Það rís úr djúpinu 2: Lífið fæddist í grimmu úthafi og miklu fyrr en talið var

Það rís úr djúpinu 2: Lífið fæddist í grimmu úthafi og miklu fyrr en talið var
Varð lífið til við þessar hrá­slaga­legu aðstæður? Myndin er búin til af gervi­greind­inni ChaptGPT.

Þegar ég var strákur og las fjöl­fræði­bækur þá var myndin af upp­hafi lífs­ins á Jörðinni ein­hvern veg­inn svona:

Á huggu­legri frið­sælli strönd hafði mynd­ast grunnur pollur í flæð­ar­mál­inu. Með flóð­inu bár­ust dag­lega alls­konar efni í poll­inn sem síðan urðu eftir þegar fjar­aði. Að lokum var poll­ur­inn orð­inn lík­astur þykkri súpu af alls­konar efnum, ekki síst kolefni en líka fjölda ann­arra efna, mis­flók­inna. Og þessi frið­sæli pollur undir bláum himni var bað­aður hlýju sól­skini í þús­undir, nei, millj­ónir ára.

Uns einn sól­ar­geisl­inn féll hár­rétt á eina kolefn­is­sam­eind­ina og fyrir ein­hverja efna­fræði­lega furðu tók hún að draga að sér önnur nálæg efni í poll­inum, sam­eind­irnar röð­uð­ust upp á áður óþekktan hátt, það fór eitt­hvað að titra undir sól­ar­geisl­unum, og sjá, í flækj­unni kvikn­aði líf.

Þetta var á mínum bernsku­árum talið hafa gerst fyrir rétt rúmum 2,5 millj­örðum ára.

Líf í polli?

Jörðin er 4,54 millj­arða ára gömul og ef við skiptum þeim langa tíma niður í eitt ár, þá þýðir það að lífið hafi kviknað í poll­inum góða um það bil 14. júní.

Töluvert er nú síðan vís­inda­mönnum þótti ljóst að þessi fagra og kyrr­láta mynd af upp­hafi lífs­ins stæð­ist lík­lega ekki.

Að lífið hafi kviknað í svona efna­súpu í polli er nú talið harla ósenni­legt og aðrar, nýrri kenn­ingar álitnar trú­legri.

Aðallega hefur stundin þegar líf kvikn­aði á Jörðinni samt verið að fær­ast aftar. Vís­inda­menn hafa fundið merki um örverur/ein­frum­unga í grjóti sem talið er 3,8 millj­arða ára gam­alt.

Á hinu ímynd­aða ári myndi það þýða að lífið hefði kviknað þegar 1. mars.

Það er ansi snemma í lífi Jarð­ar­innar, ef svo má að orði kom­ast.

En nið­ur­stöður rann­sóknar sem birtar voru á síð­asta ári hafa nú koll­varpað þessu áliti.

Og séu þær réttar, sem ekki er ástæða til að efast um, þá gjör­breyta þær ekki aðeins hug­myndum okkar um sögu lífs­ins á Jörðinni, heldur geta líka hafa mikil áhrif á skoð­anir okkar á mögu­leikum lífs á öðrum hnöttum.

Síðasta allsherjar foreldri lífsins

Rann­sóknin var gerð undir for­ystu dokt­ors Edmund Moodys forn­líf­fræð­ings við jarð­vís­inda­stofnun Háskól­ans í Bristol á Englandi. Sam­starfs­menn hans voru flestir Bretar en nokkrir frá Hollandi og Ung­verja­landi.

Edmund R.R. Moody doktor í forn­lif­fræðiog félagar hans gerðu þá rann­sókn sem hér er sagt frá.

Í örstuttu máli var til­gang­ur­inn að graf­ast fyrir um elsta sam­eig­in­lega „for­for­eldri“ allra líf­vera á Jörðinni.

Sú líf­vera, sem allt líf á Jörðinni er sem sé komið af, er gjarnan kölluð í fræð­unum Luca sem er skamm­stöfun á enska hug­tak­inu „last uni­ver­sal common ancestor“ — það er að segja „síð­asti alls­herjar sam­eig­in­legi for­faðir“, þótt hin íslensku „for­faðir“ eða „-móðir“ séu raunar óbrúk­leg orð í þessu sam­bandi þar eð öllum má vera ljóst að Luca var ein­frum­ungur aftur í forn­eskju sem ekki verður kenndur til kyns.

„Aðeins“ 340 milljón ár

Ekki hvarflar að mér að reyna að útskýra aðferðir Moodys og félaga við að átta sig á Luca. Engar jarð­neskar leifar af neinu tagi eru eða geta verið til um þennan nær ósýni­lega ein­frum­ung. Í stað­inn var erfða­efni líf­vera heims­ins rakið ein­hvern veg­inn aftur á bak þangað til Luca fannst að lokum.

Og þá urðu margir hissa.

Í fyrsta lagi reynd­ist Luca hafa verið uppi fyrir 4,2 millj­örðum ára.

Það er að segja aðeins 340 millj­ónum ára eftir að Jörðin varð til.

Það þykir kannski hlá­legt að tala um „aðeins“ 340 ár. En sann­leik­ur­inn er sá að allt að því fárán­lega snemma eftir að Jörðin mynd­að­ist.

Lífið kviknaði klukkan 8 að morgni

Það þýðir til dæmis að á hinu sam­þjapp­aða ári, sem ég nefndi áðan, þar hefur líf kviknað á Jörðinni 28. jan­úar klukkan átta að morgni.

Og þá var sann­ar­lega öðru­vísi um að lit­ast á Jörðinni en nú.

Theia skall á Jörðinni með látum.

Jörðin varð til fyrir 4,54 millj­örðum ára, sem fyrr segir.

Mjög snemma, kannski þegar Jörðin var aðeins 40 milljón ára, varð sá árekstur við plánet­una Theiu sem mynd­aði Tunglið okkar. Hérna má lesa um þann árekstur.

Það var strax þann 4. jan­úar klukkan fimm að morgni.

Það tók Jörðina langan tíma að jafna sig eða um 100 milljón ár. Yfir­borðið var enda nálega allt sem bráðið hraun eftir ham­far­irnar miklu.

Og  bætti síst úr skák að enn rigndi niður á yfir­borðið loft­steina­fjöld og hala­stjörnu- frá árdögum sól­kerf­is­ins.

Steypiregn í milljónir ára

Snemma að morgni 12. jan­úar á hinu sam­þjapp­aða ári má loks segja að jarð­skorpan hafi verið storknuð. Þá var and­rúms­loftið orðið mettað vatns­gufu sem vænt­an­lega hafði borist til Jarð­ar­innar með hala­stjörnum og loft­steinum.

Vatnið hafði hingað til gufað upp jafn­óðum af gló­andi yfir­borð­inu en nú þegar vatnið náði að þétt­ast tók að rigna.

Og það rigndi í millj­ónir og aftur millj­ónir ára.

Loks var Jörðin öll hulin vatni. Ástæðan var fyrst og fremst sú að jarð­skorpan var ennþá slétt og jöfn, því hvorki eld­gos né land­reks­öfl höfðu náð að hlaða landmassa upp úr vatn­inu.

Sú þróun var hins vegar að hefj­ast. Þann 28. jan­úar — þegar Jörðin var sem sé orðin 340 milljón ára og Luca kom í heim­inn — þá hafa nokkrar eld­fjalla­eyjar ugg­laust verið byrj­aðar að gægj­ast upp úr vatns­haf­inu en Jörðin átti samt lengi enn eftir að vera fyrst og fremst vatna­ver­öld.

Himinninn var ekki blár

Enn hefur fjöldi loft­steina og hala­stjarna skollið reglu­lega á Jörðinni. Him­inn­inn var ekki blár, því það er fyrst og fremst súr­efni í and­rúms­loft­inu sem veldur því að við sjáum hann sem bláan. Senni­lega hefur him­inn­inn verið rauð­gulur eða jafn­vel rauð­brúnn.

En iðu­lega hafa dimm ský frá hinum þrot­lausu eld­gosum lagst yfir meiri­hluta Jarðar.

Og það segir sig sjálft að hið súr­efn­is­lausa and­rúms­loftið hefði ekki verið frísk­legt fyrir okkur. Við hefðum stein­drep­ist á stund­inni ef okkur hefði verið ætlað að draga and­ann þarna.

Jörðin sner­ist þá mun hraðar en nú svo sól­ar­hring­ur­inn var aðeins 12 tímar. Tunglið var líka miklu nær en nú og hefur virst að minnsta kosti helm­ingi stærra á himn­inum. Afleið­ingin var meðal ann­ars sú að flóð og fjara hafa verið miklu öfga­meiri en nú er.

Luca verður til

En þarna, í grimmum sjónum á þess­ari skelfi­legu plánetu, þar varð Luca til.

Í djúp­inu.

Hverastrýtur í Eyja­firði.Sú kenn­ing nýtur vax­andi hylli að lífið kunni að hafa orðið til þar sem heit hvera­efni af öllu tagi streymdu út í sjó.

Ekki í huggu­legum frið­sælum polli undir fag­urri sól og bláum himni.

Það sem er svo kannski allra merki­leg­ast við nið­ur­stöður Moodys og félaga er að sá Luca sem þau röktu sig aftur til, hann sýndi ýmis merki þess að hafa „fæðst“ í nokkuð stöð­ugu vist­kerfi.

Sem ef til vill hafði þá þegar verið lengi við lýði.

Hann bjó meira að segja yfir vísi að ónæm­is­kerfi svo hann hefur þurft að verja sig fyrir ein­hverjum líf­verum (eða vírusum) sem við vitum nú ekk­ert hverjar eða hvernig voru.

Því þær hafa dáið út með öllum sínum ókunnu sér­kennum og eig­in­leikum en Luca litli getið af sér bók­staf­lega allt núlif­andi líf á Jörðinni.

Líf miklu víðar?

Fyrir utan þá stór­merki­legu nið­ur­stöðu að lífið á Jörðinni hafi kviknað miklu fyrr en við ætl­uðum, þá kveikir þessi nýja mynd af Luca ýmsar merki­legar hug­myndir.

Ef lífið á Jörðinni gat orðið til svo snemma eftir að Jörðin mynd­að­ist og við svo ofsa­fengnar aðstæður, hvað er þá því til fyr­ir­stöðu að það hafi kviknað á Mars eða Venusi líka? Á Mars voru víð­áttu­mikil höf í árdaga og ekki ólík­legt að svo hafi verið á Venusi líka.

Og eykur það ekki lík­urnar á að líf nái að þró­ast á öðrum hnöttum að Jörðin var nán­ast enn í frum­bernsku þegar hún var orðin iðandi af lífi — þótt fyrstu millj­arð­ana hafi það líf að vísu aðeins verið ein­faldir ein­frum­ungar sem bjuggu í djúp­inu?

Hér má lesa frétt Observer um þetta merki­lega mál.

Og hér er hlekkur á rit­gerð þeirra Edmunds Moodys og félaga sem birtir nið­ur­stöður þeirra.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Ef sú uppgötvun að lífið á jörðinni hafi byrjað mun fyrr en áður var talið sé vísbending um að það sé auðveldara fyrir líf að myndast heldur en áður var talið, hvers vegna hefur það þá bara myndast einu sinni á jörðinni? Hvers vegna er ekki enn að myndast nýtt líf?
    0
    • Illugi Jökulsson skrifaði
      Þetta er reyndar góð spurning sem full ástæða er til að velta fyrir sér. Stutta svarið að líf gæti reyndar hafa orðið til oftar en einu sinni á jörðinni en það ónæmiskerfi sem LUCA var búin hafi einmitt verið til marks um það; einfrumungurinn knái hafi átt í samkeppni við aðrar lífverur sem við vitum nú ekkert um. Líf af okkar tagi hafi svo smátt og smátt lagt svo rækilega undir sig jörðina að það hafi orðið einrátt. Best ég skrifi um hugleiðingar af þessu tagi fyrr en síðar.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár