Morðingi hylltur sem alþýðuhetja: „Viðbrögðin líkjast uppreisn“

Viðbrögð almenn­ings við svip­legu morði á for­stjóra eins stærsta sjúkra­trygg­inga­fé­lags Banda­ríkj­anna hafa komið mörgum á óvart og hrundið af stað mik­illi umræðu þar í landi. Sveinn Máni Jóhann­es­son, nýdoktor í sagn­fræði við Háskóla Íslands, segir árás­ina tala inn í djúp­stæða gremju sem margir Banda­ríkja­menn finna til gagn­vart heil­brigð­is­kerf­inu og vinnu­brögðum einka­rek­inna sjúkra­trygg­inga­fé­laga. Óljóst er hins vegar hverju þessi umræða muni skila.

<span>Morðingi hylltur sem alþýðuhetja: </span> „Viðbrögðin líkjast uppreisn“
Hetja eða skúrkur? Eftir mikla leit var 26 ára gam­all maður, Luigi Mangione, hand­samaður vegna gruns um að hafa myrt Brian Thompson, for­stjóra UnitedHealthcare. Fjöl­miðlar og stjórn­mála­menn hafa for­dæmt morðið á meðan fjöl­margir almennir borg­arar hafa rétt­lætt á ódæðið á í færslum hafa birst víða á sam­fé­lags­miðlum. Mynd: /AFP

Eitt af stærstu frétta­málum árs­ins er án efa morðið sem var framið í New York snemma í mán­uð­inum, þar sem for­stjóri eins stærsta sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tækis Banda­ríkj­anna var ráð­inn af dögum fyrir utan hótel í miðbæ Man­hattan. Brian Thompson var for­stjóri UnitedHealthcare sem er dótt­ur­fyr­ir­tæki UnitedHealth Group, sjúkra­trygg­inga­sam­steypu sem metin er á 560 millj­arða Banda­ríkja­doll­ara.

Árásin náð­ist á örygg­is­mynda­vél og mynd­band af morð­inu fór fljót­lega í mikla dreif­ingu á frétta- og sam­fé­lags­miðlum og vakti mik­inn óhug. Málið hefur fangað athygli fólks víða um heim og þykir hið und­ar­leg­asta.

Það sem hefur ekki síður vakið athygli eru óvænt við­brögð almenn­ings í Banda­ríkjum við skotárásinni. Margir virð­ast sýna árásinni nokkurn skiln­ing og sumir hafa gengið svo langt að fagna morð­inu og jafn­vel gert grín á kostnað hins látna. Þetta má glöggt greina í fjöl­mörgum færslum sem hafa verið birtar víða á sam­fé­lags­miðlum.

Sveinn Máni Jóhann­es­sonnýdoktor í sagn­fræði við Háskóla Íslands.

Sveinn Máni Jóhann­es­son, nýdoktor í sagn­fræði við Háskóla Íslands, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að umræðan sem árásin hefur hrundið af sé stór­merki­leg og beri vitni um þá miklu gremju sem kraumi undir yfir­borð­inu gagn­vart heil­brigð­is­kerf­inu í Banda­ríkj­unum. Óánægjan gangi þvert hið póli­tíska lit­róf og Sveinn segir að það hafi að vissu leyti ekki komið á óvart að hún hafi brot­ist út með þessum hætti.

Hann segir ofbeldi alltaf hafa ein­kennt banda­rísk stjórn­mál en ofbeldið hafi frekar beinst að stjórn­mála­fólki og síður að fólki úr við­skipta­líf­inu. Hann segir að skil­greina megi óvænt við­brögð almenn­ings sem nokk­urs konar upp­reisn. Óljóst er hins vegar hvaða áhrif þessi upp­reisn mun hafa á banda­rísk stjórn­mál og sam­fé­lag.

Skipulögð árás með skýr skilaboð

Eins og áður hefur komið fram er talið að árásin hafi verið vand­lega skipu­lögð og fram­kvæmd með það að marki að vekja mikla athygli og senda skila­boð út í sam­fé­lagið. Ber þar helst nefna skot­hylki sem lög­reglan í New York upp­lýsti um að hefðu fund­ist á vett­vangi sem árás­armað­ur­inn merkti með skila­boð­unum „delay“, „deny“ og „depose“, sem myndi útleggj­ast á íslensku sem tefja, hafna og afsetja eða steypa af stóli.

Margir telja að um sé að ræða vísun í bók­ina Delay, Deny, Defend: Why Insurance Companies Don’t Pay Claims and What You Can Do About It, sem kom út árið 2010.

Rauk upp í söluSala á bók­inni jókst eftir að upp­lýst var um að árás­armað­ur­inn hefði skrifað skila­boð sem margir telja vera vísun í bók­ina á skot­hylki sem fund­ust á vett­vangi.

Bókin fjallar með gagn­rýnum hætti um vinnu­brögð banda­rískra trygg­inga­fyr­ir­tækja og hvernig slík fyr­ir­tæki leita gjarnan ýmissa leiða til þess að kom­ast hjá því að greiða út bóta­kröfur til við­skipta­vina sinna. Höfundur bók­ar­innar er banda­ríski lög­fræð­ing­ur­inn Jay M. Feinman, pró­fessor emi­ritus við Rutgers Law School í New Jersey.

Margir hafa í kjöl­farið dregið þá ályktun að árásin hafi verið framin í því skyni að mót­mæla fram­göngu heil­brigð­is­trygg­inga­fé­lags á borð UnitedHealthcare og stöðu heil­brigð­is­mála í Banda­ríkj­unum almennt.

Einka­rekin sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tæki á borð við United Healthcare hafa lengi verið gagn­rýnd fyrir vinnu­brögð sín og ekki síst fram­göngu sína gagn­vart skjól­stæð­ingum sínum sem reiða sig á fyr­ir­tækin til að fá lækn­is­þjón­ustu.

Óvænt viðbrögð almennings á samfélagsmiðlum

Hvað sem því líður virð­ast skila­boðin sem árás­armað­ur­inn hafi ætlað sér að senda fallið í frjóan jarð­veg. Fljót­lega eftir að fregnir af árásinni bár­ust fór almenn­ingur að tjá sig um málið í færslum á sam­fé­lags­miðlum þar sem ódæðið var ýmist rétt­lætt með vísan til vinnu­bragða sjúkra­trygg­inga­fé­lags­ins og því jafn­vel fagnað. Í fjöl­mörgum færslum sem hafa birst á sam­fé­lags­miðl­inum X má glöggt greina ákveðna þórð­ar­gleði yfir svip­legum örlögum Thomp­sons.

Í sumum færslum er bent á að UnitedHealthcare sitji á efsta sæti lista yfir banda­rísk trygg­inga­fé­lög sem hafni hlut­falls­lega flestum bóta­kröfum. Í einni færslu sem birt var á X sést graf yfir höfn­un­ar­hlut­fall mis­mun­andi sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum; þar sést að UnitedHealthcare hafnar um 30 pró­sent af bóta­kröfum sem lagðar eru fram til fyr­ir­tæk­is­ins.

Í frétt sem birt var á frétta­miðl­inum NBC er sagt frá því að skömmu eftir árás­ina hafi vörur á borð við boli, peysur, kaffi­bolla og jafn­vel jóla­skraut með áprent­uðum skila­boðum árás­armanns­ins farið að birt­ast í net­versl­unum á borð við Amazon, Ebay og Etsy. Stjórn­endur Amazon brugð­ust snar­lega við þessu með því að taka allan slíkan varn­ing úr sölu á vef­síðu sinni.

Algengt stef í bandarískum stjórnmálum

Sveinn Máni Jóhann­es­son hefur á sínum fræði­manna­ferli rann­sakað stjórn­mála- og hug­mynda­sögu Banda­ríkj­anna og við­fangs­efni á borð við popúl­isma og neyð­ar­stjórn­mál. Hann segir að ofbeldi hafi lengi ein­kennt banda­rísk stjórn­mál. Þar í landi sé ákveðin hefð fyrir því að ein­stak­lingar og hópar taki málin í sínar eigin hendur og beiti ofbeldi í póli­tískum til­gangi. Sveinn bætir því við að í Banda­ríkj­unum sé byssu­eign útbreidd og gott aðgengi að ýmsum vopnum greiði leið þeirra sem hafi hug á slíkum aðgerðum.

„Það er nátt­úru­lega búið að reyna ráða Donald Trump tvisvar sinnum af dögum, bara á þessu ári. Þar á undan var inn­rásin inn í þing­húsið 2021, þetta talar inn í ákveðna hefð. Að ein­stak­lingar og hópar taki ráðin í sínar eigin hendur og beiti ofbeldi í póli­tískum til­gangi. Það nær aftur til amer­ísku bylt­ing­ar­innar og hefur ein­kennt sögu Banda­ríkj­anna á flestum stigum.“

Sveinn telur hins vegar að morðið á for­stjóra UnitedHealthcare skeri sig úr þess­ari hefð að því leyti að sú póli­tíska árás hafi beinst að ein­stak­lingi úr heimi við­skipta en ekki stjórn­mála. Árás­armað­ur­inn virð­ist hafa verið einn að verki og bak­grunnur hans virð­ist ekki dæmi­gerður ef litið er til ann­arra árás­armanna af þessum toga. Þrátt fyrir það virð­ist sá grun­aði hafa orðið reiður út í kerfið og gripið til fyrr­nefndra aðgerða. Þær aðgerðir hafi talað inni í gremju sem hefur gætt meðal Banda­ríkja­manna gagn­vart heil­brigð­is­kerf­inu um ára­tuga­langt skeið.

Lítið talað um heilbrigðismál í kosningabaráttunni

„Það sem hlýtur að útskýra að þetta fari á svona flug er að hin hefð­bundnu stjórn­mál í Banda­ríkj­unum virð­ast ekki vera fær um að svara þess­ari gríð­ar­legu óánægju sem er um við­skipti fólks við þessi stóru trygg­inga­fé­lög sem hagn­ast bein­línis á því að neita fólki um lækn­is­þjón­ustu,“ segir Sveinn og bendir á að í aðdrag­anda þing- og for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum í nóv­em­ber hafi nán­ast ekk­ert verið minnst á heil­brigð­is­mál í kosn­inga­bar­átt­unni.

Sveinn segir sömu­leiðis að honum hafi þótt sér­lega áhuga­vert að sjá hversu sterkar til­finn­ingar málið hefur vakið meðal Banda­ríkja­manna og lesa sög­urnar þar sem margir deila reynslu sinni af við­skiptum sínum við heil­brigð­is­trygg­inga­fé­lög sín.

„Ég sá tölur um að banda­rísk heil­brigð­is­trygg­ing­ar­fyr­ir­tæki neiti 248 milljón umsóknum um end­ur­greiðslu eða lækn­is­með­ferð árlega. Það er gríð­ar­lega stór hluti Banda­ríkja­manna sem hefur per­sónu­lega reynslu af því að vera neitað um lækn­is­þjón­ustu eða end­ur­greiðslu og þar af leið­andi fá ann­að­hvort ekki lækn­is­þjón­ustu eða lendir í gríð­ar­legri skuld,“ segir Sveinn. 

Hann bætir við að þetta eigi bara við þá sem eru sjúkra­tryggðir en fjöl­margir Banda­ríkja­menn hafa engar sjúkra­trygg­ingar. Samkvæmt gögnum frá Sótt­varn­ar­stofnun Banda­ríkj­anna voru rúm­lega 25 millj­ónir Banda­ríkja­manna ekki sjúkra­tryggðir árið 2023.

Hylltur sem alþýðuhetja

Í færslum á sam­fé­lags­miðlum og varn­ingi sem gengur kaupum og sölum á Inter­net­inu má sjá að Mangione er hylltur sem nokk­urs konar alþýðu­hetja sem bjóði banda­rískum stór­fyr­ir­tækjum birg­inn. Í þessum færslum er skotárásinni lýst sem upp­takti ein­hvers konar bylt­ingar öreiga gegn hinum ríku og valda­miklu í sam­fé­lag­inu.

Í grein sem birt var á frétta­veit­unni Politico í síð­ustu viku eru færð rök fyrir því að margir þeirra sem hafa tjáð sig á sam­fé­lags­miðlum um árás­ina líti á árás­armann­inn sem nokk­urs konar Hróa Hattar-fígúru. Árá­samað­ur­inn verður þannig að nokk­urs konar alþýðu­hetju sem fer á svig við lögin í bar­áttu sinni gegn ójöfn­uði og félags­legu órétt­læti sem birt­ist meðal ann­ars í heil­brigð­is­kerf­inu í Banda­ríkj­unum. Í mörgum af þessum færslum er fleiri leið­togum í banda­rísku við­skipta­lífi sagt að vara sig.

Sveinn segir að um langt skeið hafi sam­fé­lags­leg ólga í Banda­ríkj­unum brot­ist út í ofbeld­is­fullum aðgerðum sem ein­stak­lingar og hópar hafa beitt hverju sinni. Þessar aðgerðir hafi þó einna helst beinst að stjórn­mála­mönnum og leið­togum stjórn­mála­hreyf­inga, ekki síst for­setum Banda­ríkj­anna.

„Núna bein­ist reiðin að yfir­manni fyr­ir­tækis, sem er mjög áhuga­vert. Það minnir mann meira á til dæmis Baader-Meinhof í Þýska­landi og aðrar slíkar hreyf­ingar sem beindu aðgerðum sínum að banka­mönnum, iðn­jöfrum og öðrum,“ segir Sveinn og bætir því við að hann sé ekki viss um að slíkar árásir eigi sér mörg for­dæmi í banda­rískri sögu. Þar megi helst nefna blóðug átök milli verka­lýðs­hreyf­inga og atvinnu­rek­anda sem áttu sér stað undir lok 19. aldar í Banda­ríkj­unum, á hinu svo­kall­aða Gyll­ing­ar­tíma­bili (e. Gilded Age), meðal ann­ars fyrir til­stilli anar­kista.

Viðbrögðin þvert á flokkslínur

Annar þáttur sem grein­endur hafa tekið eftir að ein­kennir þessa umræðu er að reiðin sem skotárásin talar inn í gengur þvert á flokka. Fólk sem stað­setur sig ýmist yst til vinstri og til hægri í banda­rískum stjórn­málum, hópar sem ná sjaldan saman um nein mál­efni, virð­ast vera sam­mála um að um sé að ræða eðli­lega afleið­ingu af þeirri miklu óánægju sem gætir um starf­semi heil­brigð­is­trygg­inga­fé­laga í Banda­ríkj­unum.

„Þetta virð­ist höfða til fólks sem kýs báða flokka. Þetta er ekki flokkspóli­tískt, eigum við ekki að kalla þetta upp­reisn. Við­brögðin líkj­ast upp­reisn. Af því þetta fer svo þvert gegn því sem er sið­ferð­is­lega rétt að gera, sem er ekki að fagna morðum. Þannig að mörgu leyti er þetta upp­reisn þó svo þetta sé bara á net­inu,“ segir Sveinn.

Hann bætir við að hann skynji þessa umræðu á þann veg að margir túlki árás­ina sem nokk­urs konar útrás fyrir ára­tuga­langa gremju út í heil­brigð­is­trygg­inga­fé­lögin.

„Flestir eru á móti morði á fólki, það hlýtur að vera, en það sem virð­ist vera að ger­ast er að mörgum finnst heil­brigð­is­iðn­að­ur­inn, trygg­inga­iðn­að­ur­inn, svo slæmur að það sem hann er búinn að gera sé jafn­gilt því sem þessi ungi maður gerði. Það er svona til­finn­ingin sem ég fæ, að það sé verið að greiða í sömu mynt.“

Óljóst hver áhrifin muni verða

Spurður hvort umræðan, sem hefur stig­magn­ast ört á und­an­förnum vikum, muni hafa ein­hver telj­andi áhrif á banda­rísk stjórn­mál og sam­fé­lag segir Sveinn að erfitt sé að spá fyrir um það. Hins vegar kæmi það honum ekki á óvart að umræðan muni hafa tak­mörkuð áhrif og skila litlu hvað varðar póli­tískar stefnu­breyt­ingar í heil­brigð­is­málum.

Þrátt fyrir að málið hafi valdið miklum hita og usla á sam­fé­lags- og frétta­miðlum telur hann afar ólík­legt, sér­stak­lega í ljósi þess að Repúblikanar hafa náð meiri­hluta í báðum deildum Banda­ríkja­þings og for­seta­stólnum, að breyt­ingar verði gerðar á mála­flokknum.  

„Það er nátt­úru­lega gall­inn við þessa stjórn­mála­menn­ingu hvað hún er bundin við sam­fé­lags­miðla, er ein­stak­ling­smiðuð og ein­angr­andi. Þannig að erfitt er að byggja hreyf­ingu í kringum þetta en það er aldrei að vita hvað getur gerst,“ segir Sveinn og bætir við að stjórn­málin þar í landi séu gjarnan óút­reikn­an­leg. Þá telur hann, miðað við umfang umræð­unnar, að póli­tísk tæki­færi séu til staðar til þess að stíga inn og tala inn í þessa reiði sem gætir meðal fólks.

„Erfitt að byggja hreyf­ingu í kringum þetta en það er aldrei að vita hvað getur gerst.“
Sveinn Máni Jóhann­es­son

Spurður hvort við­brögðin við árásinni gætu leitt til fleiri slíkra voða­verka segir Sveinn það ekki úti­lokað. 

„Að það dúkki upp einn og einn ein­stak­lingur sem býr við ákveðna félags­lega ein­angrun og mögu­lega ein­hver geð­ræn vanda­mál, það er ekk­ert ólík­legt að það muni aukast sér­stak­lega eftir þessa gíf­ur­legu athygli og í raun­inni hrós sem þessi ein­stak­lingur hefur fengið,“ segir Sveinn. Hann telur aftur á móti skipu­lagðar árásir á stærri skala ólík­legar.

Þá telur hann vera ofsögum sagt að árásin sem framin var í byrjun mán­að­ar­ins og við­brögðin við henni séu upp­haf að útbreidd­ari átökum og jafn­vel borg­ara­styrj­öld sem margir í Banda­ríkj­unum hafa haft áhyggjur af muni brjót­ast út.

Rof á minni skala myndaðist á Íslandi í kjölfar hrunsins

Spurður hvort finna megi ein­hverjar hlið­stæður úr íslenskri stjórn­mála­sögu við það sem hefur verið að eiga sér stað í Banda­ríkj­unum und­an­farna daga og vikur segir Sveinn að bless­un­ar­lega sé íslenskur stjórn­málakúltúr afar frið­sam­legur í alþjóð­legum sam­an­burði. Hann seg­ist hins vegar sjá nokkur lík­indi í þeim sið­ferði­lega ágrein­ingi milli almenn­ings og fjöl­miðla í Banda­ríkj­unum og þeim sem skaut koll­inum hér landi á árum eftir efna­hags­hrunið 2008.

„Þegar fólk var að mót­mæla fyrir utan heim­ili til­tek­inna stjórn­mála­manna og mögu­lega vinna ein­hvers konar skemmd­ar­verk á heim­ilum þeirra. Það er svona það fyrsta sem mér dettur í hug og þar svona höfum við séð almenn­ing ann­ars vegar og stjórn­mála- og fjöl­miðla­stétt­ina hafa dálítið ólíkar hug­myndir um hvar línan eigi að vera. En þetta er á tölu­vert minni skala, til allrar ham­ingju,“ segir Sveinn og tekur fram að þessi ágrein­ingur hafi aðeins átt við afmark­aðan hluta almenn­ings hér landi.

„Þetta er nátt­úru­lega alltaf ákveðin spurn­ing um það hvar þessi lína er dregin, þó svo aug­ljós­lega við séum komin langt út fyrir hana þegar það er farið að skjóta fólk.“

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Arđsemiskrafan er banvæn jafnvel í Mekka kapítalismans. Græđgin étur börnin sín ,,in the end".
    2
  • HL
    Hjalti Leifsson skrifaði
    Neytanir heilsutryggingafélaga og þögn stjórnmálamanna koma úr einum og sama jarðveginum: Stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna eru stjórnmálafígúrur, með lobbýisma, mútum og áróðri hafa þau meiri áhrif en prinsipp stjórnmálamanna á lagasköpun og ríkisrekstur. Þessvegna hafa þau "tjáningarfrelsi". Þetta var stjórnmáladrifið morð, og ég vil benda á að stefnur annara fyrirtækja í geiranum gagnvart kúnnum linuðust í kjölfarið.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár