Verulegur munur á stöðu kvenna eftir launum og menntun

Lág­launa­konur eiga ekki ein­ungis mun erf­ið­ara með að ná endum saman en þær sem fá hærri laun heldur eru þær líka óham­ingju­sam­ari og meta heilsu sína verri. Ný skýrsla Vörðu dregur fram veru­legan mun á stöðu kvenna í íslensku sam­fé­lagi.

Verulegur munur á stöðu kvenna eftir launum og menntun
Fátækt Átta pró­sent kvenna sem eru bara með grunn­skóla­prófa hafa þurft að neita sér frekar eða oft um mat svo börnin þeirra fái nóg að borða, sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar. Mynd: Kristinn Magnússon

Veru­legur munur er á stöðu kvenna í íslensku sam­fé­lagi eftir mennt­un­ar­stöðu ann­ars vegar og launum hins vegar. Konur sem eru ein­ungis með grunn­skóla­próf eða sam­bæri­lega menntun, rétt eins og konur með laun sem eru lægri en 499 þús­und, eru mun lík­legri en meira mennt­aðar og hærra laun­aðar konur til þess að neita sér um lífs­gæði eins og nær­ing­ar­ríkan mat og menntun sem þær langar að sækja sér.

Einungis um eitt pró­sent kvenna með laun sem eru hærri en 800 þús­und krónur höfðu á sama tíma þurft að neita sér um slík lífs­gæði vegna fjár­skorts. 

„Konur með lág laun meta ham­ingju sína minni en konur með hærri laun. Skýrt mynstur er milli launa­flokka og ham­ingju“
Úr rann­sókn Vörðu og HA

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í rann­sókn Vörðu, rann­sókn­ar­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins, og Háskól­ans á Akureyri um ójöfnuð meðal kvenna í íslensku sam­fé­lagi. Nið­ur­stöð­urnar voru kynntar í hús­næði Alþýðu­sam­bands Íslands í morgun.

Þar var staða kvenna skoðuð út frá stétt, launum og menntun. Í rann­sókn­inni kemur  fram að konur sem eru ein­ungis með grunn­skóla­próf og konur sem eru á launum sem eru undir 500 þús­und krónum hafa það hvað verst þegar litið er til fjár­hags, ham­ingju og lík­am­legrar heilsu. 

Tuttugu prósent eiga erfitt með að ná endum saman

Rúm 20 pró­sent kvenna með svo lág laun eiga frekar eða mjög erfitt með að ná endum saman á meðan hlut­fallið er níu pró­sent á meðal kvenna á með­al­háum launum (500 til 700 þús­und krónum) og eitt pró­sent hjá konum sem fá 800 þús­und krónur eða meira í mán­að­ar­laun. 

Þá eru konur sem eru ein­ungis með grunn­skóla­próf eða sam­bæri­lega menntun lík­leg­astar til þess að búa við efn­is­legan skort á meðan konur með háskóla­menntun búa síst við efn­is­legan skort. 6,6 pró­sent kvenna með grunn­skóla­próf eða sam­bæri­lega menntun eru í van­skilum á leigu eða lánum, 24 pró­sent þeirra hafa ekki efni á árlegu fríi með fjöl­skyldu sinni og svipað hlut­fall þeirra getur ekki mætt óvæntum útgjöldum. Svipaða sögu er að segja af konum með lægstu launin – undir 500 þús­und krónum. 

Þegar kemur að eignum eiga ein­ungis 12 til 15 pró­sent kvenna sem eru með minni menntun en háskóla­próf hluta­bréf eða eignir sem þær hafa tekjur af (t.d. leigu­eignir) en 28 pró­sent kvenna með háskóla­menntun. 

92 prósent kvenna með há laun í eigin húsnæði

Konur á lágum launum eru aftur á móti ólík­legri til þess að búa í eigin hús­næði en konur á háum launum. 56 pró­sent lág­launa­kvenna búa í eigin hús­næði og um 40 pró­sent þeirra eru á leigu­mark­aði á meðan 92 pró­sent hálauna­kvenna búa í eigin hús­næði og ein­ungis um 7 pró­sent á leigu­mark­aði. 

Í einni af spurn­ing­unum í rann­sókn Vörðu var vikið að fram­tíð­inni. Þá svör­uðu konur með lág laun því frekar til að lífs­kjör þeirra muni lík­lega versna nokkuð eða mikið á næsta árinu, eða um 16 pró­sent, á meðan 8 pró­sent hálauna­kvenna sögðu hið sama. Stærstur hluti beggja hópa telur að lífs­kjörin muni standa í stað en lág­launa­kon­urnar eru ekki bara ívið svart­sýnni en hálauna­kon­urnar heldur einnig bjart­sýnni þar sem 35 pró­sent þeirra telja að lífs­kjör þeirra muni batna nokkuð eða mikið á meðan 25 pró­sent hálauna­kvenna svara spurn­ing­unni þannig.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár