Dýrara að fá sér naut og bernaise

Innlend dag­vara hækkar mun hraðar en erlend, sam­kvæmt Verð­lags­eft­ir­liti ASÍ. Nauta­kjöt hefur hækkað mikið, hvort sem um er að ræða ham­borg­ara, hakk eða steikur. Þá hækk­aði verð á Stjörnu­eggjum um 9% í maí­mán­uði.

Dýrara að fá sér naut og bernaise

Verð á nauta­kjöti hefur hækkað hratt á þessu ári og hafa margar vörur í þeim flokki hækkað meira á þessu ári en á átta mán­uð­unum þar á undan. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Verð­lags­eft­ir­liti ASÍ. 

Þar segir að inn­lend dag­vara hækkar mun hraðar en erlend en verð­lag á dag­vöru hækkar um meira en hálft pró­sent þriðja mán­uð­inn í röð, sam­kvæmt mæl­ingum verð­lags­eft­ir­lits­ins, en hækk­unin milli mars og apríl var um 0,61%. Þó er útlit fyrir að hækk­an­irnar séu að drag­ast saman að magni og umfangi.

Á graf­inu hér að neðan eru birtar vörur úr flokknum „nauta­kjöt“ sem verð­lags­eft­ir­litið hefur gögn fyrir hjá Bónus og Krónunni aftur til maí í fyrra. Hækkunin í byrjun þessa árs vegur þungt og tekur hún meðal ann­ars til hækk­ana á ham­borg­urum.

Einnig gæti orðið dýr­ara að bjóða upp á berna­ise-sósu með steik­inni. Verð á Stjörnu­eggjum hækk­aði um 9% í maí. Verð á Nesbú-eggjum hefur hækkað hægar en upp­söfnuð árs­hækkun er engu að síður 6,5% að með­al­tali í stærstu fjórum versl­un­ar­keðj­unum; Bónus, Krónunni, Hagkaup og Nettó.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár