Veiran sem valhoppar milli dýra

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin telur til­efni til að fylgj­ast vel með útbreiðslu fuglaflensu­veiru í banda­rískum kúm. Veir­urnar lifa ekki í mjólk dýr­anna en gætu nýtt tæki­færið til stökk­breyt­inga í stórum skrokkum þeirra.

Veiran sem valhoppar milli dýra
Sýktar en stál­slegnar Kýr virð­ast lítið sem ekk­ert finna fyrir fuglaflensu­sýk­ingum. Það þýðir ekki að sýk­ing þeirra sé án allrar hættu. Mynd: AFP

Ný gögn sýna að veiran sem veldur fuglaflensu, H5N1, geti nokkuð auð­veld­lega farið fram og til baka milli kúa og fugla. Það gæti, að því er banda­rískir vís­inda­menn ótt­ast, orðið til þess að auka og hraða útbreiðslu sjúk­dóms­ins. Veiran hefur valdið dauða meðal ýmissa dýra­teg­unda en ein­hverra hluta vegna hafa kýr vest­an­hafs, þar sem útbreiðslan er tölu­verð, yfir­leitt ekki sýnt alvar­leg veik­indi eða dáið. Það eru sann­ar­lega góðar fréttir fyrir kýrnar en verri fyrir mann­fólkið sem er að reyna sitt besta til að halda útbreiðslu veirunnar í skefjum. Sýkt kýr sem engin ein­kenni sýnir getur þannig borið veiruna með sér hvert sem er án þess að vekja nokkrar grun­semdir. Það sem meira er, benda vís­inda­menn­irnir á, þá hafa banda­rískar kýr oft í sér ýmsar flensu­veirur og það vekur aftur áhyggjur af því að með tíð og tíma gætu þessar veirur deilt með sér erfða­efni og jafn­vel orðið upp­eld­is­stöðvar veira sem …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár