Landsréttur staðfestir frávísun í máli Hreyfils gegn borginni

Hreyfill vildi ekki gefa eftir einka­not sín af bið­stæðum fyrir leigu­bif­reiðar víða um Reykja­vík­ur­borg og fór í mál. Lands­réttur hefur stað­fest frá­vísun Hér­aðs­dóms Reykja­víkur á mál­inu.

Landsréttur staðfestir frávísun í máli Hreyfils gegn borginni

Lands­réttur hefur stað­fest dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að vísa frá kröfu­gerð af hálfu leigu­bíla­stöðv­ar­innar Hreyfils gegn Reykja­vík­ur­borg þar sem Hreyfill krafð­ist þess að eiga áfram einka­rétt á bið­stæðum fyrir leigu­bíla á nokkrum stöðum í borg­inni. 

Reykja­vík­ur­borg sam­þykkti árið 2019 að heim­ila öllum sem hefðu starfs­leyfi til leigu­bíla­akst­urs að leggja í bif­reiða­stæðum sem Hreyfill hafði haft einka­rétt á að nota. 

Hreyfill höfð­aði í fram­hald­inu mál gegn Reykja­vík­ur­borg og krafð­ist þess að umráða­réttur félags­ins á ákveðnum bið­stæðum leigu­bíla yrði við­ur­kenndur fyrir dómi. Til vara krafð­ist Hreyfill við­ur­kenn­ingu Reykja­víkur á bóta­á­byrgð og bóta­skyldu borg­ar­innar. 

Hreyfill fær enn að nota stæðin

Í úrskurði Lands­réttar kemur fram að í kröfu­gerð Hreyfils sé ekki afmarkað á neinn hátt til hvers kyns afnota eða umráða­réttar sé vísað til. Hins vegar sé óum­deilt að Hreyfill muni áfram njóta afnota­réttar af bið­stæð­unum, að frá­töldum stæðum sem voru á Lauga­vegi við Hlemm. Því telur Lands­réttur að kröfu­gerð Hreyfils sé ekki til þess fallin að leysa ágrein­ing, jafn­vel þó að á hana væri fall­ist.

Hvað stæðin við Laugaveg varðar tekur Lands­réttur fram að kröfu­gerð Hreyfils taki ekki mið af til­færslu bið­stæða sem leiða af breyttu deiliskipu­lagi. Óhjá­kvæmi­lega hefði Hreyfill því ekki lögvarða hags­muni af því að sú krafa yrði við­ur­kennd. 

Lands­réttur stað­festi því dóm hér­aðs­dóms frá apríl 2025 um frá­vísun máls­ins.

Útdeiling á takmörkuðum gæði 

Í yfir­liti máls­at­vika og ágrein­ings­efna í dómi hér­aðs­dóms segir að Hreyfill hafi rekið leigu­bíla­stöð í Reykja­vík um ára­tuga­skeið. Ágrein­ingur Hreyfils og Reykja­vík­ur­borgar snú­ist í meg­in­at­riðum um rétt Hreyfils til þrettán til­greindra bið­stæða í borg­ar­land­inu. Með leyfi umhverfis- og sam­göngu­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, með gild­is­tíma frá júní 2018 til júní 2020, hafi Hreyfli verið heim­ilað að starf­rækja bið­stöðvar á níu af þessum þrettán stæðum. 

Þegar end­ur­skoðun á leigu­bif­reiða­stæðum í borg­ar­landi hófst, í sam­ræmi við mark­mið Reykja­vík­ur­borgar sam­kvæmt aðal­skipu­lagi borg­ar­innar 2010 til 2013 um vist­vænni sam­göngur, hafi Reykja­vík­ur­borg borist ábend­ingar frá öðrum leigu­bíla­stöðvum sem höfðu ekki afnot af bið­stæðum í borg­ar­land­inu, og kvartað hafi verið yfir því að Reykja­vík væri að útdeila tak­mörk­uðum gæðum til ein­stakra leigu­bíla­stöðva, svo sem til Hreyfils. 

Tillaga sam­göngu­stjóra Reykja­vík­ur­borgar um breytt fyr­ir­komu­lag leigu­bif­reiða­stæða var sam­þykkt á fundi skipu­lags- og  sam­göngu­ráðs í sept­em­ber  2019.  Í  henni  fólst  að  umhverfis- og  skipu­lags­sviði yrði  falið  að  heim­ila  öllum  aðilum  í leigu­bif­reiða­akstri,  sama  hvort  um  væri  að  ræða  ein­stak­linga  eða leigu­bif­reiða­stöðvar,  notkun á     stæð­unum að und­an­geng­inni  skrán­ingu.     

Starfs­leyfi fyrir leigu­bif­reiða­stæðum í borg­ar­landi yrði þá gefið út til Reykja­vík­ur­borgar, sem bæri ábyrgð á stæð­unum, svo sem við­haldi og hreinsun þeirra. Skráning leigu­bif­reiða til notk­unar á stæð­unum myndi gilda á fyr­ir­fram skil­greindu tíma­bili og fyrir notkun á öllum skil­greindum leigu­bif­reiða­stæðum innan borg­ar­marka. Tekið yrði gjald af skrán­ingu til að mæta kostn­aði við gerð og við­hald stæð­anna og tæki slík gjald­skrá mið af skráðri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda við­kom­andi leigu­bif­reiðar.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár