Er Trump Pétur 3. Rússakeisari?

Trump Banda­ríkja­for­seti snýr ger­sam­lega við blaði Banda­ríkj­anna varð­andi Úkraínu. Höfum við nokkurn tíma séð annað eins?

Er Trump Pétur 3. Rússakeisari?
Trump 1. og Pétur 3. áttu það sam­eig­in­legt að vilja hvað­eina gera til að geðj­ast átrún­að­ar­goðum sínum: Pútin og Friðriki mikla. Mynd: wikipedia - Samsett / Heimildin

Friðrik Prússa­kóngur var í úlfa­kreppu. Hann hafði hafið sjö ára stríðið stað­ráð­inn í að sýna hvað hann væri mik­ill kall  og að Prússar væru menn með mönnum í hópi stór­velda í Evrópu. Og í leið­inni hugð­ist hann koma höndum yfir námur og nátt­úru­auð­lindir í Slesíu.

En viti menn, þetta fór allt í handa­skolum.

Herir hans voru rass­skelltir í hverri orr­ust­unni á fætur annarri og það af Rússum af öllum mönnum!

Tug­þús­undir ungra Prússa lágu nú og rotn­uðu í mold­inni, jafn­margir eða fleiri álp­uð­ust um lim­lestir. Dóm­greind Friðriks sjálfs reynd­ist duga til lít­ils ann­ars en berja bumbur og semja her­göngu­lög.

Nú var svo komið að Rússar höfðu náð höf­uð­borg hans, Berlín. Aust­ur­rík­is­menn sátu Slesíu. Prúss­neska ríkið var á hvín­andi kúp­unni og þjóð­ar­gjald­brot blasti við.

Friðrik íhug­aði oftar en einu sinni  að svipta sig lífi, svo illa horfði.

En þá – eins og hendi væri veifað – þá breytt­ist allt.

Allt breyttist

Nýr keis­ari kom til valda í Rúss­landi og einmitt þegar sá ungi maður hefði getað staðið yfir höf­uðsvörðum Friðriks, þá lét hann stöðva heri sína og kalla þá til baka.

Og ekki bara kalla þá til baka, heldur gekk hinn nýi Rússa­keis­ari í banda­lag með Friðriki.

Rúss­neskar her­sveitir, sem höfðu átt bara loka­höggið eftir gegn Prússum, þær gengu nú bein­línis í lið með leif­unum af herjum Friðriks og hjálp­uðu þeim að hrifsa námurnar í Slesíu frá furðu lostnum Aust­ur­rík­is­mönnum.

Hafi stríðs­gæfan ein­hvern tím­ann snú­ist, þá var það í þetta sinn.

En þá er í raun­inni ekki hægt að tala um stríðsgæfu, því það var ekki árangur á víg­völl­unum sem réði því að Friðrik vann nú mjög óvænt þetta stríð.

Og það voru ekki dóm­greind hans og snilli sem ollu því að alls­hugar fegnir landar hans köll­uðu hann upp frá þessu Friðrik mikla – nei, hvor­ugt af þessu var ástæðan, heldur bara það að þessi nýi keis­ari tók við völdum í helsta ríki and­stæð­ing­anna og leit á það sem sitt helsta metn­að­ar­mál í líf­inu að flaðra upp um Friðrik.

Og hringsneri herjum og stjórn­kerfi Rússa vegna þess.

Af ein­tómum sleikju­gangi við ein­ræðis­kóng óvin­anna.

Höfum við nokkurn tíma séð annað eins?

Sjö ára stríðið

Þangað til kannski núna árið 2025, þegar for­seti Banda­ríkj­anna gerir sig skyndi­lega lík­legan til að ganga bein­línis til liðs við Rúss­lands­for­seta í inn­rás­ar­stríði hans gegn Úkraínu.

Og áttu þó Banda­ríkin og Rússland að heita svarnir fjendur á flestum sviðum, rétt eins og Prúss­land og Rússland á 18. öld­inni.

Baksvið hins svo­nefnda sjö ára stríðs voru eins og oft áður átök stór­velda í Evrópu. Ýmislegt vakti fyrir þeim.

Prúss­land vildi gera sig gild­andi sem helsta ríki hins sundraða Þýska­lands og þráði að kom­ast í hóp alvöru stór­velda í álf­unni.

Aust­ur­ríki Habs­borgar­anna vildi treysta sig í sessi í Mið-Evrópu.

Frakk­land Bourbon-kóng­anna vildi sporna við upp­gangi þýsku­mæl­andi stór­veld­anna og breiða yfir hnignun sína.

Bretland vildi fyrst og fremst hafa frítt spil á heims­höf­unum.

Og Rússland vildi fá að teygja sig lengra inn í Evrópu og mala undir sig bæði Pólland og Úkraínu.

Dóttir Péturs mikla

Stríðið hófst 1756 og var reyndar barist víða um heim, þar sem evr­ópsku stór­veldin höfðu hags­muni, en það sem hér skiptir máli er að í Mið-Evrópu fór Prúss­land brátt mjög hall­oka fyrir Rúss­landi.

Það voru hinum gust­mikla Prússa­kóngi Friðriki gíf­ur­leg von­brigði enda hafði hann talið sig eiga í fullu tré við hið heldur feyskna Rússa­veldi sem ekki hefði jafnað sig síðan Pétur mikli dó 1725.

Friðrik, sem var frægt karl­menni, gat nátt­úr­lega ekki tekið Rússland hátíð­lega undir stjórn konu en Elísabet nokkur hafði verið þar keis­ara­ynja síðan 1741.

Gilti einu þótt Elísabet væri dóttir Péturs mikla.

Svo fór þó að Rússar sigr­uðu Prússa í hverri orr­ust­unni á fætur annarri á prúss­neskri eða pól­skri grund.

Það var aðeins heimsku­leg hegðun rúss­nesku hers­höfð­ingj­anna eftir helstu bar­dag­ana sem kom í veg fyrir að Rússar brytu snemma undir sig allt Prúss­land.

En svo var þó komið í des­em­ber 1762 að end­an­legur ósigur blasti við Prússum. Friðrik var kom­inn á von­ar­völ.

En þá dó Elísabet keis­ara­ynja.

Þýskur strákur kallaður til Rússlands

Hún átti engin börn svo Pétur, syst­ur­sonur hennar, hafði verið útnefndur rík­is­arfi 1742. Pétur var þá 14 ára og hafði aldrei til Rúss­lands komið.

Pétur mikli hafði lagt mikið upp úr að tengj­ast valda­ættum á Vest­ur­löndum og því gefið Önnu, dóttur sína, her­tog­anum í Holstein, hér­aði suður af Danmörku. Mestu skipti raunar að her­tog­inn sá átti til­kall til ríkis í Svíþjóð sem Pétur mikli hugð­ist nýta sér, þó minna yrði úr en til stóð.

Altént, í Holstein ólst Pétur Önnuson upp sem hver annar þýskur aðals­strákur.

Og hann fór heldur ekk­ert að líta á sig sem Rússa þótt hann væri kall­aður til St. Pét­urs­borgar og gerður rík­is­arfi. Satt að segja fyr­ir­leit hann Rússa en dáð­ist hins vegar mjög að Friðriki Prússa­kóngi og fór ekk­ert í felur með það.

Og þegar Elísabet, móð­ur­systir hans, dó og hann var krýndur keis­ari Rúss­lands lét hann það verða sitt fyrsta verk að stöðva í einu vet­fangi hernað Rússa gegn Prússum og ganga síðan í lið með Friðriki eins og fyrr kom fram.

Þessi algjöru umskipti á stefnu Rússa í sjö ára stríð­inu sner­ust ekki á nokkurn hátt um póli­tík eða hug­mynda­fræði eða hags­muni. Mik­il­vægt er að hafa það á hreinu.

Þvert á móti má líta á ákvörðun Péturs 3. í jan­úar 1763 sem sönnun þess að fram­ganga stór­velda snýst EKKI alltaf um ískalda hags­muni.

Rússland fórnaði eigin hagsmunum

Það hefði nefni­lega vita­skuld verið Rússum sem stór­veldi mjög til hags­bóta ef þeir hefðu lagt aust­ur­hluta Prúss­lands end­an­lega undir sig eins og allt stefndi í.

Það hefði áreið­an­lega orðið verra fyrir Evr­ópu­menn almennt og sér­stak­lega til lang­frama en það er önnur saga.

Þessum miklu hags­munum Rússa fórn­aði Pétur 3. sem sagt í við­leitni sinni til að fram­fylgja vilja átrún­að­ar­goðs­ins og fá svo­lítið hrós í hnappa­gatið frá Friðriki.

En þótt leið­togi eins stór­veldis hafi í þetta sinn snú­ist algjör­lega gegn banda­mönnum sínum og hags­munum síns eigin ríkis og ein­göngu, já, ein­göngu vegna per­sónu­legrar aðdá­unar og und­ir­gefni Péturs 3. gagn­vart Friðriki, þá er slíkt vissu­lega mjög sjald­gæft.

Ekki síst þegar stór­veldið sem lætur undan er svo miklu öfl­ugra en hitt rétt eins og raunin var 1762.

Það er eig­in­lega ekki fyrr en núna að við höfum fyrir aug­unum annað dæmi um að leið­togi risa­veldis snú­ist af algjör­lega per­sónu­legum ástæðum til fylgis við annað – og aftur mun veik­ara! – veldi, líkt og Banda­ríkin hafa nú snú­ist á sveif með Rúss­landi.

Og fyrir því er alls engin sjá­an­leg eða skilj­an­leg ástæða nema dýrkun Donalds Trump á Vladimír Pútin.

Sann­ar­lega lifum við sögu­lega tíma.

Dapurleg eftirmál

Það eru svo dap­ur­leg eft­ir­mál við þessa sögu og enn koma Þýska­land og Rússland við sögu.

Árið 1941 fyr­ir­skip­aði Adolf Hitler, for­ingi Þjóð­verja, her­sveitum sínum að ráð­ast inn í Sov­ét­ríkin, arf­taka ríkis Katrínar miklu, Péturs 3. og rúss­nesku Róma­novanna. Með því vildi Hitler tryggja sam­ein­uðu Þýska­landi, arf­taka Prúss­lands, algjör yfir­ráð í Evrópu.

Friðrik mikli var einmitt eitt helsta átrún­að­ar­goð Hitlers.

Innrásin gekk afar vel til að byrja með og 1942 virt­ust Þjóð­verjar hafa öll ráð Rússa (og Úkra­ínu­manna, Pólverja og fleiri þjóða) í hendi sér.

Þá fór að halla undan fæti og árið 1944 mátti öllum vera ljóst að Þýska­land væri dæmt til að tapa. Ekki kom þó til mála í augum Hitlers að gef­ast upp og hann vís­aði oft til þess að ekki hefði Friðrik mikli gef­ist upp þá illa horfði í sjö ára stríð­inu.

Þvert á móti hefðu hann og Prússar sýnt fádæma þol­gæði þótt allt virt­ist löngu tapað, öll sund lokuð og — ótrú­legt nokk! — á end­anum náð að snúa vörn í sókn.

Og þannig skyldu Þjóð­verjar einnig verj­ast þótt vart stæði steinn yfir steini í ríki þeirra er komið var fram á árið 1945.

Von Hitlers

Hitler von­að­ist til þess í fullri alvöru að hörð vörn Þjóð­verja myndi á end­anum leiða til þess að rakn­aði upp úr banda­lagi óvina­þjóð­anna. Jafnvel að ein­hverjar þeirra sner­ust að lokum til liðs við Þjóð­verja eins og Rússar höfðu gert 1762 þegar Pétur 3. sendi her sinn til að hjálpa Prússum að reka Aust­ur­rík­is­menn frá Slesíu.

Hitler hélt í þessa von sína fárán­lega lengi.

Þegar Franklin Roosevelt Banda­ríkja­for­seti and­að­ist 12. apríl 1945 trúði hann því að nú væri runnin upp sama örlaga­stundin og þegar Elísabet keis­ara­ynja Rúss­lands dó og arf­taki hennar sneri við blað­inu.

Vara­for­set­inn Truman myndi nú ábyggi­lega stöðva stríðs­rekst­ur­inn gegn Þjóð­verjum líkt og Pétur keis­ari 3. hafði gert.

Það leið þó ekki á löngu uns sú von brást. Í huga Trumans kom auð­vitað ekki til mála að útkljá ekki stríðið – enda dáði hann ekki Hitler líkt og Pétur 3. hafði dáð Friðrik mikla.

Og Hitler hafði ekki áttað sig á að „krafta­verkið“ sem bjarg­aði Prússum 1762 sner­ist ekki um víga­snilld Friðriks kon­ungs eða þol­gæði Þjóð­verja, heldur um duttl­unga eins manns.

Péturs 3. Fyrir því voru Þjóð­verjar löngu búnir að loka aug­unum í taum­lausri aðdáun sinni á Friðriki mikla.

Allt fór sem fór.

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana skrifaði
    Mėr finst hún skemmtileg
    0
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Athylgisverð samlíking en ég verð að gera athugasemdir við ýmislegt sem þú segir um Friðrik II (mikla). Í fyrsta lagi er það mikil einföldun að segja að hann hafi hafið 7 ára stríðið eins og þú ættir að vita. Átökin hófust í vesturheimi milli Frakka og Breta og Frakkar höfðu stutt Austurríki (sem voru ólmir að endurheimta Selisíu eftir fyrri stríð við Friðrik) og Rússland til að ráðast á Prússland bandamann Breta. Friðrik hafði verður af þessu og varð reyndar fyrri til að hefja árás á Austuríki og Saxland. Prússar unnu marga mikla sigra oftast mun fáliðaðri eins og hina frægu orrustu við Leuten 1757. En enginn má við margnum til lengdar og það kom að því að Prússland var við það að örmagnast þegar svo þessi valdaskipti í Rússlandi björguðu Friðriki.
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Takk fyrir að rifja upp þetta gleymda stríð. Ég verð að viðurkenna að þessu var ég búinn að gleyma, enda ekki lesið um sjö ára stríðið á annan áratug. Sagan hefur aftur og aftur þá áráttu að spegla sjálfa sig, þó hún sé aldrei alveg eins.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár