Mynd: Shutterstock

Vont að vita af þeim einum yfir hátíðarnar

„Maður veltir fyrir sér hvað varð til þess að hann var bara einn og var ekki í tengslum við einn né neinn,“ segir lög­reglu­kona sem fór í útkall á aðvent­unni til ein­stæð­ings sem hafði dáið einn og legið lengi lát­inn.

Lása­smið­ur­inn sat á hækjum sér og var við það að opna hurð­ina. Lög­reglu­konan stóð fyrir aftan hann ásamt félaga sínum. Fyrir aftan þau voru nágrannar manns­ins sem bjó í íbúð­inni. Þeir höfðu óskað eftir aðstoð lög­reglu því þeir höfðu áhyggjur af mann­inum. Bréf­póst­ur­inn hafði safn­ast upp í póst­kass­anum í and­dyr­inu og það hafði ekki sést til hans í nokkra daga. Lög­reglu­konan hugs­aði um líf ein­stak­lings­ins sem bjó í íbúð­inni. Hún og félagi hennar höfðu hringt dyra­bjöll­unni og reynt að hringja í síma manns­ins. Þau höfðu bankað en ekki fengið neitt svar. Lög­reglu­konan var að hugsa um líf manns­ins þegar lása­smið­ur­inn var í þann mund að dýrka upp lás­inn til að opna dyrnar. „Maður er ein­hvern veg­inn við­bú­inn öllu,“ segir lög­reglu­konan þegar hún er í aðstæðum sem þessum. 

Dyrnar opn­uð­ust og það var eins og lög­reglu­konan gengi inn í for­tíð­ina. Íbúðin var lítil. „Við förum inn …

Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdotir skrifaði
    ALDREI HEF EG VERIÐ EINMANA!ÍHVAÐA AÐSTÆÐUM SEM EG HEF VERIÐ Í UM ÆVINA!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár