Ný ríkisstjórn efnir til kosninga um ESB

Sam­starfs­samn­ingur Flokks fólks­ins, Við­reisnar og Sam­fylk­ing­ar­innar verður kynntur á morgun. Eitt af þeim málum sem verður sett á odd­inn eru kosn­ingar til ESB. Þetta herma upp­lýs­ingar Heim­ild­ar­innar.

Ný ríkisstjórn efnir til kosninga um ESB
Stjórnin Ný rík­is­stjórn setur ESB á odd­inn. Mynd: Golli

Stefnt verður að því að kjósa um áfram­hald­andi við­ræður um ESB sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar og verður málið kynnt á fundi nýrrar rík­is­stjórnar á morgun þegar áherslur stjórn­ar­sátt­mál­ans verða opin­ber­aðar.

Lítil and­staða var við hug­mynd­ina í samn­inga­við­ræð­unum. Heim­ild­ar­menn segja þó að það sé óljós­ara hvenær verði kosið. Þó má gera ráð fyrir að kosn­ing­arnar færu að minnsta kosti fram á seinni­hluta kjör­tíma­bils­ins.

Þær skýr­ingar feng­ust að flokk­arnir vilja bæði und­ir­búa jarð­veg­inn vel en ekki síst sjá hver þró­unin verður í alþjóð­aum­hverf­inu, þá sér­stak­lega með til­liti til nýs for­seta Banda­ríkj­anna, Donald Trump, sem hefur hótað miklum tollum á erlendan inn­flutn­ing. 

Sátt um kosningar um ESB

Formaður Við­reisnar er sagður hafa verið ósveigj­an­legur þegar kom að ESB og féllust bæði for­menn Flokks fólks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar á að kjósa um áfram­hald­andi við­ræður. Það hefur verið lengi á stefnu­skrá Sam­fylk­ing­ar­innar að sækja um ESB og leyfa þjóð­inni að kjósa um inn­göngu …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands heimilar ekki ESB aðild og þingmenn verða að vinna drengskaparheit að henni. Ákvæði stjórnarskrár eru ekki umsemjanleg í neinum viðræðum við erlend samtök. Engin þjóðaratkvæðagreiðsla getur breytt þessum staðreyndum.
    -7
    • SÍF
      Sveinn í Felli skrifaði
      Guðmundur: Það er í sífellu verið að semja um ýmsar tilhliðranir á "ákvæðum stjórnarskrár" landsins í mörgum alþjóða- og milliríkjasáttmálum, algrófast var auðvitað þegar samið var um veru setuliðs Bandaríkjanna eftir seinni heimsstyrjöld. Þannig að fordæmin eru mýmörg, og hvorteðer löngu tímabært að gera nýja stjórnarskrá sem hentar nútímasamfélagi.
      4
    • Sigurdur Erlingsson skrifaði
      Hvað í stjórnarskránni og stjórnskipunarlögum og hefðum bannar það?
      1
    • ÁH
      Ásmundur Harðarson skrifaði
      Ef ESB aðild er brot á stjórnarskrá þá er aðild okkar að EES það líka. Jafnvel enn frekar vegna þess að við tökum ekki þátt í ákvörðunum þar eins og í ESB ef af aðild verður.
      Það má því færa rök fyrir því að með þátttöku í EES felist fullveldisafsal en ekki í ESB aðild. Þar er um að ræða samstarf ríkja þar sem við tökum fullan þátt.
      1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Sigurður Erlingsson. 2. gr. stjórnarskrárinnar hefst á orðunum "Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið." Aðild að ESB felur í sér að stofnanir sambandsins fái í hendur hluta löggjafarvalds aðildarríkja, en slíkt rúmast ekki innan þessa ákvæðis.

      Ásmundur Harðarson. EES samningurinn var sérhannaður til að komast hjá þessu og í bókun 35 við hann er sérstaklega tekið fram að samningsaðilum sé ekki gert að framselja löggjafarvald til stofnana Evrópska efnahagssvæðisins. Menn hafa svo deilt um það hvort samningurinn gangi þrátt fyrir þetta of nærri því að fela í sér valdaframsal og sú umræða á alveg rétt á sér. Hvað sem því líður myndi ESB aðild óumdeilanlega útheimta framsal löggjafavalds sem færi yfir þessa línu og það leyfir stjórnarskráin ekki.

      Sveinn í Felli. Samningar geta ekki vikið til hliðar ákvæðum stjórnarskrár sem er og verður alltaf æðsta lagaheimild íslenskra laga. Það er ekkert í stjórnarskránni sem bannar íslenskum stjórnvöldum að semja við erlend ríki eða bandalög um tímabundin afnot af landsvæði eða umferðarrétt. Varnarsamningurinn fól ekki heldur í sér neitt framsal á ríkisvaldi í líkingu við það sem ESB aðild myndi gera.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár