Þingnefnd hefur frumkvæðisrannsókn á ráðningu Jóns Gunnarssonar

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis hefur sam­þykkt að hefja frum­kvæð­is­at­hugun á skipan Jóns Gunn­ars­sonar í hlut­verk sér­staks full­trúa Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra í mat­væla­ráðu­neyt­inu.

Þingnefnd hefur frumkvæðisrannsókn á ráðningu Jóns Gunnarssonar
Til aðstoðar Jón Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, var skip­aður sem full­trúi for­sæt­is­ráð­herra í ráð­herra­lausu mat­væla­ráðu­neyti. Hann nýtur sömu stöðu og aðstoð­ar­menn ráð­herra og rík­is­stjórn­ar­innar gera. Mynd: Heiða Helgadóttir

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis hefur farið fram á að mat­væla­ráðu­neytið afhendi öll gögn er varða ráðn­ingu Jóns Gunn­ars­sonar í hlut­verk sér­staks full­trúa Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra í mat­væla­ráðu­neytið. Tilefnið er afhjúpun Heim­ild­ar­innar á mánu­dag á full­yrð­ingum sonar og við­skipta­fé­laga Jóns, Gunnars Berg­manns, um að Jón hafi samið við Bjarna um að taka sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar í skiptum fyrir að kom­ast í stöðu til að vinna að útgáfu hval­veiði­leyfa. 

GrunurÞór­hildur Sunna segir að í mál­inu sé grunur um mis­notkun á valdi eða jafn­vel mögu­legt mútu­brot.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata og full­trúi í nefnd­inni, fór fram á að málið yrði rann­sakað. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar var ekki ein­róma sam­þykki fyrir því að hefja frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu, en nógu mörg atkvæði voru fyrir því til að hefja rann­sókn­ina.

Fyrsta skref rann­sókn­ar­innar er áðurn­fend gagna­öflun, sem bein­ist bæði …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu