landi kemur fram að hann hét Víglundur Þor­steins­son, fæddur 2015 og bjó í Hauk­holtum ásamt for­eldrum sínum og þremur systk­inum. Slysið varð skammt frá bænum sem liggur við Hvítá.

Unnið er að því að ná drátt­ar­vél­inni upp úr ánni en aðstæður á vett­vangi eru erf­iðar. Lög­reglan vill koma á fram­færi þökkum til allra þeirra við­bragðs­að­ila sem komu að björg­un­ar­að­gerðum í gær sem og þeim aðilum sem hafa unnið að því að ná drátt­ar­vél­inni upp í dag.

Lög­reglan á Suð­ur­landi fer með rann­sókn á til­drögum slyss­ins, en sú vinna er á frum­stigum.

Bæna­stund verður haldin í Hruna­kirkju í kvöld klukkan 20.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár