Norðurslóðir í breyttum heimi: Öryggismál í nýju alþjóðasamhengi

Áhrif stór­auk­innar alþjóð­legrar tog­streitu á mál­efni Norð­ur­slóða er umfjöll­un­ar­efni á opnum fundi í Háskól­anum á Akureyri í dag. Varðberg, Norð­ur­slóða­net Íslands og Stofnun Vil­hjálms Stef­áns­sonar, auk HA, standa að fund­inum sem er hér í beinu streymi.

Varðberg, Norð­ur­slóða­net Íslands, Háskól­inn á Akureyri og Stofnun Vil­hjálms Stef­áns­sonar efna til opins fundar í dag um Norð­ur­slóðir í breyttum heimi.

Sjónum verður beint að áhrifum stór­auk­innar alþjóð­legrar tog­streitu á mál­efni Norð­ur­slóða, einkum með til­liti til örra lofts­lags­breyt­inga, auk­ins hern­að­ar­legs mik­il­vægis svæð­is­ins og hags­muna Íslands.

Ríki sem eiga hags­muna að gæta á Norð­ur­slóðum þurfa bæði að fylgj­ast vel með og vera reiðu­búin að bregð­ast við örum vend­ingum á svæð­inu. Á meðan hnatt­ræn hlýnun ógnar umhverfi og sam­fé­lögum – og opnar skipa­leiðir – þá hefur inn­rás­ar­stríð Rússa í Úkraínu leitt til þess að vonir um frið­sæl sam­skipti á Norð­ur­slóðum hafa dvínað veru­lega.

Fund­ur­inn er hald­inn í Háskól­anum á Akureyri og stendur yfir frá klukkan 15 til 17.  Hér er hægt að fylgj­ast með fund­inum í beinu streymi.

Dagskrá fund­ars­ins er eft­ir­far­andi:

Upp­hafs­orð: Davíð Stef­áns­son, for­maður Varðberg.

Fund­ar­stjórn: Friðrik Þórsson, verk­efna­stjóri Norð­ur­slóða­nets Íslands (IACN).

Ávörp: Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra.

Dr. Áslaug Ásgeirs­dóttir, rektor Háskól­ans á Akureyri.

Dr. Davíð Þór Björg­vins­son, pró­fessor við Laga­deild Háskól­ans á Akureyri.

Dr. Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir, pró­fessor Háskól­inn á Bifröst.

Dr. Rachael Lorna John­stone við Laga­deild Háskól­ans á Akureyri og við Ilisi­matus­arfik (Háskól­inn á Græn­landi).

Soffía Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Vinnu­hóps Norð­ur­skauta­ráðs­ins um verndun hafs­ins (PAME)

Bergdís Ell­erts­dóttir, sendi­herra norð­ur­slóða­mála utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Lokaorð: Dr. Áslaug Ásgeirs­dóttir, rektor Háskól­ans á Akureyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár