Situr í gamla stólnum hans pabba

Elsu Björgu Magn­ús­dóttur rann blóðið til skyld­unnar þegar faðir hennar lést fyrir 18 árum og flutti heim til Íslands. „Ég þurfti á Íslandi og fjöl­skyld­unni að halda og þau mér.“

Situr í gamla stólnum hans pabba

„Ég er lattel­epjandi borg­ar­búi og stolt af því. Við erum stödd í Koggu, ker­am­ikverk­stæði og gall­eríi, sem er búið að vera hér á sama stað í næstum því 40 ár. Ég er dóttir Koggu, Kol­brúnar Björg­ólfs­dóttur, og Magnúsar Kjart­ans­sonar. Pabbi var hérna líka, ég sit í hans gamla stól. Við höldum hans hug­verki eins og við getum, hann dó fyrir 18 árum. Svo er systir mín hérna líka, búin að vera í 30 ár. Fjöl­skyldan er öll hérna en þetta er miklu meira en bara fyr­ir­tæki. Mamma er búin að vera að í 50 ár. 

Ég ólst upp í þessu. Það er eflaust þrosk­andi og ákveðið menn­ing­ar­legt upp­eldi, mikið af lista­mönnum og alls kyns skemmti­legu fólki sem var inni á heim­il­inu. Það var mikið talað um heims­málin og heim­speki og skegg­rætt um allan fjand­ann. Ég var kannski ótrú­lega lítil þegar ég var að taka þátt í full­orð­ins sam­tölum og fannst það bara sjálf­sagt. Ég man mjög mörg skipti þar sem ég sat með þeim á Mokka kaffi og þá voru lista­menn­irnir allir að reykja vindla, drekka kaffi og ræða list, póli­tík og lífið og til­ver­una. Ég sat með þeim og fékk vöfflu með rjóma og app­el­sín. Mér fannst þetta geggjað, ég var oft­ast eini krakk­inn og mér fannst þetta stór­kost­legt, ég sá engan mun á mér og þessu lista­fólki. Mér fannst sjálf­sagt að taka þátt í svona sam­tali um alls kyns hluti sem maður hafði kannski tak­mark­aðan skiln­ing á þá.

„Það var mikið talað um heims­málin og heim­speki og skegg­rætt um allan fjand­ann

Svo þegar ég fór í skól­ann og tal­aði við jafn­aldra þá vissu þau ekk­ert hvað ég var að tala um, þetta var kannski aðeins öðru­vísi heimur heldur en margir aðrir félagar voru í. Ég ólst líka svo­lítið mikið upp fyrir austan hjá ömmu minni og móð­ur­systur, var send þangað öll sumur. Þegar ég kom heim á haustin og var að tala eins og mér fannst eðli­legt spurði einn strák­ur­inn af hverju ég tal­aði eins og gömul kona. Það stuð­aði mig, en þeim fannst orða­forð­inn greini­lega svo­lítið „gammel“. 

Það sem hafði mest áhrif á mig og mitt sjón­ar­horn er að búa erlendis. Ég lærði heim­speki á Ítalíu og á Bret­landi og hef búið í Hollandi. Mér fannst áhuga­verð­ast að upp­lifa hvernig annað fólk hefur það. Þegar ég flutti aftur heim fannst mér magnað að átta mig á því hvað við höfum það brjál­æð­is­lega gott. Alveg sama hvað maður les í bók eða talar við fólk þá er mesta upp­lifunin að prófa það sjálfur og þurfa að standa á eigin fótum við nýjar aðstæður. Það er bæði það skemmti­leg­asta sem ég hef gert og mest þrosk­andi. 

Ég flutti aftur til Íslands þegar pabbi dó. Mér rann blóðið til skyld­unnar. Ég þurfti á Íslandi og fjöl­skyld­unni að halda og þau mér svo ég kom heim og hef verið hér síðan. Ég starfa hér hjá mömmu en ég er heim­spek­ingur, það er mitt fag, ég kenni heim­speki. Svo er ég ljós­mynd­ari.“ 

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár