Fangelsisdómur yfir burðardýri og fylgdarmanni - Hvorugur með sakaferil

Þeir Alexios Charavgias og Rafail Bazionis hafa verið dæmdir í tveggja ára fang­elsi fyrir inn­flutn­ing á kóka­íni. Í dómnum segir að Rafail hafi verið í hlut­verki burð­ar­dýrs en Alexios hafi gegnt lyk­il­hlut­verki við fram­kvæmd brots­ins

Fangelsisdómur yfir burðardýri og fylgdarmanni - Hvorugur með sakaferil

HHér­aðs­dómur Reykja­ness hefur dæmt Alexios Charavgias og Rafail Bazionis í fang­elsi í tvö ár og fjóra mán­uði hvorn, fyrir að hafa flutt til lands­ins tæp­lega tvö kíló af kóka­íni í nóv­em­ber í fyrra. Í dómnum er tekið fram að ekki sé vitað til þess að þeir eigi saka­feril að baki.

Rafail kom til Íslands frá Frank­furt með ferða­tösku sem inni­hélt 1.936 grömm af kóka­íni sem var falið í fölskum botni tösk­unnar. Toll­verðir fundu efnið við kom­una á Kefla­vík­ur­flug­völl. Í kjöl­farið var Alexios hand­tek­inn, en þeir höfðu ferð­ast saman. Þeir hafa setið í gæslu­varð­haldi frá des­em­ber 2024 og dregst sá tími frá dómnum.

Rafail ját­aði að hafa flutt fíkni­efnin inn en hélt því fram að Alexios hefði ekk­ert vitað um brotið. Alexios kvaðst ein­göngu hafa verið í fríi og neit­aði allri sök. Dómurinn féllst ekki á þá skýr­ingu. Í dómi segir að „hafið sé yfir skyn­sam­legan vafa“ að Alexios hafi „átt í miklum sam­skiptum við skipu­leggj­anda inn­flutn­ings­ins“ og að hann hafi „með aðstoð og leið­sögn stýrt ferða­lagi með­á­kærða Rafail, meðal ann­ars með fyr­ir­mælum í gegnum síma“.

Þar er vísað til ein­stak­lings sem dóm­ur­inn kallar „A“, sem tal­inn er skipu­leggj­andi brots­ins og hafði veru­leg sam­skipti við báða menn­ina, einkum Alexios. Síma­sam­skipti Alexios við „A“ náðu yfir rúman mánuð fram að degi inn­flutn­ings­ins, og meðal gagna í síma hans voru myndir af skil­ríkjum beggja ákærðu, flug­miðum og mynd­bönd af Rafail með ferða­tösk­una sem kóka­ínið fannst í. Einnig fund­ust fyr­ir­mæli frá „A“ til Rafail, send í gegnum for­rit sem tengd­ist síma­núm­erum og not­anda sem rak­inn var til Alexios.

Í dómnum kemur fram að Rafail hafi verið í hlut­verki burð­ar­dýrs, en að Alexios hafi verið tengiliður við skipu­leggj­and­ann og gegnt lyk­il­hlut­verki í fram­kvæmd brots­ins. „Þykir ljóst að við fram­kvæmd inn­flutn­ings­ins hafi ákærði Rafail notið fylgdar og leið­sagnar ákærða Alexios, á sama tíma og Alexios átti í miklum sam­skiptum við skipu­leggj­anda.“

Báðir voru þeir sak­felldir fyrir stór­fellt fíkni­efna­laga­brot. Dómurinn tók fram að þeir nytu engra máls­bóta og að um veru­legt magn fíkni­efna væri að ræða, ætlað til sölu í ágóða­skyni. Hvor um sig var dæmdur í tveggja ára og fjög­urra mán­aða fang­elsi. Þá var þeim gert að greiða allan sak­ar­kostnað.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár