Samfylkingin hefur á undanförnum árum beitt sér fyrir því að ráðist verði í grundvallarbreytingar á fæðingarorlofskerfinu til að tryggja betur afkomuöryggi foreldra og vernda heilsu móður og barns.
Í alþingiskosningunum sem fram fara á laugardaginn óskum við eftir umboði til að hrinda þessum breytingum í framkvæmd. Þetta eru átta mikilvægustu atriðin í nýju fæðingarorlofskerfi Samfylkingarinnar:
1. Engin skerðing á lægstu tekjum
Fyrstu 450 þúsund krónur af viðmiðunartekjum fæðingarorlofsgreiðslna verða óskertar og 80%-reglan mun þannig einvörðungu taka til tekna umfram þá fjárhæð. Þetta er lykilaðgerð til að verja afkomuöryggi foreldra, enda má launalægsta fólkið á Íslandi ekki við 20% tekjuskerðingu þegar það eignast barn. Afkoma millitekjufólks í fæðingarorlofi batnar jafnframt um tugi þúsunda á mánuði með þessari breytingu.
2. Viðmiðunartímabil færist nær fæðingardegi
Fæðingarorlofsgreiðslur munu endurspegla betur raunverulegar tekjur foreldra. Miðað verður við þær tekjur sem foreldrar höfðu á tólf mánaða tímabili sem lýkur mánuði fyrir fæðingu barns í stað þess að viðmiðunartímabilið standi yfir í tólf mánuði sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingu barns.
3. Hækkanir munu taka til allra foreldra í fæðingarorlofi
Hækkanir á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði munu ná til allra foreldra sem eru í fæðingarorlofi þegar hækkanirnar taka gildi í stað þess að miðað sé við fæðingardag barns líkt og áður hefur tíðkast. Þannig er hækkun greiðslna að jafnaði háttað í velferðarkerfinu og hið sama á að gilda um greiðslur til ungbarnafjölskyldna.
4. Launað meðgönguorlof fjórum vikum fyrir fæðingu
Konur munu öðlast rétt til launaðs meðgönguorlofs allt að fjórum vikum fyrir áætlaðan fæðingardag án þess að sá tími komi til frádráttar fæðingarorlofi eftir fæðingu. Slíkur réttur er þegar tryggður í Noregi, Danmörku, Finnlandi og Þýskalandi, en á Íslandi þurfa konur að ganga á veikindarétt sinn síðustu vikur meðgöngu. Að breytingunni hníga sterk heilsufarsleg rök, enda fylgir seinni hluta meðgöngu jafnan mikið álag og veikindaréttur fólks er mismunandi. Meðgönguorlof er líka mikilvægt jafnréttismál, enda er það kynbundið misrétti að hinn almenni veikindaréttur sé frátekinn í meðgöngu fyrir konur sem þurfa stundum einnig að ganga á réttindi sín hjá sjúkrasjóði stéttarfélaga og jafnvel taka launalaust leyfi, allt með tilheyrandi tekjuskerðingu.
5. Vinnutímastytting foreldra
Foreldrar barna fram að grunnskólaaldri munu öðlast rétt til 20% vinnutímastyttingar með stuðningi úr Fæðingarorlofssjóði í allt að sex mánuði. Greiðslurnar reiknast á sama hátt og greiðslur vegna fæðingarorlofs en í hlutfalli við skerðingu á starfshlutfalli. Í dag er Ísland eftirbátur annarra Evrópuríkja hvað varðar jafnvægi milli vinnu og fjölskyldulífs og raunar er Tyrkland eina Evrópulandið sem kemur verr út að þessu leyti í lífsgæðasamanburði OECD. Með þessari réttarbót yrði stigið mikilvægt skref í átt að fjölskylduvænni vinnumarkaði á Íslandi.
6. Hærri fæðingarstyrkir
Fæðingarstyrkur til fólks utan vinnumarkaðar hækkar úr 97.085 kr. í 200.000 kr. og fæðingarstyrkur námsmanna hækkar úr 222.494 kr. í 300.000 kr. Fjárhæðirnar eru smánarlegar í dag og duga hvergi nærri til framfærslu. Að auki munu námsmenn sem eiga rétt á fæðingarstyrk fá styrk til framfærslu annarra barna undir 18 ára aldri sem nemur einföldum barnalífeyri eins og gildir um lánþega hjá Menntasjóði námsmanna.
7. Aukin réttindi fjölburaforeldra
Réttur foreldra til fæðingarorlofs mun aukast um sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt, en í dag eykst rétturinn aðeins um þrjá mánuði. Þá verður meðgönguorlof tveimur vikum lengra fyrir hvert barn umfram eitt.
8. Aukinn réttur foreldra sem veikjast á meðgöngu
Réttur til lengra fæðingarorlofs vegna veikinda á meðgöngu sem vara fram yfir fæðingu verður tryggður á sama hátt og veikindi vegna fæðingar barns. Í núverandi lagaumhverfi fellur réttur til lengra fæðingarorlofs vegna veikinda á meðgöngu niður við fæðingu barns, sem er óeðlilegt í ljósi þess að oft vara veikindi áfram í nokkurn tíma eftir fæðingu.
Sterk Samfylking er forsenda þessara breytinga
Samhliða breytingum á fæðingarorlofskerfinu leggur Samfylkingin áherslu á að réttur barna til leikskólavistar frá tilteknum aldri verði lögfestur eins og gert hefur verið í öllum ríkjum Norðurlanda að Íslandi undanskildu. Þetta kallar á að lög um tekjustofna sveitarfélaga verði endurkoðuð þannig að gert sé ráð fyrir rekstri leikskóla sem lögbundins og fjármagnaðs verkefnis sveitarfélaga. Þannig aukum við fyrirsjáanleika og sláum á fjárhagskvíða foreldra vegna óþolandi umönnunarbils.
Hér má lesa frumvarp Samfylkingarinnar um nýtt fæðingarorlofskerfi í heild ásamt greinargerð um tillögurnar og útfærslu þeirra. Fjöldi félagasamtaka og stéttarfélaga hefur lýst stuðningi við breytingarnar, en til að hægt sé að fylgja málinu eftir alla leið verður Samfylkingin að fá sterkt umboð í komandi alþingiskosningum. Gerum þetta saman.
Höfundar eru frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður og Suðvesturkjördæmi.
Athugasemdir