Snjóframleiðsla hafin af krafti í Bláfjöllum

Góðar aðstæður hafa verið til snjó­fram­leiðslu í Blá­fjöllum und­an­farna viku, ískalt og ekki of hvasst. Einar Bjarna­son, rekstr­ar­stjóri skíða­svæð­is­ins, segir að það hafi tek­ist að fram­leiða ótrú­legt magn af snjó síð­ustu daga og von­ast til að hægt verði að opna svæðið fyrir miðjan des­em­ber.

Snjóframleiðsla hafin af krafti í Bláfjöllum
Bláfjöll Snjó­fram­leiðslu­ver­tíðin er hafin í Blá­fjöllum og þá er þess ekki lengi að bíða að skíða­ver­tíðin hefj­ist. Mynd: Golli

„Hér snjóar og snjóar,“ sagði í texta sem fylgdi mynd­bandi sem birt var á upp­lýs­inga­síðu skíða­svæð­is­ins í Blá­fjöllum í vik­unni, en kuld­inn í vik­unni hefur gert starfs­mönnum skíða­svæð­is­ins kleift að hefja snjó­fram­leiðslu af fullum krafti.

Einar Bjarna­son, rekstr­ar­stjóri Blá­fjalla, segir við Heim­ild­ina að fram­leiðslan hafi verið sett af stað síð­asta laug­ar­dag og að síðan þá hafi verið hægt að keyra snjó­byss­urnar átta sem eru á svæð­inu í um fjóra sól­ar­hringa. Ef það verður of hvasst þá þarf að slökkva á kerf­inu, enda til lít­ils að fram­leiða snjó sem vind­ur­inn feykir um leið lang­leið­ina niður í Þor­láks­höfn.

„Við erum samt að fram­leiða ótrú­legt magn því við höfum getað verið að keyra byss­urnar á fullum afköstum og erum að skila miklu magni af snjó,“ segir Einar og nefnir sem dæmi að aðfara­nótt fimmtu­dags hafi verið 12 gráðu frost í fjall­inu, sem séu kjörað­stæður fyrir snjó­fram­leiðsl­una. Í svo miklu frosti sé hægt að hafa „allt í botni“.

Ef ekki væri fyrir hvass­viðrið telur Einar að starfs­menn fjalls­ins væru komnir langt með að setja gott grunn­lag á brekk­urnar.

Snjó­fram­leiðslu­kerfi af full­kominni gerð var sett upp í Blá­fjöllum sum­arið 2023. Á síð­asta ári var fyrsti dagur snjó­fram­leiðsl­unnar 22. nóv­em­ber og fyrsti opn­un­ar­dagur skíða­svæð­is­ins var síðan 21. des­em­ber og skíða­fólk á suð­vest­ur­horn­inu gat notið þess að renna sér yfir hátíð­arnar.

Einar segir að það sé ekki komin nein dag­setn­ing á fyrstu opnun Blá­fjalla í vetur, en að það væri gaman að geta opnað á milli 10. og 15. des­em­ber. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár