Þórður tekur ekki þingsæti - „Skrifin voru röng, meiðandi og skaðleg“

Þórður Snær Júl­í­us­son ætlar ekki að taka sæti á þingi nái hann kjöri í alþing­is­kosn­ing­unum. Hann seg­ist skamm­ast sín mikið fyrir gömul bloggskrif sem voru rifjuð upp í vik­unni. Þórður tekur fram að hann sé ekki fórn­ar­lamb aðstæðna og að bar­áttan í kven­frelsis- og jafn­rétt­is­málum standi enn.

Þórður tekur ekki þingsæti -  „Skrifin voru röng, meiðandi og skaðleg“
Þórður Snær var í Kringl­unni nýverið að ræða við kjós­endur um stefnu­málin. Mynd: Golli

 „Ég ber alla ábyrgð á þeim bloggskrifum sem hafa birst í fjöl­miðlum síð­ustu daga. Ég skamm­ast mín djúpt fyrir þau. Skrifin voru röng, meið­andi og skað­leg. Það er hægt að velja hvaða sterka nei­kvæða lýs­ing­ar­orð sem við eigum í orða­bók­inni. Þau eiga við um þessi skrif.“

Svona hefst yfir­lýs­ing sem Þórður Snær Júl­í­us­son birtir á Facebooksíðu sinni um hádeg­is­bilið. 

Þórður skipar 3. sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vik norður fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar. Í yfir­lýs­ing­unni seg­ist hann ekki ætla að taka sæti nái hann kjöri heldur eft­ir­láta næstu konu á list­anum sæti sitt. Utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla vegna kosn­ing­anna er hafin og geta fram­bjóð­endur á listum því ekki hætt við fram­boð. 

Á þriðju­dag var Þórður gestur í þætt­inum Spursmál á mbl.is þar sem Stefán Einar Stef­áns­son rifj­aði upp afar ósmekk­leg og meið­andi bloggskrif Þórðar frá árunum 2004-2007 en þar skrif­aði hann til að mynda end­ur­tekið niðr­andi um konur. Hart hefur verið sótt að Þórði síðan, til að mynda af fram­má­konum í kven­frels­is­bar­átt­unni en einnig mun breið­ari hópi, og ýmsir velt því upp hvort honum sé stætt á því að sækj­ast eftir þing­sæti í ljósi bloggskrif­anna.

„Ég bauð mig fram til Alþingis á grunni þess sem ég er, og hef orðið að á síð­ustu tæpu tveimur ára­tugum, ekki þess sem ég var. Ég vildi gera sam­fé­lag­inu gagn á öðrum vett­vangi. Hvíla mig á því að benda á það sem væri að og reyna að vinna að lausnum þess í stað. Nú er mér ljóst að áfram­hald­andi vera mín á lista er til trafala og er mörgum þung. Þess vegna til­kynni ég hér með að ég mun ekki taka þing­sæti hljóti ég slíkt í kosn­ing­unum eftir tvær vikur heldur eft­ir­láta næstu konu á list­anum sæti mitt,“ segir hann í yfir­lýs­ing­unni. 

Þórður tekur þar fram að hann sé ekki fórn­ar­lamb neinna aðstæðna og að hann ætli ekki að reyna að rétt­læta skrifin. Hann seg­ist ein­fald­lega hafa átt að vita betur og gera betur. Þá fari hann ekki fram á að umræðu um skrifin sé lokið með neinum hætti hann hafi beðist afsök­unar og iðrist. 

„Það liggur líka fyrir að bar­áttan stendur enn. Og það er bakslag í henni. Viðhorf eru farin að heyr­ast á ný sem voru á und­an­haldi. Ungir karlar sem eru á svip­uðum stað og ég var á þessum tíma sem skrifin birt­ust. Það er mjög vond þróun sem þarf að spyrna gegn. Það þarf að berj­ast fyrir því sem hefur áunn­ist í kven­frelsis- og jafn­rétt­is­bar­átt­unni. Ég hef tekið þátt í þeirri bar­áttu á síð­ustu ára­tugum og ég vil gera það áfram sem stuðn­ings­maður. Með því að hlusta og læra,“ skrifar hann.

Hér er færsla Þórðar í heild sinni:

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LDA
    Lilja Dögg Arnþórsdóttir skrifaði
    #Afsakið það skiptir greinilega öllu máli hvort það er karl eða kona sem biður um grið. #Afsakið en hræsnin er óbærileg. #Afsakið #Afsakið #Afsakið
    -2
  • Arnar Guðmundsson skrifaði
    Þórður Snær sagði ljótt um konur í “denn”. Hann uppsker fyrir það núna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir kúlulánadrottning fer fyrir Viðreisn, æðsti koppur í búri þar. Á að trúa því að hún sé eitthvað forbetruð síðan á kúlulánaskeiðinu? Gildir eitthvað annað viðmið fyrir hennar siðferði - og um leið þá hennar flokk, Viðreisn?
    1
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Hef fylgst með skrifum Þórðar, bæði í pistlum og þegar hann var starfaði á Kjarnanum og á Heimildinni, og í morgunútvarpi Rásar 1. Hans málflutningur þar, bar þess ekki merki að þar færi maður sem hefði sérstakt horn í síðu kvenna, heldur þvert á móti. Þórður er maður að meiri, að gengist við sínum afglöpum og beðist afsökunar og axlað að auki ábyrgð á þessum ævafornu misgjörðum, sem einhverjum fannst ástæða til að draga fram í dagsljósið, öruggleg bara í göfugum tilgangi. Treysti því að hann láti ekki deigan síga og reynist öflugur liðsmaður Samfylkingarinnar á komandi kjörtímabili og komi reynslunni ríkari í baráttuna í næstu kosningum og kemst þá vonandi á þing.
    3
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Furðulegt að dæma Þórð af 17-20 ára gömlum ummælum án þess að taka neitt tillit til skrifa hans eftir það. Hann hefur lengi verið vel metinn blaðamaður og unnið til verðlauna fyrir fagleg vinnubrögð. Það er mikil eftirsjá að honum á Heimildinni.
    Sumir tala jafnvel um að hann eigi að fá annað tækifæri rétt eins og hann sé enn við sama heigarðshornið.
    Ákvörðun hans um að taka ekki þingsæti nái hann kjöri er þó að mínu mati rétt og honum til sóma. Hann tekur hagsmuni flokksins fram yfir eigin hagsmuni.
    Svara
    4
    • GG
      Guðmundur Guðmundsson skrifaði
      Var hann ekki þvingaður til þess að taka þessa ákvörðun?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár