„Þetta er áfellisdómur, það er engin spurning“

Guð­mundur Gunn­ars­son, odd­viti Við­reisnar í norð­vest­ur­kjör­dæmi í þing­kosn­ing­un­um 2021 segir nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu um eft­ir­mál kosn­ing­anna vera afdrátt­ar­lausa. „Ég held það hafi allir séð það sem að vildu sjá að þessi fram­kvæmd var mein­gölluð.“

„Þetta er áfellisdómur, það er engin spurning“
Guð­mundur Gunn­ars­son „Þetta er nátt­úru­lega bara mik­ill léttir og stað­festir bara það sem við höfum sagt frá upp­hafi.“

„Það gengur nátt­úru­lega ekki að við séum með þannig kerfi að þú getir svindlað í kosn­ingum, kom­ist upp með það, sigrað, skipt síðan um kápu og úrskurðað um það hvort að þetta hafi verið svindl eða ekki,“ segir Guð­mundur Gunn­ars­son, odd­viti Við­reisnar í alþing­is­kosn­ing­unum 2021. Þegar fyrstu útgefnu töl­urnar úr Norð­vest­ur­kjör­dæmis lágu fyrir var Guð­mundur einn þeirra sem átti sæti á þingi. Eftir end­ur­taln­ingu datt Guð­mundur út af þingi fyrir Bergþór Ólason, fram­bjóð­anda Mið­flokks­ins. 

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu (MDE) komst í morgun að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hafi brotið gegn mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu í alþing­is­kosn­ing­unum 2021, í kjöl­far end­ur­taln­ingar atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Það var sam­hljóma álit Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins að ríkið hafi brotið á rétti til frjálsra kosn­inga og rétti til skil­virks úrræðis.

Málið snýst um að mis­ferli við end­ur­taln­ingu atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í alþing­is­kosn­ing­unum árið 2021. Tals­verðir ann­markar voru á fram­kvæmd kosn­ing­anna en kjör­gögn lágu óinn­sigluð frá kjör­degi og til taln­inga­dags dag­inn eftir. Hann, ásamt Magnúsi Davíð Norðdahl, odd­vita Pírata í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í alþing­is­kosn­ing­unum 2021, fóru með málið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í nóv­em­ber 2021, eftir að seinni taln­ing atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi var látin standa. 

Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn taldi að þótt máls­með­ferð Alþingis vegna kvart­ana mann­anna hefði verið sann­gjörn, mál­efna­leg og tryggt nægi­lega rök­studda nið­ur­stöðu, hefði hana skort nauð­syn­legar varnir til þess að gæta hlut­leysi og Alþingi hafi haft nær tak­marka­laust vald til ákvarð­ana. 

Meingölluð framkvæmd

Nið­ur­stöðu dóms­ins segir Guð­mundur vera afdrátt­ar­lausa. „Ég held það hafi allir séð það sem að vildu sjá að þessi fram­kvæmd var mein­gölluð og aðferðir okkar til að greiða úr slíkum málum eru mein gall­aðar og það þurfti að leiða þetta mál til lykta. Þess vegna fórum við út í þetta. Til þess að við værum ekki með í að reisa lýð­ræði okkar á mein göll­uðum kerfum.“

„Það var mis­skiln­ingur margra að þetta ferða­lag okkar út til Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins væri eitt­hvað til þess að reyna að grenja okkur inn á þing. Það var bara alls ekki til­gang­ur­inn. Til­gang­ur­inn var að það myndi kom­ast ein­hver skriður á að koma í veg fyrir að þetta geti gerst aftur og við­ur­kenn­ing á því að svona fram­kvæmd og svona afgreiðsla hjá þing­inu væri ekki í lagi.“

Fyrir Guðmundi snýst málið um rétt okkar allra borg­ar­anna að frjálsum kosn­ingum. „Ég held það hafi allir séð það sem að vildu sjá að þessi fram­kvæmd var mein­gölluð og aðferðir okkar til að greiða úr slíkum málum eru mein gall­aðar og það þurfti að leiða þetta mál til lykta. Þess vegna fórum við út í þetta.“

Spurður hvort honum þyki mál­inu lokið segir Guð­mundur að bolt­inn sé hjá þing­inu. „Ég held að bæði þingið þurfi nú aðeins svona að horfast í augu við það hvernig þetta mál var afgreitt og svo hvað við sem sam­fé­lag ætlum að gera til þess að laga það sem er þarna ótví­rætt kemur fram að er ein­fald­lega ekki í lagi ef við ætlum að taka okkur alvar­lega sem lýð­ræð­is­ríki. Þetta er áfell­is­dómur, það er engin spurn­ing.“

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
6
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár