Stefna að opnun ofbeldismóttöku fyrir börn

Í jan­úar 2026 skulu öll börn sem eru þolendur ofbeldis fá við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu án tafar. Þetta kemur fram í fyrstu stöðu­skýrslu aðgerða­hóps vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum.

Stefna að opnun ofbeldismóttöku fyrir börn

Fyrsta skref í mótun fram­tíð­ar­sýnar í heil­brigð­is­þjón­ustu við börn sem búa við ofbeldi er að setja á fót ein­ingu á Land­spít­ala sem veitir börnum sem eru þolendur hvers kyns ofbeldis við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu án tafar. Þjón­ustan verður þver­fag­leg og veitt af heil­brigð­is­starfs­mönnum með sér­þekk­ingu á mál­efnum barna.

Í des­em­ber síð­ast­liðnum, 2024, var Land­spít­ala falið að hefja und­ir­bún­ing opn­unar slíkrar ein­ingar en heil­brigð­is­ráðu­neytið lagði 13 millj­ónir króna til und­ir­bún­ings­ins. Land­spít­ali hefur skilað verk­á­ætlun og að lok­inni rann­sókn og grein­ingu, mótun, vinnu­stofu, prófun á mót­töku, árang­urs­mati og end­ur­skoðun er gert ráð fyrir að „inn­leið­ing­ar­til­laga ofbeld­is­mót­töku fyrir börn líti dags­ins ljós í jan­úar 2026.“

Þetta kemur fram í fyrstu stöðu­skýrslu um inn­leið­ingu aðgerða sem sér­stakur aðgerða­hópur vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum hefur skilað af sér. Aðgerð­unum er ætlað að sporna við þróun í átt að auknu ofbeldi, auka for­varn­ar­starf og leiða saman fjöl­breytta þjón­ustu- og við­bragðs­að­ila í sam­stilltu átaki gegn vax­andi ofbeldi meðal barna og ung­menna á Íslandi.

Auka forvarnir og bæta lífsgæði

Alls voru sam­þykktar 25 aðgerðir til þess að sporna gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum. Við mótun aðgerða var meðal ann­ars horft til þess að í gildi væri fram­kvæmda­á­ætlun í barna­vernd 2023-2027 auk þess að stýri­hópur um mál­efni barna með fjöl­þættan vanda hafði unnið skýrslu með til­lögum að úrræðum. Ein af þessum aðgerðum er mótun á fram­tíð­ar­sýn heil­brigð­is­þjón­ustu við börn sem búa við ofbeldi.

Þar sem fjallað er um þá aðgerð í skýrsl­unni segir að rann­sóknir sýni að oft skortir sam­eig­in­legan skiln­ing heil­brigð­is­starfs­manna og heild­ar­sýn á við­brögð heil­brigð­is­kerf­is­ins við ofbeldi og van­rækslu í garð barna. Mótun fram­tíð­ar­sýnar er því mik­il­væg til að auka snemmtæka íhlutun heil­brigð­is­kerfis, auka for­varnir og bæta þannig lífs­gæði þeirra barna sem búa við ofbeldi og van­rækslu. 

Sérstaklega hugað að börnum með fötlun

„Fram­tíð­ar­sýn þarf ekki ein­ungis að hafa fjár­magn, hús­næði og fag­fólk með sér­þekk­ingu á mál­efnum barna, hún þarf einnig að byggja á rann­sóknum og gagn­reyndum aðferðum þegar kemur að veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu við börn sem þolendur ofbeldis og van­rækslu. Sér­stak­lega skal hugað að börnum með fötlun,“ segir þar. 

Í skýrsl­unni er sér­stak­lega farið yfir hvaða mæli­kvarði er not­aður til að meta stöð­una á hverri til­tek­inni aðgerð, sem og hver er ábyrgð­ar­að­ili. Þegar kemur að mati á áður­nefndri aðgerð segir að í jan­úar 2026 skuli öll börn sem eru þolendur ofbeldis fá við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu, sem veitt er meðal ann­ars af sér­fræð­ingum í mál­efnum barna, svo sem barna­læknum, barna­hjúkr­un­ar­fræð­ingum og barna­sál­fræð­ingum. Ábyrgð­ar­að­ili aðgerð­ar­innar er heil­brigð­is­ráðu­neytið í sam­vinnu við Land­spít­ala.

Mæta alvarlegri stöðu hér á landi

Aðgerða­hóp­ur­inn, sem tók til starfa í sept­em­ber síð­ast­liðnum, er skip­aður full­trúum mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins, dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins, Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, Mið­stöðvar mennt­unar og skóla­þjón­ustu, Reykja­vík­ur­borgar, Barna- og fjöl­skyldu­stofu, heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra, lög­reglu­emb­ætta og Heimilis og skóla.

Aðgerða­hóp­ur­inn vinnur áfram að heild­stæðri inn­leið­ingu, for­gangs­röðun og fram­kvæmd aðgerða. Vinnsla allra aðgerða er hafin og mótuð hefur verið áætlun fyrir inn­leið­ingu og eft­ir­fylgni til næstu tveggja ára. Með mark­vissri inn­leið­ingu aðgerða og eft­ir­fylgni er ekki ein­ungis verið að mæta þeirri alvar­legu stöðu sem upp er komin hér á landi heldur einnig að greina umfang og eðli vand­ans, og þróa bestu starfs­hætti fyrir Ísland.

Hér má lesa stöðu­skýrsl­una í heild sinni.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár