Þessi grein birtist fyrir rúmlega 6 mánuðum.

Fjölmiðlar fá aðeins að fylgjast með ræðu Ingu á landsfundi

Að­gengi að lands­fundi Flokks fólks­ins verð­ur tak­mark­að að tölu­verð­ur leyti á morg­un. Fjöl­miðl­ar fá að­eins að fylgj­ast með ræðu Ingu Sæ­land og fund­in­um verð­ur ekki streymt á net­inu.

Fjölmiðlar fá aðeins að fylgjast með ræðu Ingu á landsfundi
Fjölmiðlar fá aðgang að ræðu Ingu Sæland. Mynd: Golli

Landsfundur Flokks fólksins verður lokaður fyrir fjölmiðlum fyrir utan að þeir mega fylgjast með ræðu Ingu Sæland og er gefin kostur á að ræða við hana fyrir utan fundarsalinn að ræðu lokinni. Þá er tekið fram sérstaklega á vefsíðu Flokks fólksins að fundinum verði ekki streymt á vefnum og því ómögulegt að fylgjast með umræðum á fundinum nema viðkomandi sé með sæti á landsfundi og eigi heimagengt.

Ekki er óalgengt að fundir stjórnmálaflokka séu lokaðir að hluta en sjaldgæfara er að fjölmiðlar fái ekki að fylgjast með kosningum í stjórnir flokkanna.

Landsfundurinn hefst klukkan níu um morguninn og nær nokkru hámarki með ræðu Ingu Sæland, formanns flokksins, klukkan 14:00. Kosningar hefjast svo upp úr fjögur og á fundi að vera lokið um hálf sex.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár