Með þjóðarmorð í símanum: „Líf okkar er lifandi helvíti“

Eft­ir að stríð­ið hófst á Gaza svar­aði Við­ar Hreins­son hjálp­arkalli Palestínu­manna. Fyr­ir vik­ið hef­ur hann tengst tveim­ur kon­um þar svo sterk­um bönd­um að hann kall­ar þær dæt­ur sín­ar. Það eru þær Reham Khaled og Israa Sa­ed sem lýsa að­stæð­um á vett­vangi: „Ekk­ert vopn jafn­ast á við hung­ur,“ seg­ir Reham.

F

rjáls, frjáls Palestína, frjáls, frjáls Gaza og börnin á Gaza eru okkar börn, heyrast mótmælendur hrópa síendurtekið fyrir utan ríkisstjórnarfund. Þeir eru fleiri en vanalega og það er hiti í hópnum. Viðar Hreinsson er þar staddur, með Palestínuklút vafinn um háls sér. Nú hrópar hann hærra en hann hefur almennt tamið sér að gera. Hann hefur ástæðu til að hafa áhyggjur. Að mótmælum loknum heldur hann beinustu leið heim í Vesturbæ og Palestínufáninn blaktir aftan á hjólinu. Hann rétt heilsar eiginkonunni áður en hann sest inn á skrifstofu og ræsir tölvuna í von um að ná sambandi við konur sem eru orðnar honum svo kærar að hann kallar þær dætur sínar. Þær eru staddar á Gaza, mitt í öllum hörmungunum. Í gær var önnur þeirra orðin svo lasin að honum stóð ekki á sama. 

Vatnið lekur inn 

Hún heitir Reham Khaled, er 27 ára gömul, kennari að …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu