Brjáluðu bræðurnir á keisarastóli: Hvað er satt í mynd Ridley Scotts, Gladiator II?

Þegar faðir Caracalla og Geta lá á dán­ar­beði gaf hann sonum sínum eina ráð­legg­ingu: „Verið vinir, mútið her­mönn­unum, fyr­ir­lítið alla aðra.“

Brjáluðu bræðurnir á keisarastóli: Hvað er satt í mynd Ridley Scotts, Gladiator II?
Geta og Caracalla höfðu fylgt föður sínum á stöðgum her­ferðum hans. Þeir höfðu tekið þátt í orr­ustum, þolað langar her­göngur, sofið mán­uðum saman í tjöldum við erf­iðar aðstæður og kúkað á víða­vangi. Þeir voru alls ekki þau snjáld­urs­legu himpigimpi sem birt­ast í mynd Ridley Scotts.

Ein af vin­sæl­ustu bíó­myndum árs­ins 2000 var Gladi­ator sem Ridley Scott leik­stýrði en Russell Crowe lék aðal­hlut­verk. Sú mynd ger­ist við lok ann­arrar aldar ET og fjallar um atburði sem ger­ast í Róma­veldi á keis­ara­tíð Commodusar. Hann var hálf­gal­inn og hafði meiri áhuga á að berj­ast opin­ber­lega sem skylm­inga­þræll heldur en stýra rík­inu.

Það var vissu­lega stað­reynd þótt leik­stjór­inn Scott fari að öðru leyti mjög frjáls­lega með sagn­fræð­ina í mynd sinn.

Nú er verið að sýna fram­halds­mynd sem ger­ist sextán árum síðar. Aftur er Ridley Scott við stjórn­völ­inn og aftur styðst hann við raun­veru­lega keis­ara sem stýrðu Róm en breytir eig­in­lega öllu öðru.

Geta og Caracalla heita þeir og eru í mynd­inni mjög ófagur fén­aður.

Og það voru þeir vissu­lega. En á allt, allt annan hátt en í mynd Scotts.

Geta og Caracalla í mynd Scotts.Bræð­urnir eru leiknir af Joseph Quinn og Fred Hechinger.

Myndin Gladi­ator II hefur fengið mjög mis­jafna dóma og verður ekki farið út í það hér, heldur ein­ungis fjallað um bræð­urna í hásæt­inu.

Þegar hinn raun­veru­legi Commodus var myrtur af fólki í hans eigin hirð á síð­asta degi árs­ins 192 ET (en sem sé ekki drep­inn af Russell Crowe eins og í mynd­inni Gladi­ator) þá var her­for­ing­inn Pertinax lýstur keis­ari.

Merki­leg­ast við það var kannski að faðir hins nýja keis­ara var þræll sem ávann sér frelsi.

Pertinax var hins vegar myrtur eftir aðeins þrjá mán­uði á keis­ara­stóli. Líf­varða­sveit keis­ar­ans setti þá keis­aratign­ina á upp­boð og auð­ugur land­stjóri í Norður-Afríku hreppti hnossið, Didius Julianus.

Óvin­sældir Juli­anusar voru strax miklar.

Múgnum í Róm fannst sví­virða hin mesta að hinn nýi keis­ari hefði keypt emb­ætti sitt þótt ekki margir hafi séð neina mein­bugi á því að menn bryt­ust til valda með morðum og ofbeldi.

Þrír öfl­ugir her­for­ingjar í skatt­lönd­unum risu strax upp á aft­ur­fæt­urna og gerðu til­kall til keis­ara­dóms. Julianus var þá myrtur í Róm eftir aðeins 66 daga á keis­ara­stóli og eftir að her­for­ingj­arnir þrír höfðu bit­ist um keis­aratign­ina í fáein ár var það Norður-Afr­íku­mað­ur­inn Septimus Severus sem bar sigur úr býtum.

Árið 197 var Severus orð­inn óum­deildur keis­ari. Hann var hörku­tól mikið og grimmd­ar­seggur en hins vegar dug­mik­ill stjórn­andi og öfl­ugur her­for­ingi. Undir hans stjórn varð róm­verska heims­veldið víð­lend­ast því hann braut hið íranska stór­veldi Parþa á bak aftur og inn­lim­aði stóran hluta Mesópótamíu.

Caracalla

Severus dó svo  eftir skamm­vinn veik­indi árið 211 þegar hann var kom­inn með her sinn til Norður-Englands og hugð­ist leggja undir sig Skotland.

Að Severusi látnum tóku synir hans Geta (22 ára) og Caracalla (23 ára) við stjórn­ar­taumunum í rík­inu. Þeir bræður voru ekki tví­burar, líkt og í mynd­inni Gladi­ator II, og þeir voru heldur ekki hálf­gerð skrípi sem þekktu aðeins munúð­ar­líf í Róm eins og raunin er um bræð­urna í bíó­mynd­inni.

Þvert á móti. Þeir höfðu báðir fylgt föður sínum á her­ferðum hans og þolað þar bæði súrt og sætt og voru þraut­reyndir her­menn — sér í lagi Caracalla. Geta hafði þrátt fyrir ungan aldur ann­ast opin­bera stjórn­sýslu í rík­inu sem full­trúi föður síns og reynst dug­andi á því sviði.

Þeir voru sem sé engir asnar eða himpig­mpi.

Á dán­ar­beði sínum hafði Severus gefið þeim eft­ir­far­andi ráð: „Verið vinir, mútið her­mönn­unum, fyr­ir­lítið alla aðra.“

Það var ekki að ósekju sem hann orð­aði þetta svo, því bræð­urnir höfðu að sögn lagt ósvikið hatur hvor á annan allt frá blautu barns­beini. 

Hins vegar komu ráð Severusar fyrir lítið því fjand­skapur bræðr­anna bloss­aði nú upp þegar Severus gat ekki lengur haft hemil á þeim. Á leið­inni frá Bret­landi til Rómar eftir lát föður síns var fjand­skapur þeirra strax orð­inn svo mik­ill að þeir gistu aldrei í sama húsi á leið­inni til Rómar og töl­uð­ust varla við.

Og þegar til Rómar kom var hat­rið millum þeirra orðið svo aug­ljóst og ósvikið að þeir sett­ust að hvor í sínum hluta af höll móður sinnar í borg­inni og reistur var veggur milli helm­ing­anna.

Það var sama hvað móðir þeirra gerði til að reyna að sætta þá, ekk­ert kom að neinu liði. 

Móðir þeirra bræðra var reyndar mik­ill karakter og það er bein­línis til vansa að Ridley Scott skuli hafa búið til heila bíó­mynd um þetta fólk án þess að hún — Júlía Domna hét hún — komi á nokkurn hátt við sögu. Því þar var sann­ar­lega sögu að segja.

Frá því segi ég hér.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár