„Frelsisdagur“ Trump í dag - gæti hrundið af stað alþjóðlegu viðskiptastríði

Donald Trump kynnir í dag umfangs­milkla tolla gegn helstu við­skipta­löndum. Hann hefur haldið því fram að toll­arnir muni koma í veg fyrir að Banda­ríkin séu „rænd“ og fleyti banda­rískum iðn­aði inn í nýtt „gull­ald­ar­skeið“

„Frelsisdagur“ Trump í dag - gæti hrundið af stað alþjóðlegu viðskiptastríði

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti kynnir í dag umfangs­mikla nýja tolla sem hann kallar „Frels­is­dags“-aðgerð. Hann heldur heim­inum enn í óvissu um umfangið fram á síð­ustu stundu, en ótt­ast er að aðgerð­irnar gætu hrundið af stað alþjóð­legu við­skipta­stríði. Trump hefur haldið því fram að toll­arnir muni koma í veg fyrir að Banda­ríkin séu „rænd“ og fleyta banda­rískum iðn­aði inn í nýtt „gull­ald­ar­skeið“.

For­set­inn kynnir aðgerð­irnar í Hvíta hús­inu klukkan 16 að stað­ar­tíma - eftir að mark­aðir á Wall Street loka - eða klukkan átta í kvöld að íslenskum tíma. Þótt Trump full­yrði að hann hafi tekið ákvörðun um gagn­kvæma tolla á lönd sem hafi skaðað Banda­ríkin, við­ur­kennir Hvíta húsið að hann sé enn að klára útfærslur, minna en sól­ar­hring fyrir kynn­ingu, að því er AFP greinir frá.

Repúblikan­inn og millj­arða­mær­ing­ur­inn hefur lengi haft sterkar skoð­anir á tollum og telur þá lausn á við­skipta­halla Banda­ríkj­anna, hvort sem um er að ræða banda­menn eða and­stæð­inga.

Gagn­rýnendur segja hins vegar að banda­rískir neyt­endur muni bera meg­in­þung­ann þegar inn­flytj­endur á vörum hækka verð, og að toll­arnir gætu aukið líkur á efna­hagslægð bæði innan Banda­ríkj­anna og utan.

Órói hefur verið á alþjóð­legum mörk­uðum í aðdrag­anda þessa, en lönd sem lík­leg eru til að verða fyrir högg­inu hafa kallað eftir við­ræðum, á meðan þau und­ir­búa gagn­að­gerðir.

Sagðist ætla að vera ljúfur

Aðgerðin und­ir­strikar einnig vax­andi gjá milli Banda­ríkj­anna undir stjórn Trump og margra nán­ustu banda­manna þeirra – ekki aðeins í við­skiptum, heldur líka í öryggis- og varn­ar­málum. Trump heldur spil­unum enn þétt að sér. Hann hefur hins vegar talað um aðgerð­irnar í nokkrar vikur og gaf upp­haf­lega í skyn að toll­arnir myndu ein­fald­lega sam­svara þeim sem aðrar þjóðir leggja á.

Á mánu­dag sagði hann ein­ungis að hann ætl­aði að vera „mjög ljúfur“ án þess að skýra það frekar. Banda­rískir miðlar greindu hins vegar frá því að Trump væri að velta fyrir sér 20% tollum sem gilti fyrir öll lönd en einnig að skoða þriðja kost þar sem sum ríki fengju sér­með­ferð.

Karoline Leavitt, fjöl­miðla­full­trúi Hvíta húss­ins, sagði að í gær að Trump væri á ráð­gjaf­ar­fundi, dag­inn fyrir til­kynn­ing­una, til að „full­komna hana svo þetta verði full­kom­inn samn­ingur“. Toll­arnir munu taka gildi „strax“ eftir kynn­ing­una í dag, bætti hún við – og úti­lokar þar með frek­ari við­ræður við önnur ríki áður en aðgerðir taka gildi.

Trump hefur áður dregið til baka tolla­að­gerðir á síð­ustu stundu, einkum gagn­vart banda­lags­ríkjum eins og Kanada og Mexíkó. Þrátt fyrir það valda áform hans vax­andi ótta um víð­tækt við­skipta­stríð sem gæti hækkað verð og valdið rösk­unum á mörk­uðum um allan heim.

ESB og Kanada munu svara fyrir sig

Evr­ópu­sam­bandið og Kanada eru meðal þeirra sem hafa lýst því yfir að þau muni svara fyrir sig. „Við munum bregð­ast af yfir­vegun, til að verja hags­muni Kanada,“ sagði kanadíski for­sæt­is­ráð­herr­ann Mark Carney í gær.

Evr­ópu­sam­bandið - sem Trump hefur sakað um að reyna að „fokka“ í Banda­ríkj­unum - gaf út á þriðju­dag að enn væri von­ast eftir sam­komu­lagi.  Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, ræddi við Trump um „árang­urs­ríkar við­ræður“ um frí­versl­un­ar­samn­ing við Banda­ríkin. Víetnam til­kynnti í gær að þar yrðu tollar lækk­aðir á fjölda vara til að koma til móts við Trump.

Á meðan eru önnur útflutn­ings­lönd að mynda banda­lög til að bregð­ast við áformum Washington, þar sem Kína, Japan og Suður-Kórea hafa hraðað við­ræðum um frí­versl­un­ar­samn­ing. Mexíkó lækk­aði hag­vaxt­ar­spá sína fyrir árið 2025 úr 2-3 pró­sentum niður í 1,5-2,3 pró­sent, með vísan til spennu við stærsta við­skipta­lönd sitt, Banda­ríkin.  

Gæti skapað enn meiri óvissu

Þessi mikla óvissa um hvað Trump hyggst gera hefur aukið óróa á fjár­mála­mörk­uðum. Hag­fræð­ingateymi HSBC, undir for­ystu Max Kettner, var­aði við því að til­kynn­ingin í dag um toll­ana myndi ekki binda enda á óviss­una

„Við teljum að mögu­leik­arnir séu jafn­vel meiri á að 2. apríl mark­ist af enn meiri óvissu – og þar með langvar­andi veik­leika í helstu hag­vísum,“ sögðu þau.

Trump hefur notað tolla sem vopn í utan­rík­is­stefnu allt frá sínu fyrra for­seta­tíma­bili. Hann full­yrðir að toll­arnir muni end­ur­vekja veik­burða fram­leiðslu­getu Banda­ríkj­anna og segir fyr­ir­tækjum að þau geti forð­ast tolla með því að flytja starf­semi sína til Banda­ríkj­anna.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Íhugaðu að lesa um Smoot-Hawley tollalögin frá 1930 (https://en.wikipedia.org/wiki/Smoot-Hawley): Í heildina vil ég frekar læra sögu með því að lesa um hana en að lifa hana. Það virðist ekki vera að fara mínar leiðir.
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Þetta tollastríð þarf ekki endilega að vera svo slæmt. Það gæti til dæmis verið gott fyrir Jörðina okkar.
    Ef það dregur úr framleiðslu á allskonar vörum eða kemur í veg fyrir aukningu á þeim þá gæti það jafnframt dregið úr framleiðslu á allskonar óþarfa sem endar annars á ruslahaugum heimsins.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár