Eldgos hafið á ný - Grindavík rýmd

Eldgos hófst á Sund­hnúka­gíga­röð­inni kl. 23:14 í kvöld, fimmtán mín­útum eftir að Veð­ur­stofan var­aði við kviku­hlaupi, sem fyrst kom fram á mælum um kl. 22:30. Gossprungan opn­að­ist á milli Stóra Skóg­fells og Sýl­inga­fells.

Eldgos hafið á ný - Grindavík rýmd
Gos Áætlað er að sprungan hafi verið um 2,5 kíló­metra löng er vís­inda­menn flugu yfir hana skömmu eftir mið­nætti. Mynd: Almannavarnasvið ríkislögreglustjóra

Eldgos er hafið á Sund­hnúks­gíga­röð, nærri Stóra-Skóg­felli og hófst klukkan 23:14. Veð­ur­stofa Íslands var­aði við yfir­stand­andi kviku­hlaupi um fimmtán mín­útum áður en gosið hófst, en fyrstu merki um kviku­hlaup komu fram á mælum Veð­ur­stof­unnar um kl. 22:30.

Bjarminn frá gos­inu sést vel frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Gosið er á svip­uðum slóðum og þau síð­ustu, en vís­bend­ingar eru um að það sé minna en síð­asta gos á gíga­röð­inni, alla­vega í fyrstu. 

Innviðir eru ekki taldir í hættu, miðað við fyrstu athug­anir, en sam­kvæmt Veð­ur­stof­unni benda fyrstu fréttir af hraun­rennsli til þess að hraun­straumur renni í vestur og liggi sunn­an­vert í Stóra-Skóg­felli. Enginn hraun­straumur sést hins­vegar í átt að Grinda­vík.

Stíf norð­an­átt er á svæð­inu sem beinir gasmengun suður á bóg­inn yfir Grinda­vík. Fram kom í máli Úlfars Lúð­víks­sonar lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum í við­tali á Rás 2 á tólfta tím­anum að unnið væri að því að rýma Grinda­vík­urbæ. 

Áætluð stað­setn­ing sprunguKort sem sýnir áætl­aða stað­setn­ingu gossprung­unnar kl. 23:40. Stað­setn­ingin er byggð á rad­ar­gögnum.

Á neyðarstig

Í til­kynn­ingu frá almanna­vörnum kemur fram að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­nesjum ákveðið að fara á neyð­ar­stig vegna eld­goss­ins.

SprungaHér sést lega sprung­unnar. Orkuver HS Orku í for­grunni

Búið er að virkja sam­hæf­ing­ar­stöð almanna­varna. Fram kemur í til­kynn­ingu almanna­varna að gist hafi verið í um 50 húsum í Grinda­vík und­an­farnar nætur.

Fréttin hefur verið upp­færð

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár