Áfrýjunarbeiðni Assange samþykkt

Julian Assange mun fá að áfrýja fram­sals­beiðni Banda­ríkj­anna. Þetta var ákveðið af breska hæsta­rétt­inum rétt í þessu. Assange á því enn mögu­leika á því að verða ekki fram­seldur til Banda­ríkj­anna þar sem hann myndi sæta rétt­ar­höldum fyrir njósnir.

Breskir dóms­stólar munu leyfa Julian Assange að áfrýja fram­sals­beiðni Banda­ríkj­anna. Þetta var úrskurðað í breska hæsta­rétt­inum rétt í þessu. Guardian greinir frá.

Assange á því enn mögu­leika á því að koma í veg fyrir fram­sal sitt frá Bret­landi til Banda­ríkj­anna. En í síð­ar­nefnda land­inu á hann yfir höfði sér allt að 175 ára fang­elsi fyrir njósnir.

Assange lak, eins og frægt er, trún­að­ar­upp­lýs­ingum um aðgerðir Banda­ríkja­hers í Afganistan og Írak í gegnum WikiLeaks árin 2010 og 2011. 

Bresk yfir­völd höfðu sam­þykkt fram­sals­beiðni Banda­ríkj­anna árið 2022. Assange bað þá um leyfi til að áfrýja þeim úrskurði, sem hann hefur nú fengið. Hefði áfrýj­un­ar­beiðn­inni verið hafnað hefðu öll sund verið lokuð Assange í Bret­landi og fátt geta komið í veg fyrir fram­sal hans til Banda­ríkj­anna.

Assange er fyrsti útgef­and­inn …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Bob Dylan Hurricane Lyrics
    from album: Desire (1976)
    Couldn't help but make me feel ashamed to live in a land
    Where justice is a game.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár