Allir vindorkukostirnir fari í biðflokk rammaáætlunar

Líklegt má telja að þeir vind­orku­kostir sem áform­aðir eru á far­leiðum hafarna fari að end­ingu í vernd­ar­flokk að mati verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar sem setur þá þó í bið­flokk. Í bili að minnsta kosti.

Allir vindorkukostirnir fari í biðflokk rammaáætlunar
Fyrsti skammtur Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hefur gert drög að flokkun tíu vind­orku­kosta en á enn eftir að yfir­fara meira en tutt­ugu slíka til við­bótar. Mynd: Grafík/Davíð

Bið­flokkur. Bið­flokkur. Og aftur bið­flokkur. Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hefur birt drög að til­lögu sinni að flokkun tíu vind­orku­kosta í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Er í öllum til­vikum lagt til að virkj­un­ar­hug­mynd­irnar, sem eru um allt land, fari í bið­flokk ramma­á­ætl­unar. Í þann flokk fara þeir kostir sem talið er að enn skorti á gögn og rann­sóknir til að flokka í annað hvort verndar- eða nýt­ing­ar­flokk. Í nokkrum til­vikum eru rökin þau að betur eigi eftir að rann­saka far­leiðir hafarna á við­kom­andi svæði en líkt og Heim­ildin hefur fjallað ítar­lega um að und­an­förnu eru hafernir í sér­stakri hættu á því að fljúga á vind­myllur. 

Samráðið nú er fyrra umsagn­ar­ferlið sem til­laga verk­efn­is­stjórnar fer í áður en loka­til­laga að flokkun verður send ráð­herra umhverf­is­mála. Ráðherra setur til­lög­urnar svo fram á Alþingi í formi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu og það er því þings­ins að taka end­an­lega ákvörðun um málið. 

Verk­efn­is­stjórnin hefur yfir tutt­ugu vind­orku­kosti til við­bótar til með­ferðar. 

Hér að neðan má finna útdrátt úr rök­stuðn­ingi verk­efn­is­stjórn­ar­innar fyrir því að flokka allar virkj­un­ar­hug­mynd­irnar tíu í bið­flokk. Nið­ur­staðan er m.a. byggð á mati fjög­urra fag­hópa sem að vinn­unni koma sem allir hafa ákveðið áhrifa­svið til umfjöll­unar.

Alviðra í Borgarfirði

AlviðraVind­myllur á Grjót­hálsi í Borg­ar­firði myndu sjást víða að.

Fram­kvæmda­að­ili er félagið Hrjónur ehf sem er í eigu Helga Hjörvars, fyrr­ver­andi þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Hug­myndin er að reisa virkj­un­ina á Grjót­hálsi, sem liggur milli Norð­ur­ár­dals og Þver­ár­hlíðar í Borg­ar­firði.  Vind­myll­urnar yrðu 10-14 tals­ins og yrðu reistar á landi í einka­eigu á jörð­unum Haf­þórs­stöðum og Sig­mund­ar­stöðum, á milli nær­liggj­andi jarða. 

Flokkun: Bið­flokkur

Rök­stuðn­ingur: Við mat fag­hópa og í sam­an­burði við þá virkj­un­ar­kosti sem hér eru til umfjöll­unar koma fram mörg atriði sem gera Alviðru ekki ákjós­an­lega stað­setn­ingu fyrir vind­orku­ver. Skiptir þar sér­stak­lega mikil sjón­ræn áhrif í stóru hér­aði, verð­mætt lands­lag, nei­kvæð afstaða sam­fé­lags, svo og margs­konar verð­mæti nátt­úru sem mann­virkin mun raska. Einnig komu í ljós gögn sem sýna nálægð við far­leiðir hafarna sem þarf að rann­saka betur. 

Garpsdalur í Reykhólasveit

Garps­dalurVind­myllur í 500 metra hæð myndu sjást víða að.

Fram­kvæmda­að­ili er EM Orka. Virkj­unin yrði reist á Garps­dals­fjalli, norðan Gils­fjarðar á Vest­fjörðum. Um 21 vind­mylla yrði reist á hásléttu í um 500 metra hæð yfir sjó. 

Flokkun: Bið­flokkur

Rök­stuðn­ingur: Helstu rök fyrir því að þetta verk­efni er flokkað í bið­flokk er að í vinnu fag­hóps 1 hafa komið fram bætt gögn um far­leiðir hafarna. Virkj­un­ar­kost­ur­inn er á jaðri vernd­ar­svæð­is­ins Breiða­fjarðar, sem er mik­il­vægt fugla­svæði. Þessi nýju gögn sýna að hafernir fljúga í ein­hverjum til­vikum nálægt og mögu­lega yfir mögu­legt virkj­un­ar­svæði í Garpsdal. Það er því nið­ur­staða verk­efn­is­stjórnar nú að leggja til við ráð­herra að virkj­un­ar­kost­ur­inn verði í bið­flokki á meðan þeirri óvissu er eytt. Telur verk­efn­is­stjórn ekki ábyrgt að leggja til aðra flokkun á virkj­un­ar­kost­inum, þar sem haf­örn er lyk­il­teg­und í íslenskri nátt­úru og tryggja þurfi að áhætta sé ekki tekin varð­andi vernd þeirra. Sýni frek­ari mæl­ingar á far­leiðum arna litla hættu á yfir­flugi mætti hins vegar færa rök fyrir því að flokka verk­efnið í Garpsdal í nýt­ing­ar­flokk.

Hnotasteinn, Melrakkasléttu

Hnota­steinnVirkj­unin er áformuð á miðri Mel­rakka­sléttu.

Virkj­un­ar­kostur á vegum Qair Ísland ehf. Virkj­unin yrði sunnan við þjóð­veg­inn á Hóla­skarðs­leið yfir Mel­rakka­sléttu ofan byggð­ar­innar í Öxar­firði. Þar yrðu reistar 12-15 vind­myllur.   

Flokkun: Bið­flokkur

Rök­stuðn­ingur: Það er enn óvissa um ýmsa þætti í mati fag­hópa á þessum virkj­un­ar­kosti sem verk­efn­is­stjórn telur þurfa betri skoðun. Á það bæði við þætti sem vega með þess­ari stað­setn­ingu og á móti. Miklu skiptir einnig að kostn­aður við að tengja þennan kost inn á dreifi­kerfi Lands­nets er áætl­aður 10-14 millj­arðar. Þetta er veru­legur kostn­aður og mun meiri en varð­andi önnur vind­orku­verk­efni sem hér eru til skoð­unar.

Hrútmúlavirkjun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Hrút­múla­virkjunVirkj­unin er áformuð í Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi.

Fram­kvæmda­að­ili er wdp Ísland ehf. Virkj­unin myndi sam­an­standa af 22 vind­myllum og yrði á jörð­inni Skálda­búðum sem er í einka­eigu. Jörðin og vænt­an­legt virkj­un­ar­svæði á henni er inn­ar­lega í sveit­inni og liggur að afrétt­ar­landi. 

Flokkun: Bið­flokkur

Rök­stuðn­ingur: Þetta verk­efni virð­ist mæta tölu­verðrar and­stöðu í nær­sam­fé­lag­inu, en hefur fengið litla kynn­ingu og umfjöllun. Það hefur veru­leg sjón­ræn áhrif, sér­stak­lega í nær­liggj­andi sveitum um mið­bik Suð­ur­lands. Ýmis áhrif verk­efn­is­ins þurfa aug­ljós­lega frek­ari skoðun, eigi það að geta komið til álita.

Hrútavirkjun í Hrútafirði

Hrúta­virkjunVirkj­unin stæði skammt frá þorp­inu á Borðeyri.

Fram­kvæmda­að­ili er Zephyr Iceland ehf. Virkj­unin yrði byggð á háls­inum ofan Borð­eyrar í Hrúta­firði, gegnt Laxárdal í Dölum. Þar yrðu um 12-15 vind­myllur reistar.

Flokkun: Bið­flokkur

Rök­stuðn­ingur: Nú liggja fyrir mæl­ingar á far­leiðum hafarna hér á landi yfir tölu­verðan tíma. Í þeim kemur í ljós að þessi stað­setn­ing vind­orku­vers er í meg­in­far­leið hafarna. Ólíklegt er að frek­ari mæl­ingar leiði annað í ljós, þar sem end­ur­teknar rann­sóknir und­an­farin ár sýna mikla umferð arna yfir þetta svæði. Tillaga verk­efn­is­stjórnar er að flokka kost­inn í bið­flokk, en lík­legt má telja að fyllri gögn um far­leiðir hafarna sýni að Hrúta­virkjun skuli flokk­ast í vernd­ar­flokk, enda telj­ist vernd haf­arn­ar­stofns­ins veru­lega mik­il­vægir nátt­úru­vernd­ar­hags­munir á þessu land­svæði.

Sólheimar á Laxárdalsheiði

Sól­heimarVind­myll­urnar myndu sjást beggja vegna Lax­ár­dals­heiðar.

Virkj­un­ar­kostur á vegum Qair Ísland ehf. Virkj­unin er áformuð á sam­nefndri jörð í einka­eigu, sem er innsti bær í Laxárdal áður en komið er á Lax­ár­dals­heiði.

Flokkun: Bið­flokkur

Rök­stuð­ingur: Nú liggja fyrir mæl­ingar á far­leiðum hafarna hér á landi yfir tölu­verðan tíma. Í þeim kemur í ljós að Lax­ár­dalur og stað­setn­ing vind­orku­vers á Sól­heimum er í meg­in­far­leið hafarna. Ólíklegt er að frek­ari mæl­ingar leiði annað í ljós, þar sem end­ur­teknar rann­sóknir und­an­farin ár sýna mikla umferð arna yfir þetta svæði. Tillaga verk­efn­is­stjórnar er að flokka kost­inn í bið­flokk, en lík­legt má telja að fyllri gögn um far­leiðir hafarna sýni að Sól­heimar skuli flokk­ast í vernd­ar­flokk, enda telj­ist vernd haf­arn­ar­stofns­ins veru­lega mik­il­vægir nátt­úru­vernd­ar­hags­munir á þessu land­svæði.

Mosfellsheiðarvirkjun 1 og 2

Mos­fells­heið­ar­virkjun IVind­myll­urnar myndu sjást frá Þing­valla­vatni.

Virkj­un­ar­kostir á vegum Zephyr Iceland. Virkj­an­irnar yrðu á Mos­fells­heiði, í Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi en nærri lög­sögu­mörkum hans við Mos­fellsbæ. Landið er þjóð­lenda. 

Flokkun: Bið­flokkur

Rök­stuðn­ingur: Þessir virkj­ana­kostir er á svæði sem er að hluta mótað af virkj­ana­mann­virkjun, en það liggur að hita­veitu­æð­inni frá Nesja­völlum og sam­hliða vegi. Ýmsir kostir fylgja þeirri stað­setn­ingu hvað varðar aðgengi og tengi­mögu­leika. Vind­orku­mann­virki eru hins vegar ólík þeim orku­mann­virkjum sem þarna eru fyrir og sýni­leiki þeirra vænt­an­lega meiri. Þetta verk­efni hefur lítið verið kynnt, hvorki fyrir því sveit­ar­fé­lagi sem það er í eða nágranna­sveit­ar­fé­lögum sem það gæti haft áhrif á. Það litar við­horf íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu sem hefur lög­sögu á svæð­inu. Ýmis sjón­ar­mið koma fram í grein­ingum á virkj­un­ar­kost­unum vegna ásýndar og skyn­ræns áreitis af því, m.a. gagn­vart byggð á Suð­vest­ur­horn­inu, vegna Þing­valla og mik­il­vægrar ferða­manna­leiðar yfir Mos­fells­heiði og fleiri atriða sem enn eru óljós. Jafn­framt hafa tvö önnur vind­orku­verk­efni sunnar á heið­inni nýlega verið skil­greind til ramma­á­ætl­unar. 

Reykjanesvirkjun

Reykja­nes­virkjunHS Orka áformar að reisa vind­orku­ver við Reykja­nes­virkjun, jarð­varma­virkjun sem þegar er í rekstri.

Virkj­un­ar­kostur á vegum HS Orku yst á Reykja­nesskaga.

Flokkun: Bið­flokkur

Rök­stuðn­ingur: Faghópur 1 metur ýmis verð­mæti nátt­úru- og menn­ing­arminja, sér­stak­lega hvað varðar jarð­fræði og fugla­líf nokkuð háa. Í mati fag­hóps 2 hefur vind­orku­verið Reykja­nes­garður I hvað minnst nei­kvæð áhrif á ferða­mennsku og úti­vist af þeim verk­efnum sem skoðuð voru. Jafn­framt eru ekki áhrif á aðra hags­muni eins og veiði eða land­búnað. Í umfjöllun fag­hóps 3 koma fram ýmis atriði sem þarf að skoða. Verk­efnið virð­ist ekki hafa fengið kynn­ingu á svæð­inu, bæði hvað varðar sveit­ar­fé­lög og eins þeirra sem reka alþjóða­flug­völl­inn í Keflavík. Eldsum­brot við Sunds­hnjúks­gíga ollu síðan því að ekki var hægt að vinna frekar mat, m.a. á við­horfum íbúa.

Vindheimar 

Virkj­un­ar­kostur í Hörg­ar­dal í Eyja­firði á vegum Fallorku.

Flokkun: Bið­flokkur

Rök­stuð­ingur: Þar sem virkj­un­ar­að­ili hefur lagt áform sín á hill­una varð­andi þetta verk­efni, leggur verk­efn­is­stjórn það til að þetta verk­efni verði dregið til baka úr ramma­á­ætlun. 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vindorka á Íslandi

Hvalfjörðurinn endi ekki sem „ruslahaugur alls konar tilrauna“
SkýringVindorka á Íslandi

Hval­fjörð­ur­inn endi ekki sem „rusla­haugur alls konar til­rauna“

Raf­elds­neyt­is­verk­smiðjur eru sögu­lega orku­frekar. Þær eru líka fyr­ir­ferð­ar­miklar og með tengdum mann­virkjum á borð við bryggjur og virkj­anir yrði rask af þeim mikið. „Má ekki ákveða á ein­hverjum tíma­punkti að nóg sé komið?“ spyr kona í Hval­firði sem myndi sjá 60 metra háan kyndil raf­elds­neyt­is­verk­smiðju á Grund­ar­tanga frá jörð­inni sinni.
Risar á ferð: Flöskuhálsar kalla á breytingar á vegum
SkýringVindorka á Íslandi

Risar á ferð: Flösku­hálsar kalla á breyt­ingar á vegum

80 metra langir vind­myllu­spaðar eru lengstu íhlut­irnir sem munu fara um íslenska vega­kerfið ef af bygg­ingu vind­orku­vera verður hér á landi. Þessir for­dæma­lausu þunga­flutn­ingar kalla á styrk­ingar á brúm og vegum, breyt­ingar á vega­mótum og alls konar til­fær­ingar aðrar. Flytja yrði inn sér­staka flutn­inga­bíla til verks­ins og loka vegum fyrir annarri umferð enda ekki dag­legt brauð að aka með fyr­ir­bæri á pari við hæð Hall­gríms­kirkju­turns um þjóð­vegi lands­ins.
„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“
ViðtalVindorka á Íslandi

„Ég kæri mig ekki um að sveitin mín sé eyðilögð“

Í sjö ár hefur Steinunn M. Sig­ur­björns­dóttir háð margar orr­ustur í bar­áttu sinni gegn vind­myllum sem til stendur að reisa allt umhverfis sveit­ina hennar. Hún hefur tapað þeim öllum. „Ég er ekki búin að ákveða hvort ég hlekki mig við jarð­ýt­urnar, það fer eftir því hvað ég verð orðin gömul,” segir hún glettn­is­lega. En þó með votti af alvöru. Hún ætli að minnsta kosti ekki að sitja hjá og „horfa á þetta ger­ast”.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra ræðst í frumkvæðisathugun á fyrirhuguðu vindorkuveri
FréttirVindorka á Íslandi

Sveit­ar­stjórn Rangár­þings ytra ræðst í frum­kvæð­is­at­hugun á fyr­ir­hug­uðu vind­orku­veri

Byggð­ar­ráð Rangár­þings ytra ákvað í gær að fela sveit­ar­stjóra að leggja mats­spurn­ingar fyrir Lands­virkjun, ýmis ráðu­neyti og stofn­anir sem koma að upp­bygg­ingu vind­orku­vers sem til stendur að byggja í sveit­ar­fé­lag­inu. Eggert Valur Guð­munds­son, odd­viti sveit­ar­stjórnar, segir nauð­syn­legt að fá svör við spurn­ing­unum áður en fram­kvæmda­leyfi fyrir vind­orku­garð­inum er gefið út.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár