Ísland fær á sig 10% toll frá Trump

Tímamót í alþjóða­við­skiptum þegar Donald Trump kynnti 10% tolla á öll lönd og 20% tolla á Evr­ópu­sam­bandið.

Ísland fær á sig 10% toll frá Trump
Donald Trump Vill flytja störf og fram­leiðslu inn til Banda­ríkj­anna. Mynd: AFP

Allar vörur frá Íslandi til Banda­ríkj­anna bera 10% toll frá og með 5. apríl næst­kom­andi. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti kynnti rétt í þessu tolla á allan inn­flutn­ing með for­seta­til­skipun sem byggir á því að neyð­ar­á­stand sé við lýði vegna við­skipta­halla Banda­ríkj­anna.

Ísland, eins og Bretland, sleppur við að fá á sig enn hærri tolla. Evr­ópu­sam­bandið þarf hins vegar að þola 20% tolla og Kína 34% tolla.

Þá fær Japan á sig 24% toll og Indland 26%.

Demókratar vara við því að vörur muni hækka í verði. 

Eswar Prasad, pró­fessor í við­skipta­stefnu við Cornell-háskóla, segir í sam­tali við New York Times að um sé að ræða „skyndi­leg enda­lok“ frjálsra og opinna alþjóða­við­skipta, sem byggðu á reglum sem Banda­ríkin komu á. „Í stað þess að lag­færa regl­urnar sem mörg við­skipta­lönd Banda­ríkj­anna nýttu sér sann­ar­lega í eigin þágu, hefur Trump valið að sprengja upp kerfið sem rammar inn alþjóða­við­skipti,“ sagði hann.

„Ef þú vilt að toll­arnir á þig séu núll, þá fram­leiðir þú vör­una hér í Banda­ríkj­unum,“ sagði Trump. 

Samkvæmt New York Times eru toll­arnir hærri en hag­fræð­ingar sér­fræð­ingar í stefnu­mótun höfðu búist við.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár